Alþýðublaðið - 01.06.1961, Blaðsíða 10
SKQZKA LIDID
SÝNDI YFIRBURDI
SKOZKA knattspyrnuliðið St.
Mirren, sem hér er í heimsókn í
boði Vals í tilefni af 50 ára af-
mæli félagsins, lék fyrsta lcik
sinn í gærkveldi. Fór leikurinn
fram á Laugardalsvellinum og
var við gestgjafana. Veður var
ekki sem hagstæðast. Nokkur
rigning sem jókst eftir því sem
á leikinn leið. Var völlurinn
því óvenju liáll og háði það
leikmönnum allmjög.
Leikslok urðu þau að Skot-
arnir sigruðu. Skoruðu alls 3
mörk gegn engu. Eftir fyrri
hálfleikinn var staðan 2:0.
Fyrsta mark skotanna kom
Slarkvörðurinn Brown
þegar í byrjun leiksins. Það var
v. útherjinn Miller, sem það
gerði. Seinna markið í hálf-
leiknum var gert úr vítaspyrnu,
mjög strangt dæmdri. Knött-
urinn hoppaði uppí hgndi ann-
ars framvarðar 'Vals. Miðfram-
vörður skotanna, Clunie, fram-
kvæmdi spyrnuna og skaut
bæði fast og örugglega.
Upp úr miðjum síðari hálf-
leik bættu Skotarnir 3. mark-
inu við.
Miðað við markatölu má segja
að útkoman hafi ekki verið Val
sérlega óhagstæð. En miðað við
gang leiksins í heild, verður
annað uppi á teningnum. Svo
mjög hallaði á Valsmenn að
mestu allan leikinn. Það var
vörnin sem bjargaði því að
ekki fór þó ver en raun bar
vitni. Var hún öll mjög sam-
taka og samstillt. Björgvin í
markinu sannaði það enn einu
sinni að hann er sá af mark-
vörðum vorum nú sem einna
mest traust verður að setja á.
Árni Njálsson var þó sá í vörn-
inni, sem mestan bar hitann og
þungann af sókn mótherjanna,
e auk hans átti Þorsteinn góðan
leik og er sívaxandi í stöðu
bakvarðar. Magnús Snæbjörns-
son gætti eftir beztu föngum
hins snögga miðherja Skot-
anna, sem sannarlega er ekkert
lamb að leika við. Framlína
Vals var linari hluti liðsins og
átti svo að segja aldrei mögu-
leika til að jafna metin. —
Skozka liðið er skipað mjög
skemmtilegum leikmönnum,
sem allir eru kunnáttumenn í
listinni. Verður gaman að sjá
þá gegn sterkari mótherjum en
hér var um að ræða. Þeir leika
næst við Akurnesinga, á föstu-
dagskvöldið.
Seint í síðara hálfleiknum
fékk 'Valur vítaspyrnu en hún
dugði ekki til að minnka bilið.
Björgvin Dan skaut en alltof
beint á markvörðinn, sem þann
ig varði auðveldlega.
Leikur gestanna einkenndist
af hröðum leik og nákvæmum,
en skotöryggi þeirra á markið
var ekki að sama skapi.
Guðbjörn Jónsson dæmdi
leikinn og gerði bað af rögg-
semi.
Jjfr 1. júní 1961 — Alþýðublaðið
Iíér eru myndir a£
mörkunum, sem skoruð
vor í fyrri hálfleik leiks
Vals og St. Mirren í gær-
kvöldi. Á eftir myndinni
sendir miðframv. Skot-
anna, Clunie knöttinn í
mark Valsmanna úr víta-
spyrnu, óverjandi fyrir
Björgvin. Neðri myndin
er af fyrsta markinu
(knötturinn er bak við
Björgvin). Vinstri útlierj-
inn Miller skorar óverj-
andi. Ljósm.: Sveinn Þor
nióðsson.
LEIKURINN í TÖLUM: ♦ St.Mirren Valur
Mörk 2+1=3 0+0=0
Markskot 9+17=26 4+7=11
Hornsp. 5+7=12 1+3=4
Vítasp. 1+0=1 0+1=1
Aukasp. 8+0=8 3+3=6
Sagt eftir leikinn:
Tíðindamaður íþróttasíðunn-
ar hitti þjálfara skozka liðsins
að leik loknum og hann sagði
m. a.:
— 'Völlurinn ykkar er pr ði-
legur, einn af þeim beztu, sem
ég hef stigið á. Ég var ánægður
með leik minna manna í fyrri
hálfleik, en síðari hálfleikur
var slakur. Ég vonast til, að
við getum s nt betri leik síðar.
Annars er mánuður síðan St.
TVTirren hefur háð kappleik og
það hefur sín áhrif. Dómarinn
var góður, en vítaspyrnan, sem
við fengum á okkur, var óskilj-
anleg,
Að lokum sagði þjálfarinn
brosandi, sólarlagið var svo
fallegt á mánudagskvöldið, að
enginn svaf dúr um nóttina, —
það var dásamleg stund.
EÓP-mótið fer
fram í kvöld
HIÐ ÁRLEGA EÓP-mót,
sem KR-ingar halda tií heiðurs
Erlendi heitnum Péturssyni,
— hinum vinsæla formanni
þeirra, fer fram í kvöld á Melá-
vellínum og hefst kl. 8
Þátttaka er allgóð í mótinu,
en Rvíkurfélögin þrjú, KR, Ár-
mann og ÍR senda keppendur,
einnig eru nokkrir utan af
landi.
í 100 m. hlaupi er Valbjörn
Þorláksson meðal þátttakenda
og í 400 m. keppa m. a. Svavar
Markússon. Kristleifur er með
í 1500 m. ásamt nokkrum ung-
um og efnilegum hlaupurum. í
vænlegaslir í sleggjukasti og
Guðmundur Hermannsson í
100 m. hlaupi er Rannveig Lax
dal. Góð þátttaka er í 100 m.
hlaupi unglinga og 80 m.
hlaupi sveina.
Þórður B. Sigurðsson og Jó-
hannes Sæmundsson eru sigur-
kúluvarpi, en Gunnar Huseby
er einnig með keppenda.
Hinn efnilegi Jón Þ. Ólafsson
stekkur hástökk og Vilhjálmur
Einarsson tekur þátt í lang-
stökki en hann stökk nýlega
7,17 m. á æfigu. — Búast má
við góðum afrekum í mörgum
greinum, ef veður verður hag-
stætt.
Benefica
sigraöi
Bern, 31. maí (NTB—REUTER)
Portúgalska liðið Benefica
sigraði Barcelona í úrslita-
leik um Evrópubikarinn í kvöld
með 3 mörkum gegn 2.