Alþýðublaðið - 21.03.1962, Page 8
Christian Johausen og kona hans á heimiii þeirra í Kaupmannaliöfn 30 árum eftir flugið fræga yfir Atlantshafið. Þá
fékk Johansen sömu viðtökur í New York og Gienn fékk þar fyrir skömmu síðan.
hala?
Einhver hinna næstu rúss-
nesku geimfara á brátt að
rannsaka það, hvort jörðin
hafi hala líkt og halastjörn-
ur. Þesst frétt er höfð eftir
próf. Fesenkov í Moskvu. í
einhverri geimferðinni á að
athuga sérstaklega þetta fyr-
irbæri.
Prófessor þessi segist á-
samt samstarfsmönnum sín-
um hafa orðið var við það
frá stjörnurannsóknast'öð
sinni í Alma Ata í Kazakst-
an, að eins konar slæða sé á
þeim hluta himins, sem veit
undan sólu. Sé slæða þessi
athuguð með litrófsmæli —
spektrum — sjáist, að hann
gefi frá sér sams koriar Ijós
og halar flestra halastjarna.
New York búar fögnuðu
Glenn ofursta, geimfara, með
miklum fögnuði og skrúð-
göngu um borgina fyrir
skömmu, en það er mesti
heiður, sem borgin getur
sýnt nokkrum manni. Þeir
munu fáir, jafnvel í Dan-
mörku, sem vita, að í út-
hverfi Kaupmannahafnar sit-
ur klæðskeri, sem eitt sinn
varð þessa heiðurs aðnjót-
andi.
Christian Johansen heitir
klæðskerinn og var eitt sinn
heimsþekktur flugmaður. —
Hann vann við það, að reyna
nýjar flugvélar, var tilrauna-
flugmaður, eins og það er nú
nefnt. Það var um haustið
1931, að Johansen reyndi að
fljúga V-33 flugvél frá Ev-
rópu til Ameríku, en þá leið
(frá austri til vesturs) hafði
þá enginn flogið fyrr. Jo-
hansen heppnaðist þó ekki
að ljúka þessu flugi, því hann
rétt upp við strönd Banda-
ríkjanna varð fyrir því ó-
happi, að lenda í miklu ó-
veðri, sem olli því, að vélin
biiaði, og hann missti ben-
zínið. Varð Johansen þá að
nauðlenda á einum öldutopp
inum, og tókst sú nauðlend-
ing vel. Flugvélin hélzt á
floti eftir að vængirnir höfðu
brotnað af og varð það mönn-
unum til lífs.
Auk Johansens voru tveir
aðrir menn í flugvélinni, 2
ævintýramenn, sem vildu
umfram allt komast í þessa
hættulegu flugferð.
í sex daga lifðu mennirnir
í flugvélinni án þess að þeir
fyndust. Loks var þeim bjarg
k
að af norsku flutningaskipi,
sem flutti þá til New York.
Þeir urðu matarlausir þarna
í flugvélinni og það svo mjög
að einn þeirra lagði sér til
munns fulla túbu af húð-
kremi, sem hann var með og
neytti þess með beztu lyst.
Ferð þremenninganna varð
fræg um allan heim og blöð-
in kepptust um að birta mynd
ir og frásagnir af ferð þeirra
og ævintýri. Þegar til New
York kom, var þeim tekið
með kostum og kynjum. —
Þeim var ekið í opnum skraut
vagni eftir helztu götum
borgarinnar, marglitum
pappír var fleygt yfir þá í
tonnatali úr gluggum hús-
anna við hina frægu fimmtu
götu. Að auki var þeim boð-
ið í svo margar veizlur og
miðdegisverði og Johansen
hafði nóg að gera við það
næstu daga, og varð að fara
f margar veizlur á degi
hverjum.
Johansen var 39 ára, þegar
hann fór í þessa ævintýra-
legu og heimsfrægu ferð.
Nú er hann orðinn 72 ára og
situr við sauma. Faðir hans
Flugvél Johansens á reki úti fyrir strönd Ba ndaríkjanna. Efst til hægri er mynd af Jo-
hansen. Þessi mynd af vængjalausri flugvélinni birtist í flestum blöðum heims eftir að
atburðurinn varð.
var smiður og smíðaði 1
og hluti í flugvél, sem m
nokkur liafði í smíðum.
ur en lokið var smíði :
vélarinnar hætti maðu
smíðinni, svo Johanson
við og fullgerði vélina. I
ig hófst ferill hans sem
raunaflugmanns. Það vai
ið 1911, sem hann flaug J
vél í fyrsta sinn og um fj
ára var hann atvinnu
maður. Nokkru eftir að !
flaug yfir Atlantshafið, 1
hann atvinnuflugmennsk
snéri sér að kyrrlátara S
klæðskerasaumi.
Hanri
er sá
rétfi
Kvikmyndastjarnan 1
Christian hefur lengi
hnappana í kápunni sin
er nú að sögn komin að
siðasta: brezka leikar
Edmund Purdon. „Hann
rétti” sagði Linda nú í
unni í Mexiko City, en
brúðkaupið að fara frai
þ. m.
Félag veiðimanna í S:
I Ástralíu tók fyrir n(
að sér foreidralausan
gæsarunga. Meðlin
nefndu hann Henry og
var hann orðinn góð
kettlingsins Pússí litlu
það svo, að hann gle
allri löngun eftir vind
og sjónum. Ekki nóg
það, heldur er Henry, sc
sundfugl að ættinni til,
inn jafnvatnshræddur
Pússí, vinkona hans. Þar
Henry veldur meðlimi
erigum óþægindum á i
hátt, hefur félagið k
hann heiðursforseta, \
virðulegrar framkomu.
■ '••■■.-ss’swmi
8 21. marz 1962 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ