Alþýðublaðið - 31.12.1960, Síða 5
aramo
Framhald af 3. síðu,
á nokkrum útflutningsvörum
sjávarútvegsins, svo sem fiski-
mjöli, síldarmjöli og lýsi, sér-
taklega á mjölinu, þar sem
verðfallið nemur yfir 40 %,
vegna mikils og skipulagsl.it-
ils framboðs á þessari vöru
frá öðrum löndum. Hefir allt
þetta valdið útvegsmömtum
þungum búsifjum. Ríkis-
stjórnin hefir ákveðið að
freista að draga úr þessum erf
iðleikum með afnámi útflutn-
ingsskatts, lækkun vaxta og
útvegun lána til langs tíma,
til greiðslu lausaskulda.
Veðurfar hefir verið hag-
stætt á árinu og gæftir góðar.
Veturinn var snjóléttur og
inildur, það voraði snemma
og var áfellalaust, grasspretta
og nýting heyfengs gekk vel
!hjá bændum, og veturinrí. það
sem af er, mildur og snjólít-
ill fram í desembermánuð. Má
því hiklaust segja að árið hafi
verið gott íslenzkum landbún-
aði.
Með gengisbreytingunni,
sem gerð var á árinu, var num
in á brott forréttindaaðstaða
erlendra manna til sölu vissra
tegunda iðnaðarvara og iðn-
aðarstarfa hér á landi, svo
sem t. d. í skipasmíðaiðnaðin-
<um o. fl., og grundvöllur lagð-
ur að því að ýms iðnaðarfyr-
irtæki gætu aukið starfsemi
sína. Skýrslur um iðnaðar-
starfsemina hérlendis eru að
vísu af skornum skammti og
koma seint fram, þannig að
ekkart yfirlit er til um þessa
starfsemi á árinu, en gera má
ráð fyrir að hún hafi verið
svipuð og að undanförnu. Þó
mun eitthvað hafa borið á að
með frjálsari innflutningi hafi
nokkur iðnfyrirtæki átt í vok
að verjast.
Byggingaiðnaðurinn mun
sumstaðar hafa dregizt sam-
an, vegna hækkaðs verðlags
og óvenjulegra og jafnvel ó-
eðlilega mikillar byggingar-
starfsemi undanfarin ár. Þó
getur þessi samdráttur tæpast
verið mikill, því að í skýrslu,
sem gerð hefur verið um
byggingastarfsemina í landinu
núna rétt fyrir áramótin, er
gert ráð fyrir að lokið verði á
árinu smíði ca. 1500 íbúða og
er það mjög svipuð tala og
undanfarin ár. Þá er og í sömu
skýrslu gert ráð fyrir að nú
um áramótin verði í smíðum
3500—3600 íbúðir, og er það
einnig mjög svipuð tala og að
undanförnu. Fjármagn það
sem húsnæðismálastjórn hafði
til útlána á árinu hefur num-
ið um 70 milljónum króna, og
hefir aldrei komizt svo hátt
áður.
Alþýðuflokkurinn hélt 27.
þing sitt dagana 22.—25. nóv-
ember síðastliðinn. Á þessu
þingi ríkti mikill einhugur um
starf o g stefnu flokksins.
Menn gerðu sér ljósa grein
fyrir því að flokkurinn hafði
takizt á hendur mikinn vanda
með því að ganga til stjórnar-
samstarfs um hina vandasömu
lausn efnahagsmálanna. En
menn gerðu sér líka ljóst að
lausnin hefði getað orðið önn
ur og þungbærari, ef flokkur-
inn hefði þar hvergi nærri
komið, eða horfið hefði verið
að öðrum ráðum. Voru þing-
fulltrúar einhuga um að
standa fast að baki ríkisstjórn
inni um aðgerðir þær, sem á-
kveðnar hafa verið, og hvika
hvergi, hvað sem líður and-
róðri og óábyrgri afstöðu
stjórnarandstöðunnar Heiti
ég á allt Alþýðuflokksfólk að
gera slíkt hið sama.
Ég óska öllum Alþýðu-
flokksmönnum og konum góðs
og farsæls nýárs og þakka
þeim störfin fyrir flokkinn á
liðnum árum, og landsmönn-
um öllum óska ég árs og frið-
ar.
Emil Jónsson.
Brúttótekjur
aí Herjólfi
á 5. milljón
ÞAÐ skal tekið fram til að
f.yrirbyggja misskilning, að í
frétt blaðsins í gær, þar sem
sagt var frá eigin tekjum Herj-
ólfs', Vestmannaeyjaskipsins,
var að sjálfögðu átt við brúttó-
tekjur, þ. e. flutningsgjöld fyr-
ir -vörur og farþega. Þær námu
4.120 þús. kr. fyrstu H mánuði
þessa árs. _
Spilakvöld
fellur niður
SPILAKVÖLD FUJ á Akra-
nesi, sem auglýst hefur verrð í
blaðinu og átti að fara fram í
Hótel Akranesi á nýársdag —
verður fellt nrður. Neyddist fé-
lagið til þess, þar sem því var
á síðustu stundu neitað um um-
samið húsnæðr fyrir spilakvöld
ið.
Þeir sefa
ekki
ALÞÝÐUBLAÐEÐ átti í gær
tal við Pál Magnússon formann
Félags stóreignaskattseigenda
út af frétt blaða um ályktun
Mannrétindanefndar Evrópu í
sóreignaskattsmálSnu. — Páll
Magnússon sagði:
„Fréttin er rétt hvað það
snertir að nefndin vísaði mál-
inu frá, en við vitum ekki enn
um forsendur eða röksendur
eða rökstuðning nefndarirmar
og eigum von á úrskurði hean-
ar og forsendum hans bráðlega.
Nefndin hafði málið til athug-
WWWWWMMIIWMIMMWW*
125 ferðir
á þessu ári
Á árínu, sem nú er að
líða, hefur Björn Pálsson,
flugmaður, flogið 125
sjúkraflug. Eru þetta
nokkru færri ferðir en á
undanförnum árum, og
stafar það af því að Björn
var fjarverandi 5 vikur á
s. 1. sumri. Lengsta ferð
hans var trl Grænlands,
en þangað sótti hann fár
veikan mann. Undanfarna
daga hefur verið óvenju-
lega mikið að gera hjá
Birnr, og í gær fór hann
tvær ferðir.
WWWWWWWWWttWWMWM
unar í nærri eitt og hálft ár og
ræddi það á þrem formlegum
fundum. Mun skoðanamunur
hafa verið mikill og litlu munað
hver úrsliti yrðu.
Páll telur Iíklegt að það hafi
riðið baggamúninn, að nsfnd-
inni var kunnugt, að lögfræð-
ingamír, sem fluttu hið áfrýj-
aða mál fyrir dómstólunum hér
heima, lögðust á móti málskot-
inu og gáfu þar með til kynna,
að eignatökulögin nr. 44/1957
væru að þeirra áliti eftir ástæð
um hvorki brot á íslenzku
stjórnarskránni né mannrétt-
indasáttmála Evrópuráðsins.
Ef á þarf að halda sagði Páll
enn, mun verða mögulegt að á-
frýja aftur til nefndarinnar
einhverju af þehn nærri 50 mál
um, sem en eru óútkljáð fyrir
Hæstarétti, máli þar sem órétt-
mæti laganna kemur enn ber-
legar í ljós en í máli Guðmund-
ar Guðmundssonar.
Páll Magnússon segir að rík-
isstjórninni hafi verið sent rök-
stutt bréf 29. okt. s. 1. um að
láta afnema á yfirstandandi Al-
þingi ,,þau algerlega óhæfu slit
ur“, sem eftir eru af þessum
lögum, og að í bréfinu sé vara-
karfa um það, að afnumin verði
að minntsa kosti öll þau ákvæði
laganna, sem Hæstiréttur seg-
ir í dómi sínum frá 29. nóv.
1958 að geri skattþegnunum
„mishátt undir höfði".
/ a
| DagsbrúnarA
fundi
Þegar Eðvarö Sigurðs-
son hafði lokið um klukku
stundar framsöguræðu á
fundi Dagsbrúnar í gær
gaf fundarstjórr orðið
laust. Jón Hjálmarsson
kvaddi sér hljóðs. En ein-
hver kommi bar þá fram
tillögu um það, að skera
ræðutíma niður í 10 mín.
á mann. Fundarstjóri
taldi sanngjarnt, að Jón
fengi að tala fyrst en flutn
rngsmaður tillögunnar
tók það ekki í mál. Tóku
margir harðir kommar
undir það og töldu greini-
lega óþarfa að láta fleiri
tala. Var trllagan því bor
in upp og samþykkt. —
Merkilegt að kommarnir
skyldu ekki hreinlega
samþykkja að liúka um-
ræðum svo að fleiri kæm
ust eltki að!
tWWWMWMMWMWMWWWWt
Útburðarmál
Framhald a£ 16. síðu.
leigu fyrir rúmum þremur ár-
um, Iofaði eigandi að stand-
setja hana, en hefur aldrei
hafzt að í þá átt að því er leigu-
taki segir. Borgarlæknir hefur
úrskurðað, að íbúðin sé óíbúð-
arhæf, nema mikil standsetn-
ing fari fram og matsmenn bæj-
arins hafa metið leigu fyrir í-
búðina 400 kr. á mán.
Eigandi íbúðarinnar hefur
þrátt fyrir þetta, gengið mjög
hart að leigutaka að rýma hús-
næðið, enda þótt hann telji sig
hafa greitt fyrir þetta ár. í gær
fluttist leigutaki búferlum í fok
heldá íbúð, sem hann hefur
fest kaup á með aðstoð ýmissa
góðra manna, að því er hann
segir, en með því munu ekki
öll kurl komin til grafar. Mun
blaðið skýra nánar frá þessu
máli síðar, ef tilefni gefst.
.
Dagsbrún
Framhald af 16. síðu.
er um 200 kr. á viku eða 20%.
Hækkunin er svipuð hlut-
fallslega í fimm fyrstu
launaflokkunum en í hinum er
hækkunin um 16,7%. Yfirvinna
greiðist með 100% álagi á tíma
kaup í lausavinnu, sem verði
28,13 kr Gert er ráð fyrir að-
eins einum yfirvinnutaxta.
4. Hækki verðlag um 3% eða
meira falli öll ákvæði samnings
ins úr gildi.
5. Orlof verði 18 virkir dag-
ar f lágmarki og lágmarks-
orlofsfé verði 6% af öllu kaupi
og einnig yfirvinnu.
6. Lágmarkskaup mánaðar-
kaupsmanna verði 5.150 kr.
Er Eðvarð hafði lokið máli
sínu tók Jón Hjálmarsson til
máls. Hann sagði, að ýmis atr-
iði í samningsuppkastinu væru
til bóta svo sem ákvæðið um
fast vikukaup enda hefði hann
margoft hreyft því máli i
Dagsbrún. Hins vegar kvaðst
Jón efast um það, að almenn
grunnkaupshækkun nú mundi
færa verkamönnum varanlegar
kjarabætur. Jón sagði, að hann
vildi feginn að atvinnuvegirnir
gætu tekið á sig 20% kaup-
hækkun til handa verkamönn-
um, en hins vegar teldi hann
gagnslaust, að kaupið hækkaði
um 20% ef þeirri hækkun yrði
síðan hleypt út í verðlagið.
Reynslan hefur sýnt, sagði
Jón, að grunnkaupshækkanir
síðustu ára hafa komið verka-
mönnum að litlu haldi. Hver
svo sem ríkisstjórnin hefur
verið, hefur kauphækkunin
horfið í hækkandi verðlagi. —
Þess vegna þurfum við að fara
inn á ríýjar brautir í kjaramál-
um sagði Jón. Við eigum a3
taka upp ákvæðisvinnufyrir-
komulag sem víðast, hélt hann
áfram. Kvaðst Jón vilja beina
því til stjórnar Dagsbrúnar að
hún athugaði möguleikana á að
taka upp ákvæðisvinnu. Sagðist
Jón vera þess fullviss að verka
menn gætu fengið meiri kjara-
bætur gegnum ákvæðisvinnu-
fyrirkomulagið heldur en með
því að fara leið kauphækkunar.
Bj. G.
Bærinn vill
Framhald af 16. síðu.
allt í rétt horf, því að minni
að fullgera manntalið og færa
háttar villur og yfirsjónir hafa
slæðzt inn, eins og í önnur
mannanna verk.
Sveinn tók fram að lokum,
að fólk hafi greinilega tekið
manntalið alvarlega og léti t. d.
vita, ef það hefði hvergi verið
tekið á skrá, Er slíkur áhugi að
sjálfsögðu mjög til fyrirmyndar
og sýnir, að menn vilja ekki
láta „afskrá“ síg úr þjóðíélag-
inu. þrátt fyrir skatta og skyld-
ur, sem því um líku fylgir.
FRÍMERKI
Allar tegundir af notuðum íslenzkum frímerkj-
um keyptar hærra verði en áður hefur þekkzt.
WILLIAM F. PÁLSSON.
Halldórsstaðh', Laxárdal, Suður-Þingeyjarsýslu.
Alþýðublaðið' — 31. des. 1960 5