Alþýðublaðið - 17.12.1961, Side 16

Alþýðublaðið - 17.12.1961, Side 16
\Lmsm> 42. árg. — Sunnudagiir 17. des. 1961 — 285. tbl. þúsund tunnur FINS og kunnugt er liafa síld- veiðarnar vestanlands og sunn an gengið mjög vel ]>að sem af er. Nú hafa borizt á land rúm- tega 400 þúsund uppmæJdar tunnur, og hefur töluveröur htut; a£ þessu magni farið í Drangajökull kemur í kvölú DRANGAJÖKULL, hið nýja skip Jökla h.f. kemur hingað tií Reykjavíkur í kvöld. Þetta skip var sm«ðað í stað Dranga jökuISj sem ' fórst á Pentlands firði í fyrra. Þetta nýja skip er 2000 brúttótonn, og er sniíð að í Dest í Hollandi. Það var afnent félaginu í Rotterdam 8. desember sl. og veitti Ólafur Þórðarson fram- tioæmdastj óri félagsins skipinu fnóttöku. Skipstjóri á því er Ingólfur Möller, en 1. vélstjóri er Höskuldur Þórðarson. Skipið er mjög fullkomið frystiskip og er m. a. sérstak-1 ■fðga ' útbúið til ávaxtaflutn- j inga. Hingað flytur það vörur; frá Rotterdam og Hamþorg. salt. Þá hefur nokkur hluti afl- ans farið í frystingu, einnig hef ur síldin ver‘3 nýtt á annan hátt, t. d. súrsuð og fleira. Enn er eftir að salta upp' 1 gerða samninga, og munu vera eftir um 30 þúsund tunnur. Þá vantar mikið upp á að súrsildin hafi verið verkuð uop i samn- inga. Um þessar mund.r er ver ið að lesta fyrsta fatminn af saltsíld, sem á að far.a til Rúss lands, og er skip að taka hana í Keflavík og á Akranesi. Sérstakir matsmenn frá síld- armati ríkisins ásamt fulltrúa frá Rússunum hafa verið að at- huga síld na, sem á að fara á Rússlandsmarkað, en hún má ekki vera undir 15% að fitu- magni. Flokkarnir eru raun- verulega tveir annar frá 15 upp í 18%, en hinn frá 18% og upp úr. f gær hafði verið saltað á Akranesi í 26.639 tunnur, en þar hefur verið saltað á 6 stöðv um. í Reykjavík hafð; verið saltað á fimmtudag í 10.360 tunnur. Ekki er kunnugt um bræðslusíldarmagnið. Um frekari sölusamninga er ekkl vitað, en samningaumleit anir munu standa yfir. fwmwwwitwwiwtvvww dagsr ti! HAB- dags! ýt Jólavinningur: Volks- wagenbíll. Kaupið miða strax! WÍMMWVWVWWWAWJVVWtV Fljúgandi jólasveinn Húsavik í gær. Á MORGUN er væntanlcg liingað flugvél frá Flugfélagi íslands, og með henni kemur gestur, sem öll börn hér hlakka mikið til að sjá. Er það jólasveinn, scm kemur og heilsar upp á börnin, og fær- ir þeim jafnframt einhvern glaðning. Þessi heimsókn er á vegum flugfélagsins. Síðustu viku hefur verið hér gott veður, og hafa bátarn ir aflað mjög vel, Mikil og góð vinna hefur skapazt af þessu. Nú er orðið fært um allar sveitir, enda nær auð jörð. Skólafólk og aðrir eru nú að flykkjast' hingað til að eyða jólaleyfinu með fjölskyldum sínum. — Einar. 1 RÁÐGERT er að kaupa 5 nýja strætisvagna í Reykjavík á ár- inu 1962 tll endurnýjunar á eldri vögnum. Kaupverð þeirra mun verða um kr. 5 milljónir. Frá þessu er skýrt í greinar- gerðinni, sem fylgir fjárhagsá- ætlun Reykjavíkur 1962. ÁrlS 1960 voru greidd 2,9 m:Ilj. kr. í einstökum fargjöld- um fullorðinna, seldir voru 10,5 m.llj. kr. í afsláttarmiðum til fullorðinna. Þá var greidd í milljón í fargjöld barna og af- sláttarmiðar fyr:r 1,2 millj. Með hliðsjón af hækkun far- gjaldanna 1. sept. 1961 og fjölg un á strætisvagnaleiðum áætlast tekjurnar kr. 29 millj. 1962 og er þá frádreg'nn söluskattur. Aðrar tekjur SVR eru hagnaður j af söluturni í biðskýli við Kalk- ofnsveg og eru tekjur þar af á- ætlaðar 100 þús. næsta ár. Gert er enn fremur ráð fyrir 3ja millj. kr. framlagi frá bæjar- sjóði. uwwwvwwwwwwwwwwww Teiknar ÞESSI unga stúlka heitir Steinunn Þórisdótt ir til heimilis að Hring- braut 27. Hún var að teikna jólamyndir á skóla tt\fluna á laugardaginn, en allur skólinn var að færast * í hátíðarbúning fyrir litlu jólin barn- anna, senr haldin eru í dag og á morgun. Steinunn er 11 ára. — Hún getur , ekld aðeins . teiknað heldur líka lesið kvæði. Hún ætlaði að lesa Jólasveinavísur Jóhann- esar úr Kötlum á jóla- hátíðinni í dag, — og hún sagðist vera bú>n að æfa sig ósköpin öll. -— Henni var ekkert að van- búnaði að taka á móti jólunum, — búin að fá jólakjól og allt hvað eina. Það verða myndir frá litlu jólunum í þriðjudags blaðinu. ^MHWWWWWWWWWWMWI SVR kaupa 5 nýja vagna Kveikt á norska jólatrénu í DAG kl. 16 verður kveikt á jólatré því, sem Oslóborg hefur sent Reykvíkingum að gjöf og reist hefur verið á Austurvclli. Lúðrasveit Reykja víkur mun leika á Austurvelli stundarfjórðung áður, ef veður leyfir. Sendifulltrúi Norðmanna, Bjarne Solheim, mun afhenda Iréð í fjarveru ambassadors þeirra, en Geir Hallgrímsson borgarstjóri, veitir því viðtöku fyrir hönd bæjarbúa. Ungfrú Solheim kveikir á trénu, og dómkirkjukórinn syngur und- ir stjórn Páls ísólfssonar tón- skálds. FRIÐRIKSBERG, vinabær Hafnarfjarðar í Danmörkii, hefur scnt Hafnfirðingum jóla- tré eins og undanfarin ár. Kveikt verður á jólatrénu í aag, sunnudag, klukkan 5 síð degis, þar sem því hefur verið komið upp á Thorsplani. . Hr. Jens Ege, sendiráðsfull trúi Dana, mun afhenda jóla- tréð í fjarveru sendiherrans. Stefán Gunniaugsson bæjarstj. v’eitir því viðtöku og séra Garð- | ar Þorsteinsson talar. I Karlakórinn Þrestir syngur nokkur lög og Lúðrasveit Hafn arfjarðar og Lúðrasveit drengja leika. Bingó í Keflavík ALÞÝÐUFLOKKSFÉLÖG- IN í Keflavík hafa bingó í Ungmennafélagshúsinu í kvöld kl. 9. Aðalverðlaunin, ferð fyrir 2 til Kjuupmannahafnar með Gullfossi, auk margra smærri vinninga. Fjölmennið stundvíslega.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.