Alþýðublaðið - 22.01.1961, Blaðsíða 11

Alþýðublaðið - 22.01.1961, Blaðsíða 11
vðrt Gestapo Framhald af 7. síðu. eyðilagði flugvöll uppreisnar- manna í Ðebra Zeit. Harðir bardagar hófust og keisariun nálgaðist. Við komu hans til Addis Abeba hélt yfirmaður kaþólsku kirkjunnar útvarps- ræðu og hótaði þeim ekki að- eins bannfæringu, sem héldu áfram að berjast á móti keis- aranum, heldur eilífri útskúf- un. Við megum ekki gleyma því að Etíópía stendur að mörgu leyti á svipuðu menn- ingarstigi og ríki Evrópu á miðöldum, og verður gang ir mála þar skiljanlegri, sérstak Flokks- fundur í Firðinum ALÞÝÐUFLOKKSFÉLAG Hafnarfjarðar heldur félags- fund í dag og hefst h'ann kl. 4 e. h. Fundurinn verður í Al- þýðuhúsinu. Til umræðu verð- ur fjárhagsáætlun Hafnarfjarð arbæjar og einnig verða önnur mál rædd, ef tími er til og á- stæða þykir. Rétt er að minna ) alla félaga á, að fjölmenn til fundarins og mæta stundvís- lega. lega hvað snertir áhrif kirkj- unnar. Hin friðsamlega bylting var nú komin út um þúfur. í ör- væntingu sinni skutu uppreisn armenn þá ráðherra og em- bættismenn keisarans, sem þeir höfðu handtekið. Haile Selassie keisari hét öllum þeim, sem þátt höfðu tekið í þessari misheppnuðu uppreisnartilraun, fullri sak- aruppgjöf, ef þeir viður- kenndu villu sína. Nokkrum tímum seinna lét hann, án nokkurra réttarhalda lífláta um 200 nemendur úr elzta menntaskóla landsins. Svíar frá Transair flugfélag inu, sem voru þarna um jólin voru sjónarvottar að því, er uppreisnarmenn voru skotnir í hnakkann og hengdir upp í gálga öðrum til varnar. Sak- aruppgjöf hins milda lands- föðurs náði aðeins til skyrtu og skóa, sem þeir fengu að fara úr áður en þeir voru skotnir! Það var látið sýnast svo að sumir uppreisnarmenn hefðu framið sjálfsmorð t. d. Tziga- ye Dibou, sem seinna var hengdur upp almenningi til sýnis, augsýnilega útataður í blóði eftir mörg skotsár, ásamt fjölda annarra. Stjórnin hef- ur borið því við að múgurinn hafi drepið þessa menn, en þeir, sem lengi hafa búið í Etíópíu, vita, að lýðurinn grýt ir eða ber andstæðinga sína til dauða. Skotsárin og gálg- arnir eru hins vegar merki stjórnarinnar, efnd sakarupp- gjafar keisarans. Galdra-Loftur á Selfossi ÞRIÐJUDAGINN 17. jan. s. 1. frumsýndi Leikfélag Sel- foss Galdra-Loft í Selfoss-Bíó fyrir fullu húsi áhorfenda. Þetta þekta öndvegis verk Jóhanns Sigurjónssonar hef- ur ekki áður verið sýnt aust- an fjalls, og má segja að í nokkuð væri ráðizt af hálfu Leikfélagsins á Selfossi, er það í haust ákvað að taka þetta verk til sýningar nú í vetur. Svo vel tókst þó til, að féiagið átti þess kost að fá I Harald Björnsson sem leið- beinanda og leikstjóra en þetta er þriðja leikritið, sem I S S s s s s s s s s s S: s' s s s s s, V S ■ i s s ,s s s s s Alþýðuflokksfélag Reykjavíkur. FÉLAGSFUNDUR verður í Alþýðuhúsinu (niðri) þriðjudaginn 24. janúar kl. 8,30 e. h. FUNDAREFNI: SKATTAMÁLIN Frummælandi: Jón Þorsteinsson, alþingismaður. Féíagar eru hvattir til að mæta vel og stundvíslega. STJORNIN. hann setur á svið fyrir félag- ið. Það að hafa slíkan kunnáttu mann til leiðsagnar má telja víst að ráðið hafi úrslitum um þann sigur er ég tel að félag- ið hafi unnið við uppsetningu leiksins, Nú er það svo með ung og lítil félög, að þau eiga ekki ráð á mörgu eitthvað vönu fólki, og svo geta ýmsar ástæður valdið að ekki geta allir þeir er æskilegir kunna að vera, verið með. En þrátt fyrir allt tókst svo vel til að ágætt og æskilegt fólk fékkst í aðal- hlutverkin. Biskupinn leikur Daníel Þorsteinsson og færir hann upp af mestu prýði Biskups- frúna leikur frú Lovísa Þórð- ardóttir og gerir þessu litla hlutverki smekklega hin beztu skil, enda sviðvön úr fyrri leikjum hjá félaginu. Biskups dótturina leikur frk. Elín Arnaldsdóttir af sinni al- þekktu hæfni og vandvirkni. Steinunn er leikin af frú frú Erlu Jakobsdóttur, Stein- unn er í meðferð frú Erlu einkar mannleg og sönn í ást sinni og sorg. — Ráðsmann- inn leikur Sigurður S. Sig- urðsson, og gerir það af hinu mesta rögg og myndugleik. — Ólöf leikur Halldór Magnús- son. — Ólafur er að ýmsu vandmeðfarinn en Halldóri tókst að sýna hinn góða og trygga dreng, er mitt í ástar- sorginni getur flest fyrirgefið, Galdra-Loft leikur Óli Guð- bjartsson kennari. Óli er lítt vanur leikari. Hefur þó áð.ur sýnt hér að honum er vel trú- andí fyrir erfiðu hlutverki. —• Meðferð hans á Lofti er slík, að ég leyfi mér að efast um að unt sé að leika hann öllu bet- ur. Ég átti tal við vanan lei-k- húsmann eftir sýninguna á þriðjudag og spurði hvernig honum hefði líkað? Hann svarar; ,,Heildarsvip- urinn á sýningunni var hinn. prýðilegasti. En Loftur finnst mér óhugnanlega vel leik- inn“. Ég hygg að flestir muni taka undir með þessum leik- hússgesti. Smærri hlutverkin voru öll eðlilega af hendi leyst, en gefa fæst möguleika til mikilla afreka. Þó vil ég benda á meðferð Halldórs Árnasonar á blinda ölmusu- manninum, hún var svo sönn og eðlileg sem framast mát.ti vera. Leiktiöld eru hin prýði- legustu. Ég þakka fyrir ánægjuna, er. sýning félagsins veitti mér. Félaginu óska ég til ham- ingju með þetta þjóðlega verk, er það hefur fært upp með þeim heildarsvip er það getur verið stolt af. Þess skal getið, að enn nýtur félagiA frú Áslaugar Símonardóttur sem framkvæmdastjóra, og meðan svo er fer félaginu ekki aftur í störfum. G. J. FLOKKSFELAGAR ALÞÝBUFLOKKSLÉLAG Reykjavíkur heldur fclags- fund n. k. þriðjudagskvöld k.L 8.30 í Alþýðuhúsinu við Hverf- isgötu. Rætt verður um skatta- málin. Frumniælandi verður Jón Þorsteinsson alþingismað- ur. Flokksfólk er hvatt til þcs» að mæta vel og stundvíslega. VALUR 50 ÁRA tTrsli tale i k i i*nir í afmælisinótínn í kvöld kl. 8,15 að Hálog Alþýðublaðið — 22. ján.,1961

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.