Alþýðublaðið - 22.01.1961, Page 3
Þjénar drottins
frumsýnt hér
N. K. FIMMTUDAG frumsýnir
I>jóðIeikhúsi8#leikritiÖ „Þjón-
ar drottins“ eftir norska skáld-
ið Axel Kielland. Leikurinn var
frumsýndur 1955 í þjóðleikhús
inu norska í Oslo og var sýnd-
ur 68 sinnum á sama leikárinu
og hafði þá ekkert leikrit geng-
ið jafn vel í því leikhúsi um
langan tíma. Síðan hefur leik-
urinn verið sýndur í flestum
leikhúsum Noregs við ágætar
viðtökur og á seinni árum hef-
ur hann einnig verio sýndur í
öllum helztu leikhúsum hinna
Norðurlandanna.
Leikurinn er byggður á sann
sögulegum atburði, er gerðist í
Svíþjóð fyrir nokkrum árum,
eða nánar tiltekið máli Helan-
der biskups. Þetta mál var
Nýr rafmagns-
stjóri ráðinn
Á FUNDI bæjarráðs
Reykjavíkur sl. fimmtudag,
voru lagðar fram 4 umsókn-
ir um starf rafmagnsstjóra.
Þeir sem sóttu ium voru Bald-
ur Steingrímsson, Jakrfi Guð-
johnsen, Páll Sigurðsson og
Valgarð Thoroddsen.
Baejarriáð isamþykkti með
sambijóða atkvæðum, að mæla
með því við bæjarstjórn, að
Jakob Guðjohnsen verði ráð-
inn ráfmagnsstjóri.
Valgarð Thoroddsen aftur-
kallaði umsókn sína, en sótti
um starf ytfirverkfræði ngs við
rafmagnsveituna, ef það losn-
aði. Bæjarráð samþykkti, að
Valgarð yrði ráðinn í starfið.
mjög mikið rætt á sínum tíma
og mikið um það skrifað í blöð
og tímarit. Það má segja, að
þetta hafi orðið eitt mesta
deilumál, sem risið hefur innan
kirkjunnar á Norðurlöndum
hin síðari ár.
Eins og 'kunnugt er var Hel-
ander biskup sakaður um að
hafa skrifað níðbréf um keppi-
naut sinn í biskupsembætti. Út
af þessu spannst mikill mála-
rekstur og margir álita, að
aldrei hafi sannast hver hinn
seki var í raun og veru. — 'Var
Helander biskup dæmdur sak-
laus? eða var hann sekur?
Þetta er uppistaðan í leik-
riti Kiellands „Þjónar drottins“
og finnur höfundur sína skáld-
legu lausn við því svari.
Kielland fléttar ýmsu öðru
inn í leikinn, einkum kirkju-
legum málum frá sínu eigin
landi. Hann fer skáldlegum
höndum um efnið og honum
tekst að skapa spennu, sem
helzt frá byrjun til leiksloka.
Leikstjóri er Gunnar Eyjólfs
son og er þetta þriðja leikritið,
sem hann setur á svið hjá Þjóð
leikhúsinu. Hin voru „Á yztu
nöf og „Tengdasonur óskast“,
sem sýnt var við miklar vin-
sældir á s. 1. vetri.
Þýðingin er gerð af séra
Sveini Víkingi en leiktjöld mál-
uð af Gunnari Bjarnasyni.
Hlutverkin í leiknum eru 13
að tölu, Valur Gíslason leikur
biskupinn, Anna Guðmunds-
dóttir er biskupsfrúin, Rurik
Haraldsson leikur dr. Forn-
'kvist, keppinaut um biskups-
embættið. Auk þeirra fara með
stórhlutverk Ævar Kvaran,
Róbert Arnfinnsson, Lárus
Pálsson, *Herdís Þorvaldsdóttir,
Haraldur Björnsson o. fl.
POKOK
POKOK eftir Jökul Ja-
kobsson, sem Leikfélag
Reykjavíkur frumsýndi
fyrir nokkru virðist
ætla að hljóta vinsældir
eftir undirtektuin á sýn-
ingum að dæma. Á með-
fylgjandi mynd sjást lag-
anna verðir að störfum.
Þcir eru leiknir af Brynj-
ólfi Jóhannessyni og
Valdimar Lárussyni og
vekja þeir mikla kátínu.
Næsta sýning á Pókók er
í kvöld kl. 8,30.
MMMWmVWMWWWVWWWVnMWMWVWVWVMW
FiSKIMJOLSRAÐ-
STEFNA IRÓM
Verðlagseftirlitið
vantar starfsfólk
í BLÖÐUM í gær var aug-
lýsing frá verðlagsstjóra, þar
sem vcrðlagseftirlitið óskar
cftir að ráða mcnn til eftirlits
starfa nú þegar eða scm fyrst.
Er umsóknarfrestur til 1. fe-
brúar. I tilcfni af þessu sneri
Alþýðublaðið sér til Kristjáns
Gíslasonar, verðlagsstjóra, og
spurðist frétta.
Verðlagsstjóri sagði, að skrif
stofan væri fyrst nú að fá að
taka menn í skörð, sem mynd
ast hafa í starfsliðið undan-
farið. Hefði lengi verið allt of
mannfátt á verðlagsskrifstof-
unni og alltaf fækkað.
Aðspurður sagði Kristján,
að 3—4 menn hefðu haft eftir
lit með verzllunum í Reykja-
vík að undanförnu. Undir skrif-
stofu hans heyrir svæðið s-uð
vestanlands allt austur í Vík
í Mýrdal, en nú vær-i í ráði
að breyta skipulaginu nokk-
uð.
Mun umdæmi verðlagsstjór-
ans í Reykjavík verða fært út
alflt vestur í Dali og ráðinn
einn maður til gæzlu á svæð-
inu héðan vestur þangað. Kem
ur hann í stað þriggja trún-
aðarmanna verðlagseftirlitsins,
sem verið hafa á Akranesi,
Borgarnesi o.g í Ólafsvík. — a.
ALÞJÓÐLEG ráðstefna
vcgna hinnar miklu fram-
leiðsluaukningar og verðfalls
á fiskimjöli verður haldin í
Rómaborg dagana 20. til 29.
marz næstkomandi á vegum
Matvæla og landbúnaðarstofn
unar Sameinuðu þjóðanna.
Ráðstefnan, sem er haldin
vegna áskorunar nokkurra rík
isstjórna, mun ræða hentugar
leiðir til þess að auka eftir-
spurn og neyzlu á fiskimjöli
og reyna að tryggja sem
stöðugastan markað.
Möguleikar til framleiðslu
fiskimjöls í heiminum hafa stór
lega vaxið á undanförnum ár-
um, eða frá 1,200 þús. tonnum
árið 1954 í 1,900 þúsund tonn
1959. Peru, sem framleiddi
16,500 tonn af fiskimjöli ár-
ið 1954 hafði tuttugufaldað
framleiðslu sína árið 1959.
Á sama tímabili hafði Chile
fjórfaldað framleiðslu sína,
Danmörk, ísland, S-Afríka og
Rússland tvöfaldað sína fram-
leiðslu og Bandaríkin aukið
hana um fjórðung.
Notkun ' l tskimjö!'/] hefur
ekki aukizt að sama skapi og
framleiðslan, einkum á tveim
síðustu árum. Afleiðingin er
sú, að birgðir hafa safnazt og
árið 1960 neyddust nokkur
lönd til að draga úr franv
leiðslu sinni.
Verðið hefur fallið frá 130
dollurum á tonnið í 75 doll-
ara á tonnið. Tekjur sjó-
manna og framleiðenda hafa
því stórlega dregizt saman.
Fjölmennasta
jarðarför á
Suðurlandi
ÚTFÖR Egils Tliorarensen
kaupfélagsstjóra, fór fram í
gær að viðstöddu gífurlegu
fjölmenni. Kveðjuathöfn fór
fram frá Dómltirkjunni kl. 10.
Var kirkjan fullsetinn og for-
seti íslands og ráðlierrar og
fleira stórmenni viðstatt.
Kl. 1 hófst athöfnin í Selfoss-
kirkju, þar sem séra Árelíus
Níelsen flutti minningarræð-
una. Kirkjukór Selfoss söng
udir stjórn Guðmundar Gils-
sonar organleikara. Síðan fór
fram kveðjuathöfn á torginu
fyrir framan Kaupfélag Árnes-
inga. Björn Fr. Björnsson, al-
þingismaður, flutti kveðjur
Rangæingá, Páll Hallgrímsson,
sýslumaður, kveðjur kaupfé-
lagsstjórnar og Árnesinga, og
Valdimar Pálsson, gjaldkeri
KÁ, kveðjur starfsfólks félags-
ins. Loks var ekið að Laugar-
dælum, þar sem jarðsett var.
Var bílalestin samfelld frá Sel-
fossi að Laugardælum og munu
hundruð bíla hafa verið í lest-
inni. Á eftir var erfisdrykkja í
Selfossbíói.
Öll athöfnin var hin virðu-
legasta útför, sem gerð hefur
verið á Suðurlandi fyrr og síð-
ar. Munu menn úr öllum
hreppum sunnanlands og fjöldi
fólks annars staðar að, einkum
frá Reykjavík, hafa verið við
útförina.
BELGÍSKIR hnefaleikarar
voru í gær viðstaddir útför fé-
laga síns, Joseph Woussem. —
Woussem þegsi var fyrrverandi
léttvigtarmeitari í linefaleik og
var 32 ára gamall. Hann lézt í
óeirðum verkfallsmanna og lög-
reglu í Chenee nálægt Liege á
mánudaginn. Þúsundir verk-
fallsmanna fylgdu honum til
grafar.
Á FIMMTUDAGINN varð
vélbilun í olíuskipinu Þyril,
þar sem það var á siglingu um
60 til 70 sjómílur suður af
Vestmannaeyjum. Skipið var
með lýsisfarm, sem átti að
fara til Englands, en það varð
að snúa við, og liggur nú í
Vestmannaeyjahöfn.
Þyrill hafði tekið lýsisfarm-
inn i Reykjavík, á Siglufirði
og í Hafnarfirði, og hafði ver
ið á siglingu nokkurn tíma þeg
ar tannhjói í kambás bilaði.
Snéri skipið þá strax við til
Vestmannaeyja, og komst þang
að af eigin rammleik. Var þó
bilar
óttast að fieiri tann’hjól kynnu
að fara.
í gær lá skipið í Vest-
mannaeyjum, og fór athugun
fram á því, hvort hægt væri
að smíða nýtt tannhjól hér á
landi, en að öðrum kosti verð
ur að panta það erlendis frá.
Þegar Alþýðublaðið ræddi í
gær við Skipaútgerð ríkisins,
var ekki afráðið hvað gera
skyldi, en taldar voru líkur á
því, að varðskip yrði fengið
til að draga skipið til Reykja
víkur.
Af þessari vélbilun hlýzt
nokkur töf, og er enn ekki vit
að, hve langan tíma það tekur
að koma vél skipsins í lag
aftur. — ár —
Alþýðublaðið
22. jan. 1961 3