Alþýðublaðið - 10.08.1961, Side 4

Alþýðublaðið - 10.08.1961, Side 4
y WMM%MWWWWWWMWWWMWMMWWWWWWWWWWWWtMMWWWMWWWWWMWMMMMM«MMMWMWMMM<*WWMM<MWWWVmil SPJALLAÐ VIÐ ALLRA ÞJOÐA FOLK SEM GISTIR ÞESSA DAGÁNA "k-VV' - Ieitt eru svörin ekkí löng þó franskur sé pilturinn. Frakk ar eru ekki allir þser skraf- skjóður, sem flestir halda. — Hvað um verðlagið? — Fremur hátt, en þó sér- staklega fargjöld. — Hvernig kemur unga fólkið á íslandi ykkur fyrir sjónir? — Ósköp svipað og fólkið heima, svarar franski piltur inn og vinur hans sem við hlið hans situr kinkar kolli til samþykkis. Þessir frönsku piltar eru frá París og neraa þrír þeirra stærðfrœði. Þeir komu í flugvél frá Glags- gow og hverfa heim eftir hálf an mánuð í háskólann á ný. Þegar við þökkum piltinum fyrir samtalið, sjáum við að hann er með bók fyrir fram an sig sem hann gerir sig lík legan til að fara að lesi í. í ljós kemur að bókin er kennslubók í íslenzku. Næst fökum við tali 25 ára gamlan Þjóðverja, Albert Teichman að nafni, sem er smávaxinn, með snyrti lega klippt alskegg, klæddur peysu og pokabuxum að þýzk um ferðasið, íhugull að sjá og hljóðlátur í fasi, hvaV)" yf irleitt ekki er sérstakt ein- kenni þýzkra ungmenna, a. m ekki þar sem þau eru mörg saman. — Hvenær komsf þú hing að? — 29. júní frá Kaupmanna höfn með Dronning Alexand rjne. Annars vinn ég í Sviss. . — Ert þú einn á ferð? —• Nei, við erum tveir, vA fyrir nokkru er við vorum sarpan austur í Vík, vildi vin ur minn, sem nemur landa- fræð og dýrafræði, vera þar lengur og fara lengra austur, en ég kaus hins vegar að fara hingað strax, en við hittumst hér aftur eftir nokkra daga. Sjálfur hef ég sérstakan á- Verið að aðstoða tvo útlendinga í farfugla heimilinu í Austurbæjarskólanum. huga fyrir fuglum og fugla- lífi, þótt ekki sé ég stúdent. — Svo það hefur þá aðal- lega verið af náttúrufræðileg um áhuga, sem þið komuð til landsins? — Já. — Hafið þið skipulagt ferð ir ykkar um landið sjálfir? — Já, nema hvað við feng um góðar upplýsingar hjá Dr. Finni Guðmundssyni um hvar ýmsa fugla væri að finna, sem við vildum sjá. Við fór um svo til Vestmannaeyja, sem er mjög fuglríkur staður og skoðuðum bæði Heimaey og Elliðaey, en til þeirrar síð arnefndu fórum við með mönnum, sem þangað fóru til lundaveiða. Við vorum sér- staklega hrifnir af þeirri ferð_ Sú eyja er mjög merkileg fyrir fuglalíf sitt, þar eru t. d. fuglar sem finnast hvergi nema á íslandi, og halda sig mikið á Elliðaey. Hér eru einnig 3 andategundir sem hvergi finnast í Evrópu nema á íslandi Vestmarmaeyjar Houzel Við snérum okkur fyrst að frönskum pilti Houzel að nafni. Hvers vegna lá leið þín til íslands? — Ég veit það eiginlega ekki, Þó þekkti ég einn Frakka, sem hafði verið hér og lét vel af landinu, og einn okkar fjögurra, sem hér eru saman núna, hefur verið á hinum Norðurlöndunum. Við höfðum annars nær eingöngu farið í ferðalög til Miðjarðar hafsins og langaði að breyta heim, fyrst til Bograrness og síðan til Reykjavíkur. — Hvert skal halda næst? — Okkur langar norður Kjöl, gangandi frá Gullfossi norður. — Hvað finnst ykkur um landið? — Það finnst okkur fallegt og sérstaklega þó ólíkt þeim löndum sem við höfum áður kynnzt, ekki sízt hraunið og eldfjöllin. Einn okkar er líka að nema dýrafræði og hefur sérstakan áhuga fyrir fuglum hér. — Hafið þið kynnzt nokkr um íslendingum? Svarið er stutt nei Yfir til að fara norður á bóginn í þetta skipti. — Búnir að vera hér lengi? — í hálfan mánuð. — Hvert hafið þið farið? — Vestur á Snæfellsnef, að Búðum, til Ólafsvíkur og upp í hlíðar Snæfellsjökuls, en þar var þoka og því ekki hægt að ganga á jökulinn. Við fórum líka með áætlun- arbíl til Patreksfjarðar og vorum þar í þrjá daga, en fengum að sitja í vörubíl FARFUGLAHEIMILI er til húsa í nokkrum stofum í Austurbæjarskólanum. Þa'ð er opið yfir sumartímann og sjá Farfuglar hér í Reykjavík um reksturinn endurgjaldslaust í frístundavinnu, og mun þaS vera nokkurt starf, því þarna gista á nóttu hverri um 20— 30 manns, en reynt er að hýsa alla sem þangað leita. Gjaldið er 15 krónur, sem er reyndar hið sama um alla Ev rópu. Þessi heimili cru mjög mikið notuð af ungu fólki í V-Evrópu í dag, allt frá Sikiley til Norður-Noregs og gegna bæði- fræðandi og menntandi hlutverki, því þau gera mörgu ungu fólki mögu legt að ferðast, sem eltki værj það kleyft þyrfti það að greiða fyrir dýrar hótelgist- ingar." Þar við bætist hinn já kvæði félagslegi þáttur far- fuglaheimilanna. Á hverjum morgni verða þeir, sem gist hafa, að búa um sig, þrífa her bergi, ganga og eldhús og sjá um að halda heimilinu hreinu, og unga fólkið, sem oft er af mörgum þjóðernum, kynnist þarna og þarf iað starfa saman. Þetta er því mjög þarfur félagsskapur og leggur tvímælalaust fram sinn skerf til !að auka gagn- kvæma kynningu milli Þjóða og uppræta misskilning og missætti. Sá sem þetta skrifar hefur notið ánægjulegra gistinga í þessum heimilum allt frá Hamborg og London til Cata níu og Palermo. Erlendis styrkir hið opinbera starf- semi farfugla vegna þeirrar alþjóðlegu þjónustu, sem þeir leitast við að veita. Fyrir nokkrum dögum hitt um við nokkra farfugla að máli í Austurbæjarskólan- um. Þá stundina voru Eng lendingar þar fjölmennastir, þá Þjóðverjar, iFrakkar og Svisslendingar, og þar mátti meira að segja hitta stúlkur alla leið frá Ástralíu. ^ 10. ágúst 1961 — Alþýðublaðið

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.