Alþýðublaðið - 22.07.1961, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 22.07.1961, Blaðsíða 5
ÞÓRSMERKURFARAR Munið að taka með ykkur nýju ÞÓRSMERKURLÝSINGUNA Happdrætti jálsrar menningar" SAMTÖKIN ”Frjáls menn- ing” hafa efnt til happdrættis til styrktar starfsemi sinni og er vinningurinn í því fokhelt einbýlishús. Verður húsið reist fyrir vinnantla hvar sem óskað verður í byggð á landinu og er verðmæti hússins áætlað 300 þús. kr. Gísli Halldórsson húsameistari hefur gert teikn- ingu að húsinu, sem verður 128 ferm. að stærð á 1 hæð. Happdrættismiðarnir verða seldir um land allt í næsta mánúði, en dregið verður 27. des. nk. í húsinu verða þrjú svefnherbergi, rúmgóðar stof ur og eldhús, geymsla, þvotta hús og annað, sem til þarf. SAMTÖKIN. Frjáls menning, sem stofn- uð voru fyrir 11 árum til vernd ar og eflingar frjálsri hugsun, hyggjast auka þá starfsemi og hafa boðið hingað til lands þtkktum, erl. ræðumönnum og fyrirlesurum. Samtökin munu beita sér fyrir ópólitískum um ræðum um alþjóðamál, sérstak lega varðandi slöðu íslands í heimnum og halda ráðstefnur og umræðufundi. Þá er í ráði að halda hér sýningar lil þess að kynna verk erl listamanna og einnig að kynna ísl. lista- menn erlendis. Gangi happdræt.tið vel hef ur ”Frjáls menning” í huga að bjóða hingað til lands tinum eða fleiri stúdentum til náms í læknisfræði við háskólann, en samtökin hafa hug á að koma á mennmgartengslum við hin nýju ríki Afríku og Asíu. Félagið á hliðstöðu með þeim menningarsamtökum, er nefnast á frönsku Congrés pour la Liberté de la Culture og starfa víðs vegar í lýðræðis löndum, en er óbundið þeim að öðrU en sameiginlegri holl ustu við frjálsa hugsun og frjálsa menningu. MOSKVA, 21. júlí (NTB). — Moskvublaðið Isvéstia skrifaði í dag, að Rússar ættu fleiri og betri eldflaugar en Bandaríkja- menn. Var þetta skrifað til að andmæla ræðu Roberts Kenne dys, er nýjum kjarnorkukafbát var hleypt af stoklcunum ,,Við' getum sagt Kennedy,“ ski'ifar Isvestia, ,,að Sovévríkin eiga líka kjarnorkuknúða kafbáta." Marsvín við Sauð- árkrók SAUÐÁRKRÓKI í gærkvöldi. ÁHAFNIRNAR á Mumma og Höfrungj urðu varir v‘ið mikla marsvínatorfu á Skagafirði í dag. Bátarnir voru staddir und an Reykjaströnd er þetta gerð- ist. Tal'ið var, að hér hafi verið á annað hundrað marsvín, bæði fuliorðin og kálfar. Torfan var síðan rekin að höfninnj á Sauðárkróki og' dreif að fleiri báta — alls um átta. En talið var óvíst að það borgaði sig að reka marsví,.in á land og voru þau því lát-n sigla sinn sjó. Fimm marsvin voru drepin og víst þyk;r, að fleiri hafi drepizt og sokkið í höfninni. Enn eru nokkur marsvín frarn an við höfnina þar sem þau móka í vatnsskorpunni, enda voru þau orðin áðþrengd þegar þeim var sleppt. Múgur og margmenni horfði á þegar marsvínuaum var slátrað %/%/%foft/%/%/%/%/%/%/%/%A/%W%l%/%/%/%/%/W%A/%A/^ytyifo Dunganon heldur mál- verkasýningu HANN heitir Cliarles Ein- arson Dunganon, en flestir kannast við hann undir nafn inu; ”Greifinn af St. Kilda.“ Hans heimur er ekki hvers dagslegur eins og heimur okkar hinna, og drauma hans skiljum við ekki, venjulega fólk. Hann er eini íslenzki greifinn, takmark hans er, að stofna sitt eigið ríki á eyjunni St. Kilda, er liggur undan Skot landsströndum. Dunganon hefur lagt margt fyrir sig á Iangri ævi. Hann hefur ritað bundið og óbundið mál á öllum lieíms ins tungumálum. Ilann lief ur hlo'tið viðurkenningar fyrir lj.óð sín hjá þýzkum, frönskum, ítölskum bandarískum prófcssorum. En færri vita, að hann hefur feng'bt við máífiralfst, og hefur Iiann þá rnálað eftir eigin höfði, og látið allar listastefnur lönd og leið. Hann málar ekki í anda bismans eða surrealismans heldur heitir það Dunganon- ismi. Nú hefur greifinn opnað sýningu á nokkrum verkum sínum í sýningarsal Inn- römmunarverkstæðisins að Bergstaðastræti 19. Þar sýn- ir hann um 100 myndir úr St. Kilda-safninu, en í því eru um 300 myndir. Er fréttamaður blaðsins leit inn á sýningu hans í gærdag, var listamaðurinn sjálfur á staðnum, og lá vel á honum. Ilann tók það ákveðið fram, að þeíta væri ekki sölu sýning, enda ætlaði hann að selja einhverjum Ameríkana sem ætti dali í poka, mynd- irnar fyrir 50 þús. dali, er hann myndi síðan nota til að stofna ríki sitt á St. Framhald á 14. síðu. Þessi mynd er af Dunganon, og er tekin í málverkasalnum. Hann heldur á skjaldarmerki St. Kilda, og rétt á eftir að myndin var tekin, söng hann fyrir frétta- manninn, þjóðsöng evjar- inrtar, sbm hann heiAir gert bæði lag og Ijóð við. Víxlum bænda breytt í lán til langs tíma FORSETI ISLANDS gaf út bráðabirgðalög hinn 15., júlí sl. um breytingu á lausaskuldum bænda í föst lán til langs tíma. Er þetta gert í samræmi við fjTirheit sem ríkisstjórnin gaf á sínum tíma. Bráðab'irgðalögin eru á þessa leið: „Forseti íslands gjörir kunn- ugt: Landbúnaðarráðherra hefur tjáð mér, að ríkisstjórnin hafi gefið fyrirheit um breytingu á hluta af lausaskuldum bænda í föst lán til langs fíma, með svip uðum hætti og gert hefur verið með sérsökum lögum gagnvart fyrirtækjum, sem stunda útgerð fiskiskipa og fiskvinnslu. Þar eð undirbúningi að þessari brey: ingu sé lokið og nauðsynlégt að létta nefndum lausaskuldum a:T bændum hið allra fyrsta, b' brýna nauðsyn til að veita vetl deild Búnaðarbanka íslanda nauðsynlegar heimildír ti! ab" breytingin geti farið fram os{ náð tilgangj sínum. Vegna þessa gef ésj út bráð ', birgðalög samkvæmt 28. g)'_ stjórnarskrárinnar, á þessa leið; Framhald á 11. síðn. Alþýðublaðlð — 22. júlí 1961 ÍJj

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.