Alþýðublaðið - 15.12.1960, Síða 16

Alþýðublaðið - 15.12.1960, Síða 16
 41. ár. — rimmtudagur 15. desember 1960. — 286. tbl. Tveir piltar rjótast út úr fangelsi TVEIR piltar brutust út úr ! fangelsi lögregluvarðstöðvar- innar í Keflavíkurkaupstað í gærdag. Þeir heita Kristinn Traustason og Agnar Hannes- son. Þegar blaðið fór í prent un voru þeir ófundnir. Kristinn og Agnar notuðu tækifærið til að brjótast út úr j fangelsi lögregluvarðstofunnar j í gærdag á milli klukkan 3 til 4. þegar lögregluþjónarnir sem voru á stöðinni voru kallaðir Þeir telja bílana VEGFARENDUR í Reykja vík hafa undanfarna daga veitt athygli ungum mönn- um, sem staðið hafa á götu- hornum talið bíla og ritað í bækur. Eru þetta stúdent- ar, sem hafa verið fengnir til að gera yfirlit yfir um- ferð á vissum götum og götuhornum, þar sem ráð- gert er að setja upp götu- vita. Hafa þeir viss eyðu- blöð, hvar þeir á skrá, hve margir bílar fara yfir gatna mótin og úr hvaða átt um- ferðin kcmur. Er þetta gert til að hægt verði að stilla skiptingu Ijósanna á götu- vitunum, þannig að hún samræmist umferðinni sem bezt. Myndin er af tveim ,yteljurum“, seni sátu á járnstólum í anddyrj Al- þýðuhússins og töldu bíla. lEfri deild kýs í Norðurlandaráð EFRI deild alþingis kaus í gær tvo fulltrúa og jafn tmarga varafulltrúa úr hópi þingmanna í Norðurlanda kosningu. Kosnir voru: af A- lista Magnús Jónsson og Ó1 afur Björnsson til vara, en af B-lista Ásgeir Bjarnason og Ólafur Jóhannesson til vara. Urðu þeir sjálfkjörnir. F J ARH AGSAÆTLUN fyrir Reykjavíkurbæ árið 1961 verður tekin til síð ari umræðu í bæjarstjórn Rvíkur í dag. Verða þá teknar fyrir breytingatil' lögur, er borizt hafa. Magn ús Ástmarsson bæjarfull trúi Alþýðuflokksins hef ur flutt nokkrar breyting artillögur og ganga þær fyrst og fremst í þá átt að spara á ýmsum útgjalda- liðum áætlunarinnar. Breytingatillögur Magnúsar við gjaldaliðina eru þessar: Manntalsskrifstofa bæjarins og hagfræðiskrifsofa verði sameinaðar og kostnaður á- ætlaður 350' þús. í stað 470 þús. Innjþeimtukostr’pður verði áætlaður 330 þús. í stað 430 þús. Kostnaður við skipulag og mælingar verði 125 þús í stað 150 þús., bifreiðar 500 þús. í stað 680 þús., skýxslu- vélar 700 þús í stað 830 þús., bifreiðar og bifhjól 800 þús. í stað 1 millj., liðurinn varzla kaupstaðalandsins, 130 þús, falli niður, liðurinn ýmislegt (kaup nuddara, auglýsingar, á höld lögreglu o. fl.) verði 60 þús. í stað 120 þús., bifreiða kostnaður 6 rannsóknarlög- reglumanna verði óætlaður 150 þús. í stað 250 þús., bifreiðá- kostnaður, slökkviliðs (hluti) verði 75 þús. í stað 125 þús., kostnaður við vinnumiðlun á- ætlist 350 þús. í stað 400 þús., sjúkrasamlagsiðgjöld áætlist 200 þús. í stað 300 þús. með lag með skilgetnum börnum á ætlist 2.750.000 í stað 3.500. 000 kr. og meðlag með óskil- getnum börnum áætlist 4.5 millj. í stað 5.5 millj. 'Þá leggur Magnús einnig fram nokkrar breytingatillög- ur við tekjulið áætlunarinn- ar. Ganga þær allar í þá átt að áætla tekjurnar nokkru ihærri en gert er, en tillögur Magnúsar um þetta byggjast á þeirri reynslu, að tekjurnar hafa alltaf reynst meiri en á ætlunin, enda yísvitandi gerð áætlun um lægri tekjur en bú ast má við. út í árekstur, sem hafði orðið þar skammt frá. Fangarnir brutu upp hurð á klefunum og komust síðan auð veldlega út af lögreglustöðinni. Þegar lögreglan kom aftur, varð hún fljótlega vör við það sem gerzt hafði. Ráðstafanir voru strax gerð ar til að ná föngunum aftur og haft samband við lögregl- una í Reykjavík og Keflavík urflugvelli. Skömmu áður en blaðið fór í prentun voru strokufangarnir enn ófundnir. Ekki er vitað hvað hefur orð dð af þeim, en talið er lík legt, ■ að þeir hafi reynt að komast til Reykjavíkur. Piltarnir, sem eru báðir um tvítugt, höfðu verið settir innt daginn áður vegna gruns umi innbi'ot og þjófnaði. Þeir eru báðir frá Sandgerði. KeflavíkurlÖgreglan Ihefur slæma aðstöðu til að geyma fanga o2 eru þeir venjulega fluttir eftir sólarlhringinn til Ilafnarfjarðar eða Reykjavik- ur. Piltarnir höfðu því lík- lega verið fluttir síðar um daginn í annan hvorn staðinn. Valdimar endurkosinn í BLAÐINU Lögberg-Heims- kringla segir nýlega, að Vest- ur-íslendingurinn Valdimar Björnsson hafi verið kosinn fé- hirðir Minnesota-ríks (fjórmála ráðherra). Lætur engan þröngva sér ^ ÞJÓÐVILJINN lætur liggja að því í gær, að Einari Jóni Karlssyni hafi verið þröngvað til þess að snúast gegn lista kommún- ista. Þeir sem þekkja Ein- ar Jón, vita þó fullvel, að hann er ekki slíkur maður að hann láti ncinn þröngva sér til eins eða neins. Virð- ast kommúnistar þekkja frambjóðendur sína í Sjó- mannafélaginu illa, ef þeir reilcna með, að unnt sé að þröngva þeim tii þess að snúast gegn lista þeirra. ÍMMWtWHWMMMMMWWi

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.