Alþýðublaðið - 22.07.1961, Blaðsíða 13
Forsetafrú með
úfið hár...
FORSETAFRÚ Banda-
ríkjanna, Jacqueline Ken-
nedy, er talin bezt klædda
kona heirns. Hér sést hún
á hestaveðhlaupi með vin-
konu sinni. Hún er í köfl-
óttu ullarpilsi, einfaldri
ullarpeysu, á sléttbotnuð-
uni skóm og með úfið hár.
Kannski þætti þessi klæða
burður ekki áberandi
fínn, ef það væri ekki for-
setafrú, sem bæri hann, en
einmitt einfaldleikinn er
sagður aðalsmerki hinnar
ungu forsetafrúar, og þyk-
ir þar bregða til hins betra
þar eð aðrar háttsettar
frúr eru að jafnaði með
tilgerðarviprur um munn
inn og blómahatta hvar
og hvenær sem er.
En Jacqueline hefur
kostað kapps um að koma
eðlilega fram, en sú tízka
liennar hefur ekki ein-
ungis stuðlað að því, að
hún er nefnd bezt
klædda kona heims, held-
ur og ein hin fegursta.
Þýzkur skuttogari
„DANSK FISKERI-
TIDENDE“ (12.5) segja frá að
hinn nýjasti skuttogari Vestur
Þjóðverja „Heinrich Kerr
1244 br. lestir að stærð hafi
komið úr fyrstu veiðiferð
sinni frá Vestur-Grænlandi, af
þorskbönkunum þar með
nietveiði
Hánn fiskaði 900 lestir af
fiski, 600 lestir voru fullunn
ár um borð, sem skiluðu 220
lestum af hraðfrystum flökum,
að verðmæti 300 þús. mörk-
um (2.880.000,00 ísl kr.).
Ennfremur losaði skip'ð 4250
körfur (50 kgr. karfan) af öðr
um neyzlufiski, mest þorskur,
1410 pokar fiskimjöl og 110
föt lýsi. Veiðiferðin tók alls
37 daga.
Kalt var var þarna norður
frá, oft 24° kuldi. Nokkrir
þýzkir og enskir togarar voru
þarna líka.
Framhald á 14 síðu.
Rétt utan við þriggja mílna
landhelgi Svía, heldur sig
ósjálegt skip með einkenni
legum útbúnaði og heldur
sig á svipuðum slóðum dag
inn út og daginn inn. Lega
þessa skips og starfsemi hef
ur valdið nokkrum úlfaþyt
í Svíþjóð og m. a. spunnist
út af því sérstök umræða í
sænska þinginu.
Svo er mál með vexti, að
í skipi þessu er komið fyrir
útvarpsstöð, sem flytur mest
megnis slagara og auglýsing
ar, fréttir og annað af létt-
ara taginu. Stöðin liefur orð
ið mjög vinsæl, ekki sízt
með sjómönnum og unga fólk
inu, sem þykir sænska ríkis-
útvarpið bjóða hlusttndum
sínum upp á of lítið af létt
ara cfni. ”Radio Nord”, svo
heitir stöðin, er um borð í
skipinu ”Bon Jour” og held-
ur sig við Eystrasaltsströnd
Svíþjóðar.
Daglega kom þyrla og
varpar niður hylkjum með
fréttum, dagblöðum og seg-
ulböndum, sem útvarps-
mennirnir 9 um borð í skip
inu vinna svo úr. Eru þeir
oft á undan sænska útvarp-
inu með fréttirnar. Finni
nokkur og Bandaríkjamað-
ur eiga hugmyndina að
þessari útvarpsstöð, sem
sænsku yfirvöldin líta illu
auga, en geta þó ekkert við
gert. EigendUrnir hafa þegar
stórhagnast af sendingun-
um, því mjög er sótzt eftir
að auglýsa hjá þeim, enda
tekur sænska útvarpið eng-
ar auglýsingar. Sagt er að
um helmingur Svía hlusti nú
á þessa nýju útvarpsstöð.
Alþýðublaðið
22. júlí 1961 |_3