Alþýðublaðið - 23.11.1960, Page 9
is fjög-
ur, upp
um var
r klefa
ma fyr-
. Báðir
;ttu leið
;ur kom
árs af-
dvald-
?að var
, Þegar
nnt, að
ð breytt
lsi, átti
að trúa
11 dagar
;kur það
nn tíma
kkru. —
ekki um
; fyrr en
fréttum
nú berj-
því að
itt. Hinn
5ingi hef
na verð-
[. — Eg
n, sagði
rýtin til-
ið mann,
im lífið
fði ekki
ið svara
nönnum.
sið biðu
unnusta.
sig, tójk
unnustu
arminn,
ana, sem
lu. Þau
æða um.
Spjallað við Oldu
um bíó og pólitík
VIÐ höfðum um skeið
skriðið á fjórum fótum um
víðáttur stofunnar hjá
ömmu, ekið bílum upp
og niður stóla, flækt okk-
ur í blómunum og rispað
útvarpið. Við höfðum
hlegið okkur máttlaus yf-
ir dásemdum þess heims,
sem ekki er af þessum
heimi en rúmast samt í
lítilli stofu, sem er böð-
uð síðdegissól í nóvember.
Við höfðum líka borðað
dálítið af gotti, ópalið
festist í tönnunum og ilm-
ur þess var stækur í vit-
unum, — og sunnudagur-
inn leið inn í dularfullt
rökkur.
— Ertu kommónisti?
spurði hún og klifraði upp
á hnéið á mér þar sem
ég sat og var að ráða kross
gátuna í Morgunblaðinu.
— Ja, mér þykir þú al-
deilis fróð í pólitíkinni,
sagði ég. Hvar hefur þú
heyrt minnst á kommún-
ista?
— Hann Siggi, svaraði
hún og þar við sat.
— Heldurðu maður þurfi
að vera kommúnisti þótt
maður ráði krossgátuna í
Morgunblaðinu? sagði ég.
Hún gafst upp á stjórn-
málaviðræðum og snéri
sér að krossgátunni.
— Mamma gerir oft
svona, hún er voðafljót.
— Eg er nú líka fljót-
ur, svaraði ég svolítið
særður. Það er nú ekki
lengi verið að ráða sunnu-
dagskrossgáturnar í Mogg
anum.
— Mamma er voðafljót,
ítrekaði hún og fékk sér
meira ópal.
— Eg fór í vinnuna til
pabba í morgun, það er
voðafínt, það er voðafínt
hjá pabba, voðafínt.
— Þú ert ekkert óá-
naegð með familíuna, sagði
ég.
— Og afi á voðafínan
bíltúr.
— Hvað heldurðu að
það sé fínn bíltúr, bara
Volkswagen.
— Hann er voðafínn.
Lýsingarorðið „voða-
fínn“ var auðheyrilega
nýtilkomið í orðaforða
frænku minnar.
— Sótti afi þig í bíltúr-
inn í morgun? spurði ég
vitandi, að ekkert þótti
þessari ungfrú dýrlegra
umræðuefni en bílar og öll
sú æsing, er þeim fylgir.
—Nei, pabbi og mamma
og Systa og ég komum: í
voðasætum strætó ,svaraði
hún með andköfum.
— Hvernig var sann
sætur?
— Hann var góður.
— Var hann með rauð-
um stólum?
— Já, svaraði hún fagn
andi. Rauðum stólum,
voðafínum.
— Hvað gerðuð þið svo?
Eg var úrkula vonar um
að geta lokið við kross-
gátuna.
— Við Hrafnhildur fór-
um á bíó, Systa fór með
ömmu, svaraði hún hróð-
ug.
— Fórst þú ekki líka
með ömmu?
— Nei, við Hrafnhildur
fórum.
— Voruð þið ekki í sama
bió og Systa og amma?
— Jú, það þurfti eng-
inn að fara með mér.
— Var gaman á bíóinu?
— Voðagaman, það var
góð kona, sem datt í sjó-
inn. Og það var snjór oní
sjónum. Hún var voða-
góð.
— Af hverju varhún að
detta í sjóinn.
— Karlinn hennar kast-
aði henni.
— Það hefur verið ljóti
karlinn.
— Hann var lítill, og
voða ljótur. Hann var voða
vondur. Góða konan fór
að gráta.
— Það skal mig ekki
furða, ef hann hefur kast-
að henni í sjóinn; sem þar
að auki var fullur af snjó.
— Hann var svo voða-
vondur. Og hún var voða-
sæt.
— Var ekki fleira á bió
en þessi fjölskylduharm-
leikur?
— Jú, krakkarnir sungu
og hoppuðu og voru voða-
kát. Það var voðagaman.
Karlinn var vondur.
— Ösköp var það leiðin
legt, Það er miklu skemmti
legra á bíó ef allir eru
góðir.
— Á morgun verður
hann góður við hana.
— Heldurðu að hann
verði ekki alveg jafnvond-
ur við konuna sína á
morgun?
— Hann verður voða-
góður við hana á morgun,
svo hún fari ekki að gráta,
sagði frænka mín af þeirri
vonglöðu alvöru, sem er
svo algeng á því aldurs-
skeiði er mannkindin á
allt undir góðleik og um-
hyggju annarra.
Eiginlega var ekki meira
að segja, hin einfalda lausn
var fundin á krossgátu
mannlegra samskipta. Eg
og hún frænka mín fórum
að velta fyrir okkur hvort
kvöldmatur væri ekki á
næstu grösum. Áhugamál
okkar fóru saman í und-
arlega mörgum sviðum,
enda þótt hennar aldur
þyrfti að margfalda með
tíu til að minn kæmi út,
eins og segir í verðlauna-
gátunum.
Tannlœknar og
lyfjafrœðingar
Fjölbreytt úrval af hvítum sloppum.
Fallegt snið. — Gott verð.
Vinnufatabúðin, Laugavegi 76.
Sfakar buxur
mikið úrval
Drengjabuxur
dökkar og misl.
SKYRTUR — BINDI
Mifflsblussur
margar teg.
Vinnuföf
allar teg. og stærðir
SOKKAR — NÆRFÖT
Verzlið tímanlega fyrir jólin !
Verzlunin Stakkur
Laugavegi 99.
obbbbbbbbbbbbLúbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbbb
Amerísku
kúluhúnarnir
(Weslock)
fást nú aftur í fjölbreyttu úrvali.
vggingavörur
Sími 35697
Lougaveg 178
bbb
b
b
b
b
b
b
b
b
b
b
b
__b
SAMTÍNIN6UR
AÐ sögn E. E. Hedblom,
heilbrigðisráðunauts Ban-
daríkjaflota á Suður-
skautslandinu, fer helm-
ingur bandarískra sjóliða
á Suðurskauti þangað til
þess að flýja frá kvenfólki.
Hann sagði ennfremur,
að hin óstýriláfu náttúru-
öfl og einangrun manna á
þessum slóðum gerðu það
að verkum, að það reyndi
sjö sinnum meir á taugar
þeirra en annarra sjóliða.
Kvef sagði hann vera nær
óþekkt fyrirbæri þar. —■
Sérstaklega útbúnir ,snjó-
speglar1 hafa svo til út-
rýmt snjóblindu. (UPI).
ÞARFASTI þjónn manns-
ins á jörðu niðri er auð-
vitað hesturinn, en í
geimnum taka mýs og ap-
ar að öllum líkindum við
því heiðursstarfi.
I
Hinar margeftirspurðu
veggflísar
komnar. — Fjölbreytt litaúrval.
Verð frá kr. 185,00 ferm.
Einnig fyrirliggjandi mosaik og glerull
í mottum.
FALUR H.F.
Afgreiðsla — Grett-isgötu 32 — Sími 36412
Alþýðublaðið — 23. nóv. 1960 ^