Alþýðublaðið - 09.07.1961, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 09.07.1961, Blaðsíða 5
ALÞÝÐUBLAÐIÐ efnir nú — þriðja sumarið í röð — til verðlaunakeppni fyrir síldarstúlkur. Verðlaunin eru þrenn: 3,000 króna aðalvinninigur og tveir 1,000 króna aukavinning ar. Keppnin er þátttakendum algjörlega að kostnaðarlausu. Alþýðublaðið setur aðeins eiltt skilyrði: Að stúlkan hafi farið í síld í sumar, unnið einhvers konar síld'arvinnu. Þetta er „innanfélagskeppni“ síldarstúlkna; öllu kven- fólki öðru er stranglega bannaður aðgangur. Alþýðublaðið efnir til keppninnar tifl. heiðurs síldarstúlkum; vill með þessu votta þeim virðingu sína fyrirvel og rösklega unnið starf um marga áratugi. Jæja, stúlkur, takið nú eftir. Alþýðublaðið mun öðru hvoru næstu vikurnar birta með fylgjandi happdrættibseðil. Þátttakandi þarf að klippa seð ilinn úr blaðinu, skrifa á hann nafn sitt og söltunarstöð, gleyma ekki að láta getið um lögheimili, fá á hann stimpil eða uppáskrift söltunarstöðvar ilnnar og senda okkur hann í umslagi með svofelldri áskrift: ALÞÝÐUBLAÐIÐ, SÍLDAR- IiAPPDRÆTTIÐ, REYKJAVÍK. Það er allur galdurinn, þar með ertu orðin þátttakandi í happdrættinu. Við drögum úr seðlunum í sí ldarlok í haust og verðlaunin eru peningarnir sem fyrr segir. Og megi gæfan fylgja ykkur! Aliar með! Samtaka nú! Síldarstúlknahappdrætti Alþýðublaðsins NAFN ....... ...... SÖLTUNARSTÖÐ ..••..••..••••... LÖGHEIMILI .................... 3TAÐFESTING ATVINNUREKAND A: ofanrituð stúlka hefur unnið hjá okkur í sumar og hefur því öll réttindi til þáttöku í sfldardappdrætti AJþýðu- blaðsins AlþýðublaðiS — 9. júlí 1961

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.