Alþýðublaðið - 16.03.1962, Blaðsíða 7
ÍKASTI maður Spán-
ar, Senor J u a n
March^ sem kom
Franco til valda og
hefur síðan verið
iiinn ónafngreindi
bakhjarl í efnaliagspólitík
Spánar, er dauður. Þessi 82 ára
gamli milljarðamæringur dó af
afleiðingum bílslyss, sem hann
lenti í 25. febrúar síðastliðinn.
Þar með lauk einhverri furðu-
iegustu mannsævi seinni tíma.
Ef í dag er leitað upplýs-
inga um Juan March, geta menn
leitað árangurslaust. Þó að
hann hafi án nokkurs efa lagt
til spennandi kapítula í heims-
söguna, lifði hann ailtaf rólegu
Iífi og lét lítið á sér bera. Það
er álíka lítið vitað um fortíð
hans sem um síðustu ár hans,
og þeir fáu, sem eitthvað vita
um líí hans, hafa ekki liaft að-
stöðu til að trúa öðrum fyrir
þeirri vitneskju. Einu sinni var
einhver búinn að skrifa bók um
Juan March, en áöur cn hún
komst til bókbindarans var
sjálf aðalpersónan búin að
kaupa upp upplagið og liafði
Iátið eyðileggja það.
Hollenzki blaðamaðurinn
Daniel Rops, sem kom fram
með „Dagbók Önnu Frank“,
hcfur kannað líf þessa merki-
lega manns í smáatriðum. Hann
hefur samið handrit eítir þess-
um athugunum og selt það
kvikmyndafélaginu 20th Cent-
ury Fox, en ekki verður það
kvikmyndað fyrr en bæði March
og Franco eru komnir undir
græna torfu.
Aðeins þrjú eintök af bók-
inni um Juan March, gem koin
út 1947, undir náfninu „Síðasti
sjóræninginn á Miðjarðarhafi",
komust hjá þeim örlögum, sem
fyrr getur, og eru öll í eigu
Mallorcabúa, því að ibúar Mall-
orca hafa sérstakan áhuga á
Juan March. Þar fæddist hann
/nefnilega og þeir eru mjög
stoltir af honum. Saga Juan
March liefst á suðurliluta Mall-
orca í fiskibænum Santa Marga-
rita.
★ SVIKARI
Iíann var fátækur sjó-
mannssonur, sem byrjaði á dá-
lítilli svínarækt með það fyrir
augurn að geta síðar eignazt
sinn eigin bát. Þegar hann hafði
loks safnað nægu fé til að kaupa
bátinn, sneri hann sér að sjó-
ránum i stað fiskveiða, og
reyndist sá atvinnuvegur stór-
um ábatasamari. Öll stríðsár-
in fyrri verzlaði M a r c h við
Þjóðverja og seldi þeim vopn.
Þ e g a r flutningaskipin, sem
venjulega voru hans eign, voru
komin nokkuð út á haf, réðist
liann sjálíur um borð með
menn sína. Þannig fékk hann
trygginguna greidda og gat þar
að auki selt „partíið" aftur.
Þessu hélt Juan March áfram
allt fyrra stríðið.
Smám saman varð Juan
March svo ríkur, að hann mátti
teljast ráða öllu á Balearísku-
eyjunum, og þar með ö 11 u
smyglaranetinu, sem kennt var
vindiignaverksmiðjur bæði í
vindlignaverksmiðjur bæði í
Tanger og á Kanaríeyjum, þar
sem enginn gat skipt sér neitt
af honum. í litla fríríkinu And-
orra í Pýreneafjöllum kallaði
hann framleiðsluvörur sínar
nöfnum þekktra amerískra
vindlinga. Hann gróf svo algjór-
Iega undan spönsku tóbaks-
einkasölunni, að þávérandi ein-
ræðisherra, Primo dc Rivicra,
sá sér ekki annað fært 'en kaupa
heila skíttið af honum.
Juan March blandaði sér
dálítið i stjórnmál áranna milli
stríðanna, keypti tvö dagblöð
og smám saman keypti liann
þar að auki meirihlutann í öll-
um iðnaði Spánar, þar til Primo
de Riviera varð hræddur vi®
völd hans í efnahagslífinu.
Juan March var nú hand-
tekinn og sakaður um spillingu
og mútugjafir, en dag nokkurn
hvarf hann úr fangelsinu og
flúði til Portúgal. Næstu árin
stjórnaði hann tóbaks-, olíu- og
skipafélögum sinum frá Paris.
★ HERMANGARI
B o r g a r a styr jöldin á
Spáni reyndist hið mikla tæki-
færi Juan March til að snúa aft-
ur til ■ föðurlands síns. Hann
stóð straum af stríðsrekstri
Francos og hefur síðan gefið
Spáni mikinn liluta af skipa-
flota þeim, sem það land á.
Juan March hélt alltaf
góðu sambandi við Franco og
JUAN MARCH
vinátta þeirra stóð föstum fót-
um í fjárhirzlu Spánar, en ný-
lega flutti March megnið af
auðæfum sínum til Sviss. Slík
fjármagnshreyfing finnst fljót-
lega á spánska markaðnum,
auk þess sem stríðir gegn sjón-
armiðum einræðisherra. Þetta
varð til þess að miklar fyAr-
spurnir voru gerðar, og þegar
spánskur stjórnmálamaður var
alla Evrópu og var talinn eínn
March hefði haldið hinu góða
sambandi sínu við Franco, svar-
aði hann, að' sem betur færi
hefði Franco haidið sínu góða
sambandi við Juan ðlarch.
March átti hallir út um
all aEvrópu og %'ar talinn einn
af sex ríkustu mönnum heims.
Á fyrstu velmektardögum
sínum lét March skóburstara
eitt sinn bursta skó sína með
1000 peseta seðli, sem hann
síðan leyfði honum að halda.
En smám saman lærði March að
umgangast peninga af meiri
skynsemi. Han hefur t. d. rcist
menntastofnanir fyrir unga
Spánverja út um allan Spán,
og hann hélt uppi mikilli góð-
gerðarstarfsemi, sem þó er sögð
hafa starfað af hjartagæzku
konu hans. Hún dó fyrir tæp-
um fimm árum og var ,grátin
af allri spænsku þjóðinni". Hún
stundaði mikla góðgerðastarf-
semi, en var einkum og sér í
lagi gjafmild við kirkjuna. í
minningu hennar lét Juan
March reisa Maríulíkneski úr
silfri í dómkirkjmmi á Mall-
orca, og er hún talin hafa kostað
nálega 2 milljónir króna. Iler-
sýning fer fram á fæðingardegi
hennar hvert ár.
Juan March var einhver
furðulegasti maður seinni tíma.
Eftir „beztu erfðavenjum" lærði
hann ekki að lesa eða skrifa
fyrr en hann var orðinn fer-
tugur. Allt fram á áttugasta og
fyrsta aldursár stjórnaði hahn
fyrirtækjum sínum, sem tvcir
synir hans hafa nú tekið Við
stjórn á.
I
l
$
MADRID eftir loftárás í JjprgarstyrJöldinni. Myndin efst á síðunni sýnir hersveitir frá Marokkó sækja
fram til liðsauka við Franco í bardögunum um Madrid.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 16. marz 1362,jj