Alþýðublaðið - 21.03.1962, Qupperneq 5

Alþýðublaðið - 21.03.1962, Qupperneq 5
Hermann endur- kosinn formaður Aðalfundur Verkamannafélags ins Iilífar í.Hsfnarfirði var hald inn s.l. sunnudag. Hermann Guð mundsson var endurkjörinn for maður. Þar þar flutt skýrsla félags- stjórnar og samþykktir reikning ar. 64 nýjir félagsmenn höfðu gengið inn i félagið á árinu Samþykkt var -að ársgjadl fél- agsmanna skyldi vera 400 kr. innheimt í tvennu lagi og að viss hluti þess skyldi renna í vinnu deilusjóð félagsins Þá var lýst kosningu stjórnar Reytií)gs- atli báta APLI Eyjabáta, Keflavíkur- og Akranessbáta er yfirleitt lélegur. Af Akranesbátum var Höfrungur hæstur í fyrradag með 33 tonn og af Keflavíkurbátum Eldey með 26 tonn. Afli netabáta frá Keflavík hefur verið lélegur. Næsthæsti báturinn þar var með C tonn í fyrradag, en hinir voru með allt niður í 1 tonn Og jafnvel minna. Einn línubátur fékk 12 tonn. Tveir bátar frá Keflavík eru að skipta yfir í net, og nokkrir bátar róa ekki vegna veikinda áhafnanna. Á Akranesi bárust á land 190 tonn úr 16 bátum í fyrradag, og voru þeir flestir með reytings- afla. Flestir hafa hætt línuveið- lim, og er þessi vika er liðin verða aðeins 3—4 bátar enn á línuveið- um. Blindþoka hefur verið á miðun- um, en í fyrrinótt var nokkuð bjartara. Eftir hádegi í gær var bjart veður á miðum Keflavíkur Og Sandgerðis báta, en ennþá mik- 11 þoka þar sem Akranesbátar halda sig, en þeir eru oft 3—5 tíma að komast á miðin. Eyjabátar voru flestir á sjó í fyrradag, og fengu 8—12 tonn. Nú eru 2 bátar frá Eyjum á línuveið- um. og annara trúnaðarmanna Hlífar en þar sem aðeins hafði komið fram ein tillaga, tillaga uppstill ingarnefndar og trúnaðarráðs og þeir menn, er á þeim lista voru sjálfkjörnir en það eru: Hermann Guðmundsson, for- maður Ragnar Sigurðsson, vara formaður Hallgrímur Pétursson, ritari Sveinn Georgsson, gjald- keri Gunnar Guðmundsson vara ritari Helgi Kr. Guðmundsson, fjármálaritari Reynir Guðmunds son meðstjórnandi Varastjórn: Árni Jónsson, Bjarni Jónsson, Benedikt Ingólfsson. Aðalfundur V.m.f. Hlífar hald inn 18. rnarz telur að lífskjör ‘almer;nings hafi versnað svo mjög að urrdanförnu að eigi verði við unað sérstaklega þegar tekið er tillit til þess að á sama tíma hafa þjóðartekjurnar aukist veru lega en séð hefur verið um að sá .Verðmætisauki hefur lent hjá öðrum en þeim sem hafa átt mestan þátt í að skapa hann. Lýsir fundurinn yfir megnri óánægju yfir þvi að Ríkisstjórn in skuli í viðræðum sem verka lýðssamtökin hafa átt við hana allt frá því að gengislækkunin var gerð s.l. sumar eigi hafa í neinu komið til móts við kröfur verka fólks, á sama tíma og breytt er skattalögum til þess sérstaklega að auðvelda auðsöfnun fyrirtækja \ Hvetur fundurinn til þess, að samtök verkalýðsins taki til at- hugunar aðrar aðgerðir til úr- bóta, ef viðræður við Ríkisvaldið beri ekki fulln?2gjandi árangur nú alveg á næstunni. Aðalfundur V.m.f. Hlífar hald inn 18. marz 1962 vekur athygli á þeirri uggvænlegu þróun sem átt hefur sér stað í byggingamál um hér í bæ sem annarsstaðar á s.l. ári en í Hafnarfirði var á árunum 1954-1959 hafin bygging á um 90 íbúða á ári, en á árinu 1961 aðeins byrjað á byggingu 13 íbúða. Telur fundurinn að með þessu sé stefnt til húsnæðisskorts og hækkandi húsaleigu auk minnk andi atvinnu við byggingarstörf ef ekki verður að gert. Sýnt í næst 3 síðasta sinn 1 * LEIKFÉLAG Reykjavík- ur sýnir „Hvað er sannleik- ur“, eftir Priestley í 14. sinn í kvöld, miðvikudag. — Það verður í næstsíðasta skipti, sem leikurinn verður sýndpr. Myndin sýnir, talið ifá vinstri, í hlutverkum sínum: Helgu Bachmann, Guðrúnu Stephensen, Guðrúnu Ás- mundsdóttur og Sigríðlir Hagalín. Höfðakaupstað, 20. marz. IIÉðan er fátt að frétta. Bátarnir reyndu veiðar hér úti á flóanum Iögðu nokkrar lagnir en fengu ekkert. Fóru þeir þá norður og Skipverjar d Mai mótmæla ★ ENN BERAST mótmæli frá tog- arasjómönnum úti á sjó, vegha til- mæla FÍB um breytingar á vöku- lögunum. Sjómannafélagi Hafnarfjarðar barst í gær eftirfarandi skeyti frá hásetum á b.v. Maí: „Skipverjar b.v. Maí mótmæla* eindregið breytingum á hvíldar- tíma háseta á togurum". ÍMMMWMIHiMMMMMMtMIW 23000 manns ,r<.. „ haía séð ^ "'Skugga Svein IJM 23 þúsund manns hafa séð Skugga Svein í Þjóðleik- liúsinu. Leikurinn v'erður sýndur í 37. sinn n. k. föstu- dagskvöld. Uppselt hefur verið á allar sýningar. Á næstunni vcrðúr Skugga- Sveinn sýndur síðdegis á sunnudögum. — Myndin er af Ævari Kvaran og Haraldi Björnssyni í hlutverkum sín um. tónleikar SINFONIUHLJOMSVEIT Islands íslands heldur tónleika á morgim (fimmtudagskvöld). Verður þar fluttur EGMONT-FORLEIKUR, op. 84 eftir Beethoven, TAPjOLA. op. 112 eftir Sibelius, MOUVE- MENT SYMPHONIQUE eftir Ivan Rezac og SKOZKA SIÍ|ÍFÓN- ÍAN og. 56, í a-moll eftir Mendel- sohn. Tónleikar þessir áttu að vera sl. fimmtudag en var frestað vegna veikinda. Aðgöngumiðarnir, sem seldir voru á þá tónleika, gilda nú, — en annars er aðgöngumiðasala að venju í Háskólabíói og í bóka- verzlun Sigfúsar Eymundssonar, og Bókabúð Lárusar Blöndal, Skólavörðustíg og Vesturveri. reyndu úti- fyrir Eyjafirði, en þar var ekki heldur neinn fisk að fá. Nú eru þeir farnir suður til að freista gæfunnar. Rauðmaga- og grásleppuveiði er í þann mund að hefjast út af Kálfshamarsvík, — en enn veit ég ekki, hvernig veiðist. B.B. Tálknafirði. 20. marz. HÉR er flensan að koma öllu í strand. Horft hefur til vandræða á ýmsum bæjum, hvernig ætti að gegna skepnunum, því að sums staðar hafa allir legið mikið veik- ir í einu. Hinir heilbrigðxi hjálpa þeim, sem erfiðast eiga, og þann- ig bjargast þetta einhvern veginn. Arinars er ekkert að frétta, —' nema blíðviðri síðustu daga. K. II. Selfossi, 20. marz. SKÓLAR eru enn lokaðir vegna inflúenzufársins, — en þeir voru opnaðir aftur eftir fyrstu lokun, — en svo lokið að nýju. þegar sást að enn vantaði óviðunandi marga bæði af kennaraliði og nemcnda. En ætlunin er að byrja aftur kennslu á morgun. G. J. Skemmtim SUJ * IIIN ÁRLEGA skcmmtun SUJ vcrður í Lidó n.k. sunnu dagskvöld. Til skemmtunar verður bingó og dans til kl. 1. Meðal vinninga verður svefn herbergissett, ferð á Edin- borgarliátíðina o. m. fl. glæsi legra vinninga. Skemmtunin hefst með borðhaldi kl. 7, en z bingóið hefst kl. 9. Stadinn að verki LÖGREGLAN stóð mann affii þjófnaði úr sýningarglugga veralV; unarinnar Goðaborg í Hafnar- stræti um tvöleytið í fyrrinótt. Lögregluþjónar, sem voru á' vakt á þessum slóðum, tóku eftiri manninum og fannst hann undar-f legur i háttum og íylgdust því meSii honum. | Alaðurinn var svo gripinn eftirj að hafa brotið rúðu í glugganumj og tekið þar út ýmislegt smádót; sem metið er á rúmar þúsund} krónur. Hann hefur ekki verið teki inn fyrir þjófnað áður. á ráðsteínu Esbjerg I JON SIGURÐSSON, formaður Sjómannafélags Reykjavíkur, Ter utan í dag til Esbjerg til að sitja þar ráðstefnu fiskimannadeildar ITF (Alþjóðasamband flutúinga- verkamanna), sem haldin verður dagana 22.—24. marz. Jón mun ennfremur ræða þar við framkvæmdastjóra sambands- ins, Peter Devries, sem verður á ráðstefnunni. Sjómannafélag Reykjavíkúr er aðili að Alþjóðasambandinu .pg-er Jón Sigurðsson fulltrúi þcss hér I á landi. ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 21. marz 1962 g

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.