Alþýðublaðið - 21.01.1961, Síða 10

Alþýðublaðið - 21.01.1961, Síða 10
VVWV>WtWWWVWVWWVWWWWMWW WVMVmVW WWWVVWiWUViM'MVMAWVVVVVVM Kitstjóri: Örn Eiiisoa Fhmakeppní SKRR háb um helgina í GLUGGUM Verzl. L. H. Míiller eru þessa dagana út- stilltir 10 silfurbikarar, sem eru farandbikarar í hinni ár- legu firmakeppni Skíðaráðs Reykjavíkur, og er þetta í fyrsta sinn, sem keppt er um jafn marga silfurbikara í firmakeppni Skíðaráðsins. ‘ Um 30 beztu Skíðamenn Reykjavíkur taka þátt í keppn inni. Mótstjóri er Bjarni Ein- arsson, þaulvanur skíðakappi, sem nýlega hefur orðið fyrir meiðslum, en Skíðaráðið hefur verið svo lánsamt að fá hann samt sem áður til að standa fyrir mótinu. Er þetta í fyrsta skipti sem einn af okkar beztu skíðamönnum hefur á hendi mótstjóm. Líkur eru fyrir því, að Bjami muni taka þátt í öllum öðrum skíðamót- um á vetrinum, ásamt lands- móti skíðamanna. Brautarstjóri er okkar vin- saeli skíðakappi Stefán Kristj- ánsson, sem undanfarandi hef ur annast kennslu fyrir hönd Skíðaráðsins. Hinn gamalkunni skíðamað- ur Ármenninga, Ólafur Þor- steinsson, mun. verða kynnir mótsins. Eins og áður hefur verið skýrt frá, eru 100 firmu skráð til keppninnar. Fyrirhugað var, að keppnin færi fram í brekkunni við Skíðaskálann í Hveradölum, en þar sem útlit er fyrir að ekki verði nægilegur snjór, mun keppnin fara fram í Hamragili við hinn nýreista skála ÍR-inga. Ferðir á mótstaðinn eru auglýstar frá BSR. Að mótinu loknu verður sameiginleg kaffidrykkja í Skíðaskálanum í Hveradölum, fyrir firmun og keppendur og starfsmenn mótsins. Ungir íþróttamenn /. ÞEIR, sem á undanförmun árum hafa „sótt völlinn“ og horft á knattspyrnukapp- leiki, hvort heldur er í Is- Iandsmóti eða milliríkja- keppni, hafa veitt óskipta athygli ungum Ieikmanni, sem öðrum fremur hefur oft gert þeim glatt í geði með snerpu sinni, hraða og bar- áttuhug. Þessi ungi knatt- spyrnukappi heitir Orn Steinsen, Reykvíkingur í húð og hár, fæddur „fyrir vestan Iæk“ og segir það sitt um það, undir hvaða fé- Iagsmerki hann niun hafa skipað sér. Örn er rúmlega tvítugur, fæddur 11. jan. 1940, sonur hjónanna Vil- helms Steinsen bankafull- trúa og konu hans, Krist- ensu. Örn hefur allt frá barns- aldri haft mikinn áhuga á íþróttum, einkum heillaðist hann fljótt af knattspyrn- unni. Langt inni í Vesturbæn- um, við Framnesveginn, var dálítill völlur, sem brátt varð ein aðalbækistöð Arn- ar og félaga hans, svo nærri stappaði að telja mætti þar annað heimili þeirra, og þyrftu foreldrarn- ir eða aðrir að hafa upp á snáðunum, mátti ganga að þeim þar vísum alla daga. Örn kom fyrst fram í al- vöru, á knattspyrnusviðinu árið 1954 er hann hóf að leika með KR í 3. fl. Lék þá þegar ekki á tveim tung- um, að hér var á ferðinni mikið knattspyrnumanns- efni. Er hann hafði svo ald- ur til, fór hann í 2. fl. og loks árið 1958 hóf hann að leika með meistaraflokld félags síns, en þar hefur Iiann jafnan Ieikið hægri útherja og gert þeirri stöðu betur skil en flestir aðrir. Árið 1959 var Örn með að vinna íslandsmótið fyrir KR og varð þá íslandsmeistari í fyrsta sinni. Þá hefur Örn leikið 7 sinnum í landsliði íslands, í fyrsta sinn árið 1959, sem hægri útherji og vissulega brást hann ekki þar frekar en endranær. — Æðrulaus og jafnhugaður hvernig sem stríðið þá og þá var blandið, snöggur og snar jafnt í sókn sem vörn. Auk knattspyrnunnar hef ur Öm tekið þátt í öðrum íþróttagreinum, einkum hlaupum, 1500, 200 og 100 stikna, cnda sérlega snarpur á sprettinum, svo sem við- brögð hans „á kantinum“ sanna. Einnig hefur hann lagt stund á handknattleik sem hann telur skemmtileg- astan íþrótta. Hann liefur og keppt bæði í hlaupum og handknattleik fy.rir félag sitt. Á árunum 1955—56 lagði Örn og tveir félagar hans, þeir Þórólfur Beck og Skúli B. Ólafs, mikla rækt við knattþrautir KSÍ. Hlutu all ir að launum fyrir erfiði sitt gullmerki sambandsins, sem er æðsta viðurkenning- armerkið af þessu tilefni. Kvað Öm knattþrautirnar vera hina ágætustu undir- stöðu hverjum knattspyrnu- manni til að byggja á, en þó því aðeins að vel og dyggilega sé að þeim unnið við æfingar allar. Hér komi það sama til og við annað nám, samvizkusamleg vinna. Annað sé gagnslaust. Vissulega má telja með sanni, að allar íþróttir hafí til síns ágætLs nokkuð, seg ir Örn, en ég tel enga jafn- ast á við knattspyrnuíþrótt- ina, bætir hann við, hún er allra íþrótta blæbdigða;rík- ust og hefur upp á flest skemmtilegustu tilvikin að bjóða. En eins og sagt er ,að enginn verði óbarinn biskup, má fullyrða að enginn verð- ur vel hlutgengur á knattspyrnuvellinum nema hann leggi sig allan fram. Enginn skyldi telja sig um of öruggan með stöðu sína í flokki, þar á til að koma samkeppni, byggð á árvekni, dugnaði og samvizkusemi við æfingar, segir þessi Framh. á 14. síðu aWVVUVVViVWWVmVWWVVWWVMUMWW VVUVVVWWVWVVWVVVVVVVVVWVmMWVMVVVVV Vals- mófiö i kvöld. Keppnin hefst kl. 8,15. i Þau félög, sem tapa eru úr leik ■ og er búizt við spennandi j keppni. ■ í Afmælismót Vals í handknatt leik heldur áfram að Háloga- landi um helgina og verður keppt bæði í kvöld og annað VWHWVWWWWWWVWWWWWW VIÐ skýrðum frá því nýlega, að rússneskur fimleikaflokkur kvenna hefði nýlega sigrað bandarískar, en þær hafa ferðast um Banda- ríkin nýlega og sýnt fim- leika við mikinn fögnuð áhorfencía. Daman á myndinni heitir Margar- ita Nikolayeva og er ein af þeim beztu í rúss- neska flokknum. Rúss- nesku stúlkurnar sigruðu í keppninni með 153,199 stigum gegn 149,967. HWWMHWVWHVWIMWVWWVW SÆNSKA íþróttablaðið birti bezíu afrek í stökk greinum í heiminum sl. ár sl. miðvikudag. — í þriggja d'álka fyrirsögn segir, iað Ísíendingur sé fremstur allra Norður- landabúa í einstakri grein, en slíkt hefur aldrei skeð áður. Er þar átt við þrístökksafrek Vilhjálms Einarssonar — 16,70 m. Sá næstbezti er Svíinn Dan Waern, en haun var þriðji í 1500 m hlaupi í fyrra. 21. jan. 1961 — Alþýðublaðið

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.