Alþýðublaðið - 17.12.1961, Page 2
JUtstjórar: Gísli J. Ástþórsson (áb.) og Benedikt Gröndal. — Fréttastjóri:
Björgvin Guðmundsson. — Símar: 14 900 — 14 902 — 14 903. Auglýsingasími
14 906. — Aðsetur: Alþýðuhúsið. — Prentsmiðja Alþýðublaðsins, Hverfisgötu
S—10. — Áskriftargjald kr. 55,00 á mánuði. í lausasölu kr. 3,00 eint. Útgef-
andi: Alþýðuflokkurinn. — Framkvæmdastjóri Sverrir Kjartansson.
Orrusfan um Ölfusárbrú
ÞEGAR „vinsæl“ mál eru á ferðinni, 'bítast alþing
ismenn stundum eins og krakkar um það, hver
hljóti heiður af málinu. Tökum til dæmis brúna
yfir ósa Ölfusár, sem allir virðast skyndilega sam
mála um að hljóti að koma, áður en langt um líður.
Karl Guðjctfásson og tveir framsóknarmenn
fluttu við afgreiðslu fjárlaga tillögu um 25 millj-
óna ríkisábyrgð fyrir þessa væntanlegu brú. Þeg-
ar Tíminn sagði frá tillögunni, var Karl ekki tal-
inn fyrsti flutnihgsmaður hennar, heldur þriðji,
íil að framsóknarmennirnir f<?ngju heiðurinn!
Ekki gat Morgunblaðið við þetta ástand unað,
enda blað Ingólfs Jónssonar ráðherra, sem einnig
er þingmaður Suðurlands, svo sem Karl og frani-
sóknarmennirnir tveir. Moggi lýsti í gær yfir, að
þessilr tillöguþremenningar eigi aldeilis ekkert í
þessu brúarmáli, heldur hafi það verið rætt af
mikilli alvöru í ríkisstjórninni og Ingólfur þar
heitið að láta sína menn undirbúa brúna fyrir
Sunnlendinga. Það er því augljóst mál, að Ingólfs
verður heiðurinn — þegar brúin kemur.
Nú vantar ekkert á þessa glæsilegu mynd —
nema hlut Alþýðuflokksins, og hann er ekki
minnstur. Alþýðublaðið vill upplýsa þetta um
málið:
Það getur enginn af núverandi þingmönnum
Suðurlands eignað sér heiðurinn af upphafi brú-
armálsins. Hann gengur til fyrrverandi þing-
manns Árnesinga, Jörundar Brynjólfssonar, sem
fékk þessa brú tekna á brúarlög árið 1953. Eftir
- það sofnaði málið og heyrðist ekkert um það, þar
til ungur Alþýðuflokksmaður, Unnar Stefánsson,
tók sæti á alþingi sem varamaður snemma árs
1960. Hann flutti tillögu um brúna. Var þá ekki
laust við að þingmenn brostu að skýjaborgum
þessa unga manns, og tillaga hans dó drottni sín-
um í þingsölunum. Næsta ár tók Unnar aftur sæti
á þingi um skeið og flutti á ný tillöguna um
brúna. Karl Guðjónsson var svo vitur í þá tíð, að
hann talaði um brúarmál Unnars með háði og
spotti á kjósendafundum. í annarri atlögu komst
Unnar svo langt, að málinu var vísað til ríkis-
stjórnarinnar, enda þykir það örlítið meiri kurt-
í eisi en að láta mál sofna í þingsölunum sjálfum.
5 Þannig stendur þá orrustan um Ölfusárbrú. En
^skyldi ekki Sunnlendingum finnast, að rétt hefði
verið af þingmönnum þeirra að koma brúnni upp
fyrst — og rífast svo um heiðurinn af verkinu?
'Áskriftarsíminn er 14-901
JÖLAINNKAUP
meiri vörur, betri vörur fjölbreyttari
vörur, ódýrari vörur. )
Ferskjur 5 teg. frá kr. 20.00 dósin ’
Ferskjur 3 kg. kr. 72.00 ’
Perur 4 stærðir frá kr. 19,95 ;
Búðingar hollenzkir frá kr. 1,50 pk. f
Gr. baunir Beuavais kr. 15.85 ds. '
Ananas kr. 21.35 ds. ’
Döðlur kr. 5.20 pk. ?
Döðlur í lausri vigt kr. 26.40 kg.
Sultutau útlent kr. 19.60 glasið
Haframjöl V2 kg pk. kr. 2.70 pk.
Valhnetukjarnar — Heslihnetu-
kjarnar — Möndlur — Súkkat —
Svart sýróp — Döðlur — Fíkjur
margar teg. — Valhnetur — Bland-
aðar hnetur — Parahnetur — Kon-
fektrúsínur — Kerti — Spil —
Hunang. — Deliciuseplin, Appelsín-
ur — Konfektkassar Bökuna-
vörur.
Hvað vantar í hátíðarmatinn?
Bara hringja svo kemur það.
1
Undrið mesta. Amer-
ískj miðillinn Arthur
Ford Ævisaga rituð af
Margueritte Harmon
Bro. Svcinn Vkingur
^slenzkafði. Víkurút-
gáfan 1961.
BÓK sú sem hér um ræðir,
er eftir ameríska skyggnimið-
ilinn Arthur Ford. Er þetta að
nokkru léyti ævisaga hans og
þó fremur saga hinnar sálrænu
reynslu hans, allt frá þeim tíma
á stríðsárunum fyrri, er hann
Varð var þeirrá fyrirbæra, er
urðtt til að skapa lífi hans
stefnu og tilgang.
Arthur Ford er nafnkunnur
þevm er þekkja til sálarrann-
sókna. Hann hefur um langt
UNDRIÐ
skeið verið talinn í röð merk-
ustu miðla. Fyrr á árum hafði
hann kynni af Arthur Conan
Doyle og Hannen Swaffer, sem
kunnir eru úr sögu sálarrann-
sóknanna. Arthur Ford ferðað-
ist víða um Evrópu, m.a. um
England Þýzkaland og Norð-
urlönd. Leið hans lá til Egypta-
lands og Ástralíu, og allsstaðar
vöktu fundir hans hina sömu
athygli, og ýmiskonar rann-
sóknir er gerðar voru á f undum
MESTA
hans, bar að einum og sama
brunni.
Síðari hlutj bókarinnar er
einskonar leiðsögn í sálrænni
þjálfun og andlegri þroskavið-
leitni, skilmerkilega framsett
án nokkurs áróðurs fyrir því
sem venjulegast er kallað sálar
rannsóknir. Þessi hluti bókar-
innar er athygliverður og lær-
dómríkur hverjum þeim er
hugsar um andleg efni og vill
Framhaid á 12. síðu.
£2 11. des. 1951 — Alþýðublaðið