Alþýðublaðið - 09.01.1962, Síða 13

Alþýðublaðið - 09.01.1962, Síða 13
KUL í HLÁTRI INNAN skamms frumsýnir Þjóðleikhúsið le.kritið HÚS- VÖRÐINN eftir brezka leik- ritahöfundinn Harold Pinter. Leikr.t þetta gerist í Eng- landi í dag eða í gær. Það fjall ar um þrjá menn, sem velkjast um lífsins ólgusjó, en hver siglir sinn eig nn sjó. Húsvörðurinn er gefinn fyrir að vinna í höndunum, gera v ð bilaða raftengla og saga. Kann ski ætlar hann einhverntíma að byggja skúr úti á grasflöt- inni. Hann hefur boðið landshorna mann num DAVIES upp á rúm til að sofa í, á meðan hann er að athuga sinn gang. Davies sefur í rúminu, sem í fyrstu var falið undir drasli, en var í rauninni rúmið hans MICK, bróður hús- varðarins, eða hennar gömlu móður hans. Le kritið fer allt fram í her bergi húsvarðarins og þar er allt á tjá og tundri og þar er mikið drasl. Um atburðarrás er ekki að MYfÍDIR bessar eru teknar af K. M. á æfingu á le'kritinu Ilúsvörðurinn. — Valur Gíslason og Gunnar Eyjólfsson. ræða í þessu leikriti né liggur djós fyrir neinn sérstakur til- gangur sem höfundur kunni að hafa á bak við eyrað, — nema það aðeins að bregða upp mynd af þessum þrem mönnum — e ns og þeir eru — en hvorki eins og þeir voru — né eins og þeir verða. Þetta hefur m.a. verið sagt um leikrit Harold Pinters: ,,Það sem e nkennir þau einna mest er, að þar eru þverbrotin þau lögmál, sem áhorfandinn býst við og á að venjast. Þár eru engar útskýringar á því, sem gerist, engar ástaaður gef nar fyrir neinu. Persónurnar eru ekki skýrðar á ne'nn hátt, — það er ekkert gefið upp um það, hvaðan þær komu, hvað þær vilja, — né hvert þær eru að fara. Að horfa á leikrit eft ir Harold Pinter hefur verið líkt v ð það að eiga leið fram hjá götubardaga eða koma að slysi. Vegfarandinn fylgist með atburðunum af áhuga, og virð ir fyr r sér hlutaðeigandi. En hann veit ekkert meira um þá —- veit ekkert hvaðan þeir eru né hvers vegna þeir lentu í þessu. Hann veit ekkert hvað um þá verður, þegar hann sleppir af þeim sjónum og held ur áfram sína leið. Harold Pinter skrifar ein göngu fyrir s g sjálfan og eng an annan. Hann hirðir því ekki um að hjálpa áhorfendum við að skilja, hvað hann er að fara — né hafa áhrif á þá.. Hann nær þeim áhr fum, sem hann sjálfur vill ná( — og lætur þar við sitja. A yfirborðinu eru leikrit P nters gamansöm á köflum, — en það er „kukl í hlátrin- um“. Þegar leikritahöfundur neif ar skyldu súrir v'ð áhorfendur, er alltaf hætta á því, að hann noti tákn, er hann einn skilur, en hafa ekki gild fyrir aðra. Stundum hefur Harold Pinter fallið í þá gryfju“. INS er annars það að segja, að hann fæddist árið 1930. Út- skrifaðist úr leikskóla 18 ára gamall. Hefur fengizt við allt sem nöfnum tjá r að nefna í leikhúsþ bæði að tjaldabaki og í sviðsljósum. Hann hefur íeng- izt v.ð leiktjaldamálun, leik- tjaldasmíði, leik og leikritun, og efalaust fleira í þessum dúr Hann hefur ritað nokkra ein- þáttunga, og brezka sjónvarp- ið hefur opnað dyr sínar fyrir honum HÚSVÖRÐURINN var sýrd ur í London í ár, — nú er leik ritið sýnt á Breiðstræti í New York og innan skamrns í Þjóð leikhús nu. Leikstjóri hér er Benedikt Árnason. Davies er leikinn af af Gunnari Eyjólfssyni Mick er leikinn af Bessa Bjarnasyni. •—o—• Pinter er mjög nákvæmur í því, hvern g setja eigi leikrit hans á svið. Lengd og fjöldi þagnanna er til dæmis mikil væg í HÚSVERÐINUM, þar ,eru eflaust hnitmiðuðustu þagnir, sem þagðar hafa verlð á íslenzkum leikfjölum. •—o— Eflaust mun marga fýsa að sjá þetta fyrsta leikr.t Pinters, sem hérlendis er sýnt. Enginn skyldi láta dæma fyrir sig, —. heldur dæma sjálfur, eftir að hafa séð og heyrt. VALUR GÍSLASON —o— Um höfund HÚSVARÐAR- a BESSI BJARNASON Alþýðublaðið —• 9. jan. 1962

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.