Alþýðublaðið - 22.01.1961, Side 1
VEÐRIÐ í Washington að-
faranótt föstudags var svo
slænit, að um skeið leit út
fyrir að fresta yrði útihátíða-
höldum í sambandi við em-
bættistöku Kennedýs. Þrjú
þúsund manns vann að því um
nóttina að ryðja snjó af aðal-
götum borgarinnar.
Alþýðublaðið fékk þessar
upplýsingar í gærdag í stuttu
símtali við Thor Thors ambassa
dor. Hann og frú Ágústa
kona hans voru að sjálfsögðu
rneðal gesta þegar Kennedy
sór embættiseiðinn og síðan í
oþinberri hádegisveizlu í Blair
House og mikilli kvöldveizlu
í Mayflower höteli. Frú Ágústa
var á skautbúningi.
Kennedy, ráðiherrar hans og
konur þeirra komu í May-
flower-veiziluna cg 'heilsuðu
upp á gesti. Þetta kvöld voru
opinberar veizlur haldnar á
fimm stöðum í Washington og
kcmu Kennedyhjónin í þær
allar. Mun nýi forsetinn ekki
hafa komizt í háttinn fyrr en
um þrjúleytið, en að skrifborði
sínu var hann engu að síður
kominn fyrir tíu daginn eftir.
Thor Thors ambassador hef-
ur þekkt Kennedy forseta per
sónulega um alllangt árabil.
Þá kynnist hann einnig, Jack-
ie“, konu forsetans, þegar bún
starfaði sem blaðamaður í
Washington.
Þetta er í sjötta skipti sem
Thor fir viðstaddur þegar
bandarískur forseti sver em-
bættiseið sinh. Hann var tvisv
ar við embættis'tcku Rosevelfs,
hann var meðal gesta þegar
Truman tók við stjórnartaum-
unum og hann sá Eisenhower
sverja eiðinn 1952 og aftur
1956.
í símtalinu við Alþýðublað-
ið kvað sendiherrann emþsett-
istökuna hafa verið hátiðlegí
og virðulega að vanda.
Á pal'linum þar sem Kenm
dy sór eiðinn sátu þeir fremsl
ir forsetaefnið og fráfarandi
forseti, varaforsetaefnið og fiiÉ
farandi varaforseti, þ. e. Nix-
on. Með þeim voru konm
þeirra.
í nsestu röð kom fjölskylda
nýja forsetans, en þá dómarar
hæstaréttar og diplómatar. Á
sendiherrahekOc var skipað eft
ir embættisaldri og voru ís-
lenzku sendiherrahjónin þar
í fremstu röð, enda hafa að-
11 af 94 erlendum sendi-
herrum í Washington lengri
embættisferil að baki þar á
staðnum en Thor Thors.
Thor tjáði Alþýðublaðinu,
að Eisenhower hefði fyrstur
óskað Kennedy til hamingju
er hann hafði svarið embætt
iseiðinn. Eftjr það höfðu þeir
stólaskipti, cg sat hann nú
fremstur á paHinum hinn nýi
forseti.
Thor Thors sagði að lokum,
að ailt hefði gengið að ósk-
um í sa'mbandi við forsetaskipt
in þrátt fyrir herfilegt veður
úrlit.
En svo mikili Var.mannfjöld
ínn og svo mikiil snjórinn,.að
fólk Var fimm til sex klukku-
tíma að komast heim til sín
vegalengdir sem venjulega má
fara á hálfri stundu.
KEISARINN
SEM BEITIR
SVARTRI
GESTAPO
7. SÍÐA
SÁTT ATILLAGA
Á DÖFINNI?
SAMNINGAFUNDUR í sjó-
niannadeilunni stóð til kl. 4
í fyrrinótt. Ekki boðaði sátta
semjari nýjan fund í lok þess
fundar eins og veiija hefur
verið til og er talið,' að ástæð
an sé sú, að í unSirbúningi
sé sáttatillaga. Má ínú heita,
að samkomulag hafþnáðst um
öll önnur atriði eti aflapró-
sentuna og tryggingúna.
I
nHMMUMHtMHMtHMmim*
Á fundinum í fyrrinótt.
Lækkuði sjómenn enn kröfu
sína um aflaprósentuna. Fóru
þeir með kröfu sína ni$ur í
33 % en áður höfðu þeir gert
kröfu á 33.5%. Útvegsmenn
halda hins vegar fast við 27.5
% sem hámark.
| HMMttMMMMMMMMMMMM.
MIÐLUNARTILLÖGUR.
Samkvæmt vinnulöggjöfinni
hefur sáttasemjari ríkisins
heimild til þess að bera fram
miðlunartillögu, beri samninga
umleitanir milli dei'luaðila
ekki árangur. Skal sl'ík miðl-
unartillaga lögð fyrir félög
launþega og atvinnurekenda,
er í deilu eiga. Sátta'semjari
skal þó ráðgast við fulltrúa
að:la áður en miðlunartillag
an er borin fram. Miðlunar-
tillaga telst felld, ef minnst
50 % af greiddum atkvæðum
hjá hvcrum aðila eru á móti
henni enda hafi minnst 35%
atkvæðisbærra manna greitt
atkvæði. Á móti hverjum ein
um af hundraði, sem tala
greiddra a'tkvæða lækkar nið-
úr fyrif 35%, þarf móttak-
kvæðafjcldinn að hækka um
einn af hundraði tU að fella
tillöguna.
HANN HANNES ÁJ
HORNINU TEKUR LÍT-
ILLEGA í LURGINN Á
„YFIRSTÉTT ARDÖM U“
Á ANNARRI SÍÐU í DAG.'
MMMMMMMMMMMMMMM*
42. árg. — Sunnudagur 22. janúar 1961 — 18. tbl.
Veðurútlitið var afleitt en ..
ALLT GEKK
AÐ ÓSKUM
Sunnudagsmyndin okkar í dag er af grænlenzkri telpu,
sem kvað eiga færeyska fósturforeldra og er búsett hér í Reykja-
vík. Myndin kom til okkar eftir, krókaleiðum sem of langt mál
yrð’i að rekja. Nafnið telpunnar vitum við ekki.
GAMAN!