Alþýðublaðið - 16.03.1962, Blaðsíða 4
Veltuútsvarið
hýerfur, lands-
útsvarið kemur
r ■ t
\ j HINJJ nýja stjórnarfrumvarpi
u|ni tekjiistofna sveitarféiaga eru
tnjög mörg nýmæli. Sagt er frá
.raeðu fjárniálaráðherra um frum-
varpið annars staðar í biaðinu en
fiér fara einnig á eftir nokkur at-
riði um frumvarpið:
' Lengi undanfarið hefur verið
uhnið að gerð þessa frumvarps. 7.
desember 1959 skipaði f jármálaráð-
h'erra eftirtalda menn í nefnd til
þess að endurskoða íýldandi á-
kvæði um tekjustofna sveitarfé-
lága og semja frumvarp til laga
Um þau efni: Birgi Finnsson, alþm.,
LrUðlaug Gíslason, alþm., Hjálmar
Vilhjálmsson, ráðuneytisstj., form.
nefndarinnar; Jónas Guðmundsson
•form. Sambands ísl. sveitarfélaga
og Tómás Jónsson, varaformann
Sambands ísl. sveitarfélaga, sem
var ■ fundarritari nefndarinnar.
( Nefndin skilaði frumvarpi til
Jaga um: Jöfnunarsjóð sveitarfé-
laga og öðru frumvarpi um bráða-
■birgðabreytingu á útsvarslögunum,
sem bæði vor.u lögfest á alþingi
1960. Hefur nefndin síðan unnið
að éndurskoðun ákvæða um tekju-
stofna svéitarfélaga. Helztu ný-
mæli friynvarpsins eru þessi:
1. í stað. heimildar til að leggja
j á. fasteignaskatt er gert ráð fyr-
, ii- að fasteignaskattur verði lög-
1 ákveðinn og heimild veitt til
liækkunar hins lögboðna fast-
éignaskatts um allt að 200%
^ . (þreföldun).
é. Álagning veltuútsvars verði af-
1 numin.
3.. Heimild verði veitt sveitarfélög-
tlm til þess að innheimta að-
. stöðugjald áf atvinnurekendum
. og öðrum þeim, sem hafa sjálf-
4 'stæða atvinnu.
4. Ríkisfyrirtækjum og olíufélög-
. um verði gert að greiða lands-
' útsvör, sem renni í Jöfnunar-
sjóð sveitarfélaga Fé þessu
verði úthultað til sveitarfél.
eftir sömu reglum og söluskatts-
, hlutanum, að undanskildum
., fjórðungi, sem greiða ber sveit-
arfélagi því, sem landsútsvarið
fellur til í.
5. Skerðing á framlagi Jöfnunar-
sjóðs^ minnkar þannig, að hún
* miðast við 60% af samanlögð-
um fasteignasköttum, aðstöðu-
• gjöldum og útsvörum í stað 50%
: af útsvörum. Ennfremur verði
ráðherra heimilað að halda eftir
1% af tekjum Jöfnunarsjóðs
unz sjóðurinn nemur allt að kr.
5.000.000.00, svo að hann verði
jafnan fær um að annast lilut-
. yerk sitt, sbr„ 15. gr. b.-e.
€. í stað þriggja mismunandi út-
- syarssjtiga, sem nú gilda, sam-
X kvæmt logum nr. 43/1960, verði
. sama regla látin gilda um allt
landifi, sem þó verði heimiiað
að víkja frá, svo sem nánar
gr.einib í 32. gr. frumvarpsins.
Skattstjórar annist álagningu
utsvara, en vex-ði þó bundnir af
úrskuf.ðum sveitarstjóra eða
framtalsnefnda á íramtölunum,
svo sem nánar greinir í 44. gr.
sbr. þó 45. gr., þar sem sveitar-
stjórnum fámennari sveitarfé-
laga er heimilað að leggja út-
svörin á, án milligöngu skatt-
stjóra.
Nánari greinargerð fyrir nýmæl-
um þessum er gerð í athugasemd-
um við einstakar greinar frum-
varpsins, eftir því sem ástæða þyk-
ir til.
nwwwwmwwwMWwwi
„Gestagangur"
LEIKRIT hins unga höfund-
ar SigurSar A. Magnússonar
„Gestagangur" er sýnt í ÞjóS-
leikhúsinu um þessar muhd-
ir. Leikurinn hefur hlotið góða
dóma gagnrýnenda og þykir
ágætt byrjandaverk. Mynd-
in er af Herdísi Þorvalds-
dóttur cg Gunnari Eyjólfssyni
í hlutverkum sínum.
ALLSHERJARNEFND samein-
aðs þingrs hefur nú mælt með
samþykkt á tillögu þeirra Bene-
dikts Gröndal, Eggerts Þorsteins-
sonar og Hjartar Hjálmarssonar
um bætta aðstöðu og meira ör-
yggi fyrir. trillubáta. Má telja ör-
uggt, að tillagan verði samþykkt.
Gerir tillagan ráð fyrir, að rík-
isstjórnin láti athuga gaumgæfi-
Iega, hvernig unnt Sé að bæta að-
stöðu trillubátasjómanna, enda
hafa þeir á. mörgum sviðum ver-
ið afskiptir, enda þótt trillur
skipti hundruðum og afli þeirra
sé þýðingarmikið framlag í þjóð-
arbúið. Þá gerir tillgan ráð fyrir,
að öryggj trillusjómanna verði
stóraukið, en það getur varla
minna verið en nú.
Ýmis samtök hafa mælt með
samþykkt tillögu þessarar, þar á
meðal Bátafélagið Björg, Sam-
band smábátaeigenda, Alþýðu-
samband íslands, Sjómannasam-
band íslands og Slysavarnafélag-
ið. í bréfi Slysavai-nafélagsins til
Alþingis segir meðal annars svo:
,,Er það skoðun vor að hér sé
um mjög þarft mál að ræða sem
orðið er aðkallandi að leysa að
beztu manna ráðum og yfirsýn. í
þessu sambandi leyfum vér oss að
benda á eftirfarandi atriði er
taka yrði tillit til frá öryggislegu
sjónarmiði:
1. Að allir bátar verði skráðir og
hafðir undir opinberu öryggis-
eftirliti.
2. Að gefin verðl út reglugerð
um útbúnað þeirra. Þar sem
eftirfarandi yrði gert að.skil-
yrði:
'a. Aö- allir opnir bátar er
stunda róðra í opnum flóum
eða utan fjarðar verði með
fleytuútbúnað það gððan að
báturinn fljóti þótt hann
fyllti.
b. Aðbjörgunar belti fyrif
hvern mann verði gert að ó-
frá víkjanlegri reglu á öil-
um bátum, líka á ám og
vötnum.
c. Að hverjum sjóróðrabát
verði gert skylt að hafa ein-
föld en góð segl ásamt nauð-
synlegum farviði.
d. Að enginn fái að stjórna bát,
utan hafnar nema hann geti
sýnt hæfnisvottorð er sanni
kunnáttu hans í að stjórna
báti og fara að settum sigl-
ingareglum í skipaumferð.
c. Hver bátur verði útbúinn,
nestisskríni og meðalakassa,
e i n n i g blússkönnu til
merkjasendinga í myrkri og
jafnframt einnig rafhlöðu
ljóskastara af svokallaðri
„Radarlíte“-gerð.
3. Fullkomins öryggis verði þó
ekki að vænta fyrr en smábát-
um hefur verið gert mögulegt
að hafa traustar talstöðvar eða
neyðarsénditæki, en þau munu
kosta 17 til 25 þúsund krónur,
ef tækin eru keýpt erlendis.
4. Þá er það þýðingarmikið atr-
iði varðandi útgerð smábáta,
að eigendur slíkra báta búi við
góð geymsluskilyrði fyrir báta
sína með nauðsynlegum
möguleikum til verbúða afnota
til geymslu og var.ðveizlu á
farviðum og lausaútbúnaði, er
jafnan þarf gpðrar umhirðu
við.
Virðingarfyllst,
Slysavarnafélag íslands,
Henry A. Hálfdánsson".
punktar
• •
/>
JOÐVILJINN gerir
gys aö frumvarpi ríkisstjórnar-
innar um almannavarnir. Blað-
ið segir m. a.: „Þannig á nú
einnig að framkvæma hér nýj-
asta og að nxörgu leyti ósæmi-
legasta herbragðiö í kalda stríð-
inu, þá kenningu, að kjarnorku-
styrjöld þurfi ekki að vera neitt
ógnarleg ef menn búi sig aðeins
nógu vel undir hana“. Enginn
bjóst við öðru af kommúnist-
um en að þeir mundu gera grín
að þeim ráðstöfunum, sem nú
er ætlunin að geva hér til ör-
yggis borgurunum. En öllum
hugsandi mönnum mun Ijóst,
að það hefði átt að vera búið að
gera umræddar ráðstafanir mun
fyrr. Allar nágrannaþjóðir okk-
ar hafa fyrir löngu gert nauð-
synlegar öryggisráðstafanir og
í öllum menningarlöndum þyk-
ir sjálfsagt að gera sem mestar
öryggisráðstafanir, er borgur-
unum geti orðið til bjargar í
ófriði.
LÍMINN heldur þeim
áróðri áfram að frumvarpið um
stofnlánadeild landbúnaöarins
muni leggja nýja skatta á Iand-
búnaðinn. Ingólfur Jónsson
lándbúnaðarráðherra b e n t i
réttilega á það er málið var til
umræðu í efri deild alþingis,
að gjaldið, sem leggja skal á
búvörurnar yrði e k k i nema
Vic/c, ef fellt yrði niður á þessu
ári Vi% gjaldið, sem rennur til
bændahallarinnar. Bændur liafa
a 1 d r e i verið ánægðir með
bændahallargjaldið enda voru
það forkólfar framsóknar sem
ákváöu að leggja það á búvörur
bænda án þess að þeir liefðu
um það ængilegt Samráð við
bændur. Mun bændum áreiðan-
lega finnast mál til komið að
bændaliallargjaldið verði af-
numið og enn sem komið er
mun ekki hafa verið óskað eft-
ir heimild fyrir því að það verði
áfram. Mun bændum finnast
nær að slíkt gjald renni til
fjárfestingarsjóða þeirra held-
ur en í að reisa lúxushótel í höf-
uðstaðnum, hótel, sem bændur
munu aldrei hafa neitt gagn af.
Meginhluti teknanna til hins
nýja búnaðarsjóðs mun koma
frá ríkinu. Það verður aðeins
i/á hluti tekna sjóðsins, sem
kemur vegna gjaldanna á bú-
vörur bænda verði það Vi%,
Það er öll skattlagningin sem
Tíminn býsnast yfir.
Þí
'O UNDARLEGT
megi virðast finnast enn menn,
og það innan alþingis sem era
að nöldra út af hinum hagstæðu
samningum, sem gerðir voru
við Breta til þess að tryggja 12
mílna landhelgina. í fyrradag
töluðu þeir Þórarinn Þórarins-
son og Lúðvík Jósepsson báðir
í sameinuðu þingi og gagnrýndu
samningana. Var verið að fjalla
um sams konar samninga við
Vestur-Þjóðverja er þeir félag-
ar notuðu tækifærið til þess að
nöldra. Sannleikurinn er sá, að
Framhald á 12. síðu-
4' 16. 4narz 1962 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ