Alþýðublaðið - 15.12.1960, Page 3
London, 14. des.
(NTB—REUTER)
ASFA WASSEN, krónprins
í Eþíópíu hefur gert stjórnar-
byltingu í landinu og tekið öll
völd í sínar hendur og gerzt
forsætisráðherfa í nýrri ríkis-
stjórn. Keisasi landsins, Haile
Selasise er fjarstaddur um
þessar mundir, en hann er nú
í opinberri heimsókn í Brasilíu.
Hinn 44 ára gamli krónprins,
er uppreisn gerði gegn föður
síum mun hafa gert hana með
stuðningi lögreglu, nokkurs
hluta hersins og æskulýðshreyf
ingar. Hin nýja ríkisstjórn
kveðst munu binda endi á 3000
ára óréttlæti. Aldrei fyrr í sögu
þjóðarinnar hefur almúgamað-
urinn risið upp gegn fátækt
sinni og menntunarleysi, segir
í boðskap hinnar nýju stjórn-
ar. Auðæfi landsins hafa verið
jú skip rekas
á í Sæviðarsundi
Istanbul, 14. des.
NTB—REUTER—AFP.
Að minnsta kosti 50 manns
hafa farist f slysinu mikla, er
varð á Sæviðarsundi (Bospor-
us) árdegis í dag. Varð árckst-
ur milli olíusldpanna „World
Harmony“ (grískt, 21 þús.
tonn) og „Peoer Zbravic“ (ca.
Nýtt gull-
smíða-
verkstæði
Fyrir rúmri viku opnaði
Hjálmar Torfason, gullsmiður,
verzlun og gullsmíðaverkstæði
að Laugavegi 28. Hjálmar lauk
gullsmíðanámi fyrir þrem ár-
um hjá Óskari Gíslasyni, og
hefur starfað við gullsmíðar í
sjö ár.
Verzlunin, sem er á annarri
hæð, (gengið inn frá undir-
gangi), er smekkleg og skemmti
lega inréttuð. Hjálmar hefur
þar til sýnis ýmsa handsmíð-
aða silfurmuni, sem hann hef-
ur sjálfur teiknað og útfært. —
M. a. selur hann af silfurmun-
um; armbönd, ígrept íslenzk-
um steinum, skyrtuhnappa-
og nælur, hálsmen og fleira.
Silfurmunir hans eru var#i-
aðir og fallegir, og eru þeir
flestir „model“.
| lfi þús. toun). Eldur kom strax
I upp f skipunum og rak þau á
tyrkneska flutningaskipið —
„Tarsus“ (9.451 tonn) og kvikn-
aði jafnskjótt í því einnig. Log
aði sjórinn nú á stóru svæði og
barst fljótlega að ströndinni,
en íbúar þar máttu komast
undan áður cn híbýli þeirra
urðu eldinum að bráð.
notuð til að auðga fáa útvalda
í höfðingjastétt landsins.
Yfirlýsing krónprinsins hér
að lútandi kom fram nokkru
eftir að orðrómur kom á kreik
í borgum á Vesturlöndum um
að stjórnarbylting hefði verið
gei’ð í Addis Abeba. Síðari
hluta dagsins heyrðu tveir ensk
ir útvarps-áhugamenn frétt í
áhuga-útvarpsstöð í Addis
Abeba og birtu síðdegisblöðin
í London síðan fréttirnar.
Deildu um
SÍÐDEGIS í gærdag varð
harður árekstur á gatnamótum
Skúlagötu og Vatnss»tígs.
Sendiferðabíll af Garant-gerð
ók austur Skúlagötu og hugð-
ist ökumaðurinn beygja upp
Vatnsstíg. En vestur Skúlagötu
kom lítill bíll af Reno-gerð og
skipti það engum togum að þeg
ar ökumaður sendiferðabílsins
beygð'i upp Vatn,ss(íg, lenti
fólksbíllinn á vinstri hlið hins
og stór skemmdist. Skemmdir
urðu litlar á sendibílnum.
ÞEIR Jón Pálmason og
Garðar Halldórsson skiptust
á nokkrum köpuryrðum í
Neðri deild í gær, þegar rík
isreikningurinn 1958 var til
2. umræðu í deildinni. Urðu
þkurðgröfur Vélasjóðs þefm j
aðallega að deiluefni, sem
varla mun þó rista djúpt!
Málinu var annars vísað til j
3. umræðu, svo og frumvarpi
um ríkisborgararétt og frum
varpi um veð. Fjórða málið,
sem deildin tók fyfir á fund
inum, var frumvárpið um1
menntaskóla Vestfirðinga á
ísafirði. Hannibal Valdimars
son, 1. flutningsmaður, mælti
fyrir frumvarpinu, * sem var :
vísað til 2. umræðu og'
menntamálanefndar.
Marokkó, 14. dts.
BRETAR eru nú farnir að
búa til „pramma“ úr
gúmmí og öðrum slíkum
gúmmí og öðruin slíkum
efnum til að flytja í benz
ín, olíur og önnur fljót-
andi efni.
Þessi flutningatæki
eiga að geta flutt allt frá
15 tonnum og upp í 320
'é£
tonn. Japanir, Þjóðverjar
og Astraílumenn liafa þeg
ar gert pantanir.
Myndin sýnir 100 tonna
„pramma“, sem dregin er
af togbáti. „Pramminn“
er fylltur lofti, en væri í
lionum vökvú væri liann
nær því í 'kafi.
(NTB).
BOURGIBA, forseti Mar-
okkó, ritaði Hanunarskjöld að-
alforstjóra SÞ bréf í dag, þar
sem hann gagnrýnir störf SÞ
í Kongó. Segizt liann munu
kveðja heim her sinn frá Kongó
ef SÞ breyti ekki stefnu sinni.
Soekarno Indónesíu-forseti
hefur skrifað Tito forseta Júgó
slavíu og lýst yfir ánægju sinni
með heiinkvaðningu júgóslav-
neska SÞ-hersins.
IMMIWMVMWMWWMWWWMWMMVUMHMMUMWUMMWMV
Nokkrar óe
Alsír
ir enn /
KJARNAVOPN
HOLLANDI
Haag, 14. des.
NTB.
Wisser, landvarnarráðherra
Hollands, svaraði fyrirspurn
frá kommúnistaþingmanni í
neðri deild þingsins í dag um
það hvort kjarorkuvopn væru
geymd þar í landi. Svaraði
hann spurningu þessari játandi
og kvað þau myndu notuð ef
árás yrði gerð á landið. Ekki
vildi hann segja hvar sprengj-
urar eru geymdar í landinu,
en kvað slík vopn vera þegar
komin til annara NATO-landa
í Vestur-Evrópu. Kvað hann
þessi vopn vera í Hollandi á
vegum NATO. Ekki vildi hann
svara spurningum um það,
hvort hollenzkar flugvélar
hefðu flogið með slíkar sprengj
ur.
París, 14. des.
(NTB—REUTER
Franskt herlið og lögregla
notaði táragas og sérstakar ó-
eirðasprengjur til að dreifa
mannfjölda, er saman safnaðist
í Alsírborg í dag. Varð mann-
söfnuður í Alsírborg í dag. —
Var mannsöfnuður sá í hverfi
Serkja í borginni en þar höfðu
óeirðir geisað í alla nótt. —
Frakkar segja engan hafa fall-
ið í aðgerðum hers og lögreglu
en Serkir kveða nokkra menn
hafa fallið.
Að öðru leyti var allt kyrrt í
landinu í dag. Þó urðu einnig
nokkrar óeirðir í hafnarbænum
Oone. Fór þar fram útför nokk-
urra Serkja, er fallið höfðu og
fór allt vel fram. Nokkrir Serk-
ir fóru um í bifreið og veifuðu
þeir fána útlagastjórnarinnar.
Lögreglan hugði á handtöku
þessara manna og fór þá allt í
bál og brand.
Frakklandsforseti de Gaulle
hélt ráðuneytisfund í dag. —
Mun hann hafa skýrt þar frá
Alsír-för sinni. Ætlað er, að
hann muni næsta þriðjudag á-
varpa þjóð sína í sjónvarpi og
útvarpi og leggja mál þessi fyr-
ir hana.
Rafmagnið
hækkar um
25°jo í Kfl.vik
Keflavík, 14. des.
Á FUNDI bæjarstjórnar Kefla-
víkur í gærkvöldi lá fyrir til-
laga frá rafveitunefnd Kefalvík
ur um 22% hækkun rafmagns-
verðs, sem að viðbættum sölu-
skatti 3%, þýðir 25% hækkun
á rafmagnsverðinu.
Hækkunartillagan var tekin
fyrir á fundinum og samþykkt
með 4 atkvæðum íhaldsmanna.
Alþýðuflokksmenn í bæjar-
stjórn börðust gegn tillögunni
s. 1. vor, þegar hún kom fyrst
fram. Mæltu þeir enn á móti
þessari rafmagnshækkun á
fundinum í gær og greiddu báð-
ir atkvæði gegn henni. Fluttu
þeir frestunartillög'u, en ekki
náð hún fram að ganga. — H.G.
Alþýðublaðið — 15. des. 1960 3