Alþýðublaðið - 17.12.1961, Síða 5

Alþýðublaðið - 17.12.1961, Síða 5
Á flótta og flugi. * 1 Unglingssaga eftir Ragnar Jóhannesson. s Útgefandi: Ægisútgáfan. RAGNAR Jóhannesson er löngu þjóðkunnur maður fyr- ir ritstörf, útvarpsfyrirlestra og önnur störf. Hann hefur samið marga skemmtiþætti, gleðisöngva og ljóð. Hann var eitt helzla skáld í skóla síns aldursflokks — og margt hef- ur honum verig til lista lagt. Nú hefur hann sent frá sér fyrstu skáldsöguna. Hún er samin fyrir unglinga, en þó ágæt bók fyrir fullorðið fólk, að minnsta kosti er ég svo Ragnar Jóhannesson. barnalegur, að ég skemmti mér vel við lesturinn. Þetta er ekki neitt smákver. Hún er í allstóru broti, um 170 blaðsíður að stærð. Bókin er mjög spennandi, þannig að ævintýrin reka hvert annað og glettinn svipur yfir allri frásögninni. Söguhetjurnar eru aðallega skólasystkin, piltur og slúlka. Fyrst framan af gætir stúlkunnar ekki að ráði. Þá eru piltarnir tveir, en síðar fer annar þeirra í sveit langt burtu og svo vill til að ein skólasystirin fer á næstabæ. Þar þerast ævintýr in flest Skrítnir karlar og kerlingar, fólk, sem ekki er við eina fjölina fellt, jafnvei smyglarar og misindismenn ganga ljósum logum, en börn in verða samrýmd og senda meri með flugdrekum — og leggja síðan á flótta yfir fyrn indin, lenda iangt upp á ör- æfum og. .. Ég segi ekki sög- una lengri. Þetta er varla eins og venju legar barnabækur, því að Ragnar Jóhannesson leggur alúð við persónusköpun sína. Hver maður, ungur og gamall, j hefur sinn sérstaeða — og sér- • kenniíega svip — og við- brögð þeirra eru í samræmi við hann. Það er ekki annað að sjá en að Ragnar hugsi sér fram-; hald þessarar bókar. Að! minnsta kosti læt ég mér ekki nægja annað en að fá meira af sögu barnanna. En sagan var lesin f útvarp af höfundi á síðastliðnu ári og náoi miklum vinsældum meðal yngri hlustendanna. V. S.V. BYRÐINGUR nefnist bók, sem Sveinafélag: skipasmiða í Rvík gefur út í tilefmi 25 ára afmælis • sins á þessu ári. Gunnar M.! Mágnúss rithöfundur tók saman. i í Byrðingi er að finna margs konar fróðleik um skipasmðíar til forna og fram á þennan dag. Sagt er frá skipum og skipalægi, heitum bátshlutanna trjáreka og t mburkaupum til srníða. í kafla, sem nefnist Skipasmiðir á 19. og 20. öld, er greint frá fjölda skipasmiða víðs vegar um landið og hinum merku störfum þeirra. i í bókinni eru 150 myndir af ; mönnum, skipum og atvinnufyr- irtækjum. Prentun og bókband annaðist Prentsmiðjan Hólar hf Fróðleg bók um skipasmíð- ar á íslandi Óskabók allra kvenna /t Bók handa unnustunni Bók handa eiginkonunni Bók handa móðurinni Bók handa öllum góSum vinum Ein bezta og skemmtilegasía hók, sem við höfum sent frá okkur á þeim 17 árum, sem við höfum gefið út 150 bækur. BÓKFELLSÚTGÁFAN Þessi sendibréf ná yfir 100 ára tímabil og eru skrifuð af 14 konum. Þarna eru m. a. bréf frá Ragnheiði dóttur Finns biskups, Ragnheiði, tengda dóttur Skúla fógeta, Jak- obínu, konu Gríms Thom- sen og Ingibjörgu, móð- ur hans og frá Sigríði, móður Nonna (Jóns Sveinssonar). í bréfunum koma kon- urnar til dyra eins og þær eru, segja opinskátt frá ástum sínum og á- hyggjum, gleði og sorg- um. Þetta er frábær bók, sem jafnt konur sem karlar á öllum aldri munu hafa ánsegju af. Jólasöngvar í Neskirkju EINS og á sl. árj gengst Bræðra félag Nessóknar fyrir almenn- um jólasöngvum nk. sunnurlag 17. des. kl. 2 e. h. í Neskirkju. Þar syngur banral;ór undir stjórn Eru Stsfinsdóttur söng- kennara nokkur jóUlög, lesnar verða ritningargreinar urn boð- skap jólanna, og annast leik- menn þann lcstur, þá leiðir org anisti og k rkjukór almeunan safnaðarsöng, þá jóiasálma sem sungnir verða hefur félagið lát- ið sérprenía fyrir aíja kirkju- gesti svo auðveldara verði rð taka undir. Sóknarpres'arinn sr. Jón Thorarensen annast altarisþjón ustu. Markmiö júlásöngvn er að sameina hugi cem flestra til unct irbúnings að komu jólanna. Söngurinn er e-n æðsta náðar - gjöfin, sem maður-mn heiuí- hlotið, same.'numst því öll í jóla söngvum og syngjum sanna jóla gleði í hvei’s manus hug og Ihjarta. I j Á síðustu jólasingvum í Kra , kirkju var fjöimenni svo mikið sem kirkjan frekast rúmað’, og vænta má að svo veroi einnig nú. NÝJARJðLABÆKUR MlN LILJAN FRÍÐ, ný frábær skáldsaga eftir Ragnhei ði Jónsdóttur. Ragnheiður hefur undanfarin ár sótt hratt fram og upp í sæt; hinna fremstu höfunda. Þessi nýja bók hennar markar alger tímamót á skáldskaparferli hennar, svo mjög er hún fremri öllu, er hún hefur skrif að áður. — Þetta er jólabók kvenfólksins. GRÝTTAR GÖTUR heitir nýtt safn smásagna eftir Jak ob Thorarensen. Jakob þarf ekkj að kynna íslenzkum lesendum, en hann er jafnsnjall sagnahöfundur og ljóðs káld, en bar skinar hann nú sæti með þeim fremstu. —, Jakob fer ekki troðnar götur í skáldskap sínum, leiðir han liggja ævinlega utan alfaravegar, en frásagnargleði < hans og húmor er rammíslenzkt. A’ðrar nýjar Helgafellsbækur: Ásmundarbókin, Sjálfst ætt fólk, Atómstöðin, Strompléikurinn, Sögur að norðan, Sjálfsævisaga Pasternaks, Nýja íslandssagan „ísland í máþ og myndum“. HELGAFELLSBÆKUR Eyðið ekki meira fé en nauðsynlegt er. Verz lið í Unuhúsi, Veghúsastíg 7. — Sími 16837.1 -------------------------------h Aíþýðublaðið — 17. des. 1961

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.