Alþýðublaðið - 26.01.1962, Qupperneq 14
WLYSAVARÐSTOFAN
er opin allan sólarhringinn
Læknavörffnr fyrir vitjanir
•r á nou ataff kl. 8—18.
IHNNINGARSPJÖLD Kven-
félags Háteigssóknar eru af
greidd hjá Agústu Jóhanns
dóttur. Flókagötu 35, As-
laugu Sveinsdóttur, Barma
hlíð 28, Gróu Guðjónsdóti-
ur, Stangarholti 8, Guð-
björgu Birkis, Barmahílð
45, Guðrúnu Karlsdóttur,
Stigahlíð 4 og Sigríði Ben-
ónýsdóttur. Barmahlíð 7.
Skipaútgerð
rikisins h.f.:
Hekla er væntan-
leg til Rvk í dag
að vestan úr
hringferð. Esja
er á Austf jörðum á suðurleið.
Herjólfur fer frá Rvk kl. 21
í kvöld til Vestmannaeyja. —
Þyrill er væntanlegur til
Karlshamn í dag. Skjaldbreið
er í Rvk. Herðubreið er vænt
anleg til Rvk í dag frá Breiða
fjarðarhöfnum.
Hafskip h.f.:
Laxá fór 23. þ. m. frá Reyð
arfirði áleiðis til Napoli, Pi-
• reus og Patras.
Jöklar h.f.;
Drangajökull fór frá Rvk
23.1. áleiðis til New York.
Langjökull er á leið til ís-
lantjs frá Hamborg. Vatnajök
itll fór í gær frá Rotterdam á-
leiðis til Rvk.
Happdrættishíll Krabbameins
félagsins genginn út. — Big-
endur vinningsnúmersins í
happdrætti Krabbamehisfél.
Reykjavikur, sem dregið
var í á Þorláksmessu s. 1.,
hafa nú gefið sig fram og
fengið afhentan vinninginn,
sem var nýr og ókeyrður
Volkswagen-bíll. Vinning-
inn hlutu Erla Hannesdótt-
ur og Jón Hannesson, Rvk.
S. G. T. - félagsvist% er í
kvöld kl. 9.
Bæjarbókasafn Reykjavíknr
Sími 12303 — Aðalsafnið
Þingholtsstræti 29 A: Útián
10—10 alla virka daga, nema
laugardaga 2—7. Sunnudaga
5—7 Lesstofa: 10—10 alla
virka daga, nema laugerdaga
10—7. Sunnudaga 2—7. Úti.
bú Hólmgarði 34 Opið 5—7
alla virka daga nema laugar
daga. Útibú Hofsvallagötu 16:
Opið 5.30—7 80 alla v}rka
laga
Flugfélag
íslands h.f.:
Millilandaflu/:
Gullfaxi fer til
Oslo, Kmh og
Hamborgar kl.
08,30 í fyrra-
málið. — Inn-
anlandsflug: í
dag er áætlað
að fljúga til Akureyrar (2
ferðir), Fagurhólsmýrar, —
Hornafjarðar, ísafjarðar, —.
Kirkjubæjarklausturs og Vest
mannaeyja. — Á morgun er
áætlað að fljúga til Akur-
eyrar (2 ferðir), Egilsstaða,
Húsavíkur, ísaf jarðar, Sauðár
króks og Vestmannaeyja.
Loftleiðir h.f.;
Föstudag 26. janúar er
Snorri Sturluson væntanlegur
frá New York kl. 05,30. Fer
til Luxemburg kl. 07,00. Þor
finnur karlsefni er væntan-
legur frá Hamborg, Kmh Gtb,
og Oslo kl. 22,00. Fer til
New York kl. 23,30.
Frá Guðspekifélaginu: Stúk-
an Septíma heldur fund kl.
8,30 í kvöld í Guðspekifé-
lagshúsinu. Sigvaldi Hjálm-
arsson flytur erindi,- „Gró-
andi sálarlíf“. Kaffi á eftir.
Afmælisfyrirlestur háskólans.
Næstkomandi sunnudag, þ.
28. janúar flytur próf.
Magnús Már Lárusson ann-
að erindi í erindaflokki
þeim, sem stofnað var til
vegna 50 ára afmælis Há-
skóla íslands. Er það yfir-
litserindi um Frændsemis-
og sif jaspell í heiðni og ka-
þólskri kristni á íslandi.
Föstudagur
26. janúar:
13,25 „Við vinn.
una“: Tónleikar.
18,00 „Þá riðu
hetjur um hér-
uð“: Guðmund-
ur M. Þorlákss.
segir frá Kjart-
ani, Bolla og
Guðrúnu. 20,00
Daglegt mál
(Bjarni Einars-
son eand. mag )
20,05 Efst á baugi (Björgvin
Guðmundsson og Tómas
Karlsson). 20,35 Frægir söngv
arar; 11.: Gérard Soir/.ay syng
ur. 21,00 Ljóðaþáttur: Dr.
Broddi Jóhannesson les
kvæði eftir Sveinbjönr Egils-
son. 21,10 Samleikur á fiðlu
og píanó (Louis Gabowit?: og
Harriet P. Salerno leika). —
21,30 Útvarpssagan,- „Seiður
Satúrnusar", VII. (Guðjón
Guðjónsson 22,10 Erindi: —
Fjárhagur Sameinuðu þjóð-
anna (Hannes Kjartansson
aðalræðismaður). 22.30 Á síð
kvöldi: Létt—klassisk tónlist.
23 25 Dagskrárlok.
SAUÐARKROKUR
Framhald af 13. síðu.
135,136,39 sem sömuleiðis er
afskrifað.
Eftir upplýsingum, sem
fram komu á aðalfundi Hf.
Norðlendings í janúar 1960
virðist ekki viðurkennd mót-
taka á nema kr. 381,000,00
hjá Norðlendingi h.f. og þarf
því að upplýsa um mismun-
inn kr. 336,044,66.
Þegar hluti í skipinu var
keyptur, lýstu talsmenn tog-
arakaupanna því yfir, að séð
væri um i samningum við
ríkissjóð, sem var seljandi,
að gjaldendum í bænum
skyldi ekki íþyngt með álög-
um vegna reksturshalla á
skipinu. Má telja að þessi yfir
lýsing á borgarafundi hafi
vegið þungt um samþykki
fundarins á kaupunum. Upp-
lýsl var á bæjarstjórnarfundi,
þegar togarinn var þoðAnn
upp, að nokkrar efndir yrðu
á þessu og hvert hinna þriggja
bæjarfélaga, sem búin voru
að leggja fé til útgerðar skips
ins fengju kr. 300,000,00 frá
ríkissjóði i sárabætur. Sú upp
hæð sést ekki á reikningun-
um. Spurðum við um hana,
þegar reikningarnir fóru til
afgreiðslu og fengum þær upp
lýsingar, að féð hefði verið
lánað Fiskiveri Sauðárkróks
h.f. og meira að segja hefði
værið slegið lán út á loforðið,
áður en ríkissjóður greiddi.
Teljum við óforsvararlegt, að
þessi viðskipti skuli ekki sjást
í reikningunum og að allar
skuldir togarafélagsins skuli
vera afskrifaðar á bæjarreikn
ingi, án þess að þessi greiðsla
kr. 300,000,00 hafi verið
dregin frá og án þess að gert
sé ráð fyrir fjárframlagi á
fjárhagsáætlun 1961 til þess
að mæta eftirstöðvum af hall-
anum.
6. Beinaverksmiöja og
Niðursuðuverksmiðja :
Á eignahlið bæjarreikn-
ings 1956 sést að bæjarsjóð-
ur hefur verið búinn að
leggja út kr. 459,556.54 vegna
stofnkostnaðar og reksturs
þessara „fyrirtækja.“ Pæikn-
ingur Framkvæmdasjóðs
fylg:r ekki með reikningi
1956, en telja má víst, að þá
hafi verið búið að lána úr
sjóðnum kr. 100,000,00 sem
enn standa þar sem skuld. —
Hefur bæjarsjóður því verið
búinn að greiða kr. 559,556,-
54 til þessara fvrirtækja. í
árslok 1960 er skuld við bæj-
arsjóðs komin niður í kr. 152,-
765.54 og verður ekki séð að
lækkunin hafi verið gerð
með því að afskrifa þessi töp
yfir rekstursreikn;ng undan-
farandi bæjarreikninga nema
kr. 100.000,00, sem færð-
ar eru undir lið:nn Afskrift-
ir á reikningi 1960, án
þess að gert hafi verið ráð
fyrir þe:m útgjöMum á fjár-
hagsáætlun. Teljum við að
sýna þurfi afdrif þessara fyrir
tækja með því að skilað verði
með reikningunum efnahags
reikningi undanfarandi ára
fyrir þau.
7. Atvinnuaukningarlán :
Við tel^um að skuldir vegna
atvinnuaukningarlána séu
ekki rétt færðar á reikningun
um og beri að breyta þeim
og leiðrétta færslu lánanna og
áfallinna vaxta.
8. Hitaveita. (Reikningur
1960):
Höfuðstólsreikningur
HUaveitunnar 1960 er lækk-
aður um kr. 150,000,00 án
þess að fullnægjandi skýring
sé gefin, hvernig á þeirri
lækkun stendur, og virðist
okkur ekki koma fram á
rekstursreikningi fyrir-
ins, að um réttmæta lækkun
á höfuðstólnum geti verið að
ræða.
9. Hafnarsjóður (Reikn-
ingur 1960).
Höfuðstólsreikningur
hafnarsjóðs er lækkaður um
kr. 378.190,65 með leiðrétt-
ingum ýmissa lána, sem talin
eru hafa verið „ófærð“ og
”vanfærð“. Hér teljum við
vafa leika á, að rétt sé að farið
og teljum þörf á að fullnægj-
andi skýringar verði gefnar á
því, hvaða rekstursáhrif
þessar ,,lántökur“ hafa hafl.
10. Fiskiver
Sauðárkróks h.f.
Bæjarsjóður er eigandi að
4/5 hlutum hlutafjár í þessu
fyrirtæki og stofnaði það í
félagi við fyrri eigendur
Hraðfrystistöðvarinnar h.f.
og Fiskimjöls h.f. á Sauðár-
króki til kaupa á eignum
þeirra fyrirtækja. 'Var þetta
gert í byrjun árs 1957. Hafa
hlutabréf meðeigenda skipt
tvisvar um eigendur á tíma-
bilinu. Við teljum að sérstakr
ar rannsóknar þurfi við á því,
hvort meðeigendur standa
við ábyrgðir og greiðslur til
fyrirtækisins til jafns við
bæjarsjóð, einkum þegar vit-
að er að fyrirtækið hefur
gengið illa og rekslurshalli
þess orðinn í árslok 1960 um
4,5 milljónir króna eða meira.
samanber lið 4 hér að fram-
an. Við höfum átalið, að út-
lán til fyrirtækisins frá bæj-
arsjóði raunu ekki hafa verið
látin bera vexti og teljum það
ranglátt gagnvart gjaldend-
ufti í bænum og óviðeigandi
styrk til meðeigenda.
Við teljum sérstaklega at-
hugavert í reikningi 1960, að
hlutafé bæjarins, sem er að
nafnverði kr. 200 þús. er til-
fært sem eign að upphæð kr.
1,282,400.00 Þessi eignaaukn-
ing, sem kemur fram á einu
ári (1960) kemur ekki fram á
hækkun höfuðstólsreiknings
og þarf því að skýra, hvaða
áhrif hún hefur á aðra liði
efnahagsreikningsins. Ekki
lítur út fyrir að eignaaukn-
ingin verði með tilliti til
reksturs fyrirtækisins sjálfs,
þar sem um svo stórfelldan
hallarekstur hefur verið að
ræða á því, eins og að framan
segir.
Teljum við, að nauðsyn
beri til, að borin verði sam-
an færsla á efnahagsreikn-
reikningi fyrirtækisins og til-
færðum skuldum við bæjar-
sjóð og bæjarfyrirtæki.
Með skírskotun til framan
ritaðs, teljum við reikninga
bæjarsjóðs Sauðárkróks fyrir
árin 1959 og 1960 þannig úr
garði gerða, að þeir þurfi all-
ir nánari endurskoðunar við.
Kærum við hér með yfir af-
greiðslu meirihluta bæjar—
stjórnar á reikningunum og
förum þess á leit við hið háa
Félagsmálaráðuneyti, að það
vindi bráðan bug að því að
láta nýja endurskoðun fara
fram á þeim og að reikning-
unum verði síðan komið í rétt
horf að þeirri endurskoðun
lokinni.
Virðingarfyllst.
Erlendur Hansen.
Skafti Magnússon.
KIPPÍR
af 16. síðu.
Jarðskjálftakippir þessir
virtust eiga upptök sín í um
300 km. fiarlægð frá Reykja-
vík, og gætu því hafa átt upp
tök sín í næsta nágrenni við
Grímsey.
Þökkum hlýhug og samúð við andlát og jarðar-
för móður okkar,
JÓNÍNU STEINUNNAR JÓNSDÓTTUR,
Túngötu 8, Siglufirði. Þökkum einnig öllum þeim, er
glöddu hana með heimsóknum og vinarhug á liðnum
árum.
Jakobína Björnsdóttir, Unnuv Björnsdóttir,
Ólöf Björnsdóttir, Indriði Björnsson.
14 26. j,an. 1962 :— Alþýðublaðið
•••-' ..•••■ • ' -v‘v' "-l - '•■•'■