Alþýðublaðið - 21.03.1962, Qupperneq 13

Alþýðublaðið - 21.03.1962, Qupperneq 13
Trygginga- mál rædd á alþingi Birgir Finnsson framsögumað ur lieilbrigðis- og félagsmála- .nefndar neöri deildr aUhng:4 gerði í fyrradag grein fyrir áliti nefndarinnar á frumvarpi ríkis stjórnarinnar urn hækkun á gjöldum þeim, er læknar ftaka fyrir viðtöl og1 vitjanir I 'Mælir nefndin með samþykkt frumvarpsins. Frumvarp ríkisstjórnarinnar um þetta efni var flutt í sambandi við samninga, sem gerðir hafa verið milli ýmissa sjúkrasamlaga og læknasamtaka um bætt kjör lækna. Gerir frumvarpið ráð fyr ir, að gjöldin hækki úr 5 kr. í 10 kr. fyrir viðtöl á stofum og úr 10 kr. í 25 kr. fyrir vitjanir Birgir Finnsson (A) sagði í framsögu fyrir áliti heilbrigðis- og félagsmálanefndar að almanna Byggingarfélag á ísafirði í bígerð ísafirði. Samþykkt var með sam- hljóða atkvæðum á fundi bæjar stjórnar ísafjarðar 7. þ. m. til- laga um að athuguð verði stofn un félags til að byggja leigu- íbúðir. Bæjarstjórnin samþykkir að auglýsa eftir þátttöku fyrirtækja og einstaklinga, sem hafa hug á að stofna byggingarfélag í bæn- Um ásamt bæjarsjóði og leggja fram fé í því skyni að byggja leiguíbúðir, er fyrst og fremst tryggi húsnæði fyrir fjölskyldur sem vildu flytja í bæinn. Jafnframt verði á fundi með þátttakendum í síðasta lagi 1. apríl rætt um að fá aukna aðstoð ríkisvaldsins til slíkra bygginga og ieitað samvinnu við alla þing menn Vestfjarðakjördæmis til framgangs málsins. tryggingar hér á landi væru orðn ar mjög víðtækar og vegna þeirra þyrfti nú enginn að fara á mis við læknishjálp hvernig svo sem cfnahagurinn væri. Hins vegar væri sú hætta fyrir hendi, þar sem sjúkratryggingar væru það fullkomnar, áð læknishjálp væri ókeypis, að kerfið væri misnotað Læknar hefðu verið komnir á þá skoðun hér á landi, að mikið væri orðið um óþarfa kvabb þess vegna hefðu þeir óskað eftir gjöldum fyrir viðtöl og vitjanir. Væru gjöld þessi það lág að eng- inn þyrfti þeirra vegna að neita sér um læknishjálp. Samkvæmt tillögu nefndarinn- ar verður heimilt að taka gjöldin alls staðar á landinu, en áður hafa þau aðeins verið heimil á 1. verðlagssvæði og á nokkrum stöð um á 2. verðlagssvæði Hannibal Valdimarsson (K) kvaddi sér hljóðs. Kvaðst liann hafa ritað undir nefndarálitið með fyrirvara þar eð hann væri andvígur sérstökum gjöldum fyr ir vitjanir og viðtöl og svo væri einnig um annan nefndarmann, Gísla Jónsson. — Hins vegar kvað hann í rauninni hafa verið búið að ganga frá hækkuninni þegar málið hefði verið lagt fyrir þingið, þar eð ríkisstjórnin hefði er hún leysti læknadeiluna, sam þykkt hækkunina á gjöldunum og frumvarpið aðeins flutt til stað festingar á því. Væri hér um óeðlileg vinnubrögð að ræða og hefði verið réttara fyrir ríkis- stjórnina að gefa út bráðabirgða lög um hækkun gjaldanna og taka á sig ábyrgðina þannig í stað þess að gera slíkan samning. VÍSITALA ÓBREYTT Kauplagsnefnd hefur reiknað vísitölu framfærslukostnaðar í byrjun marzmánaðar 1962 og reyndist hún vera 116 stig eða ó- breytt frá vísitölunni í febrúar- byrjun 1962. r Laugarásbíó: Skuggi hins liðna Hörkuleg mynd úr „villta vestr- inu“ Aðalhlutverk: Ricliard Wid mark og Robert Taylor. Nýja bíó: Á fjöllum þúsund- |kma. Mynd byggð á snjallrí sögu, sem hefur þynnzt all mikið út í myndgerðinni. Aðalhlutverk Don Murray. SKUGGI hins liðna — segir frá gömlum vopnabræðrum og ránsmönnum, sem hafa skilið að skiptum, annar liefur orðið heið arlegur borgari, en hinn haldið fyrri iðju. Bankaránsfengur er fólginn í fjöllum með vitorði hins „heiðarlega", en hinn hefur full an hug á að ná honum og af því tilefni rænir hann vininum og konu hans og heldur með þau upp í fjöll með fulltingi glæpafélaga sinna. Þau lenda í ýmsum ævin týrum áður en marki er náð og aðeins þrju eiga afturkvæmt til byggða. Háskólaprófessorinn Widmark fer með hlutverk glæpamannsins sem einskis iðrast og leikur vel eins og hans er vandi. Myndin er tekin í fallegu um hverfi og hrikalegt baksviðið mjög heppilegur rammi um fólsku mannskepnanna. Á FJÖLLUM þúsundanna — segir frá ungum manni, sem kem ur úr fámenni til frumstæðrar borgar. Þar kynnist hann fjár- hættuspilara og stórbónda, sem leggur ást á nvgræðinginn. Ungi maðurinn er ákveðinn í því að komast til virðinga og tekst það furðanlega, slær vinkonuna um lán og giftist síðan annari, sem betur er ættuð. Hann auðgast að fé' og frama en treður á vináttu fyrri félaga. Hann gleymir þó ekki að fullu fyrstu vinkonunni og þegar hann fréttir að fjárhættuspilarinn hafi misþyrmt henni sýnir hann að hann er mannkostamaður. Don Murray fer með hlutverk unga mannsins og gerir því hlut verki allgóð skil, hann virðist hafa eilitla löngun til að apa tækni James Dean, en hefur ekki sömu hæfni. Myndin er tekin í fögru um hverfi og með sæmilegri hljóm list hafi menn á annað borð eyra fyrir hljómlist, sem höfðar beint til tilfinninganna. H.E. Tveggja ára Seyðisfirði, 19. marz. Líklega liafa verið sett ís- 'landsmet í skíðalandsgöngunni hér um lielgina. 81 árs gamall maður gekk gönguna með einn staf eins og tíðkaðist áður fyrr í skíðagöngum, og tveggja ára gamail kappi lauk göngunni í dag. Öldungurinn er Eiríkur Vig- fússon, en sá tveggja ára heitir Ólafur Ingi Mikkaelsson. Báðir gengu einir og óstuddir og blésu ekki úr nös að göngu lokinni. Hér hafa 233 gengið í skíða- göngunni, en það eru 31,% bæj- arbúa. í dag gengu nemendur barna og unglingaskólans og var þátt- taka 100%. Leiðindatíð hefur verið að undanförnu, en fyrir nokkrum dögum kom hláka, og hefur nú snjórinn sigið talsvert, og enn er hlýtt í veðri. Miklar framkvæmdir eru fyrir höndum, þegar skánar í veðri. VÉLASÝNING OG SÓLSKIN Hvolsvelli, 19. marz. í gær var opnuð hér véla- sýning á vegum SÍS. Voru þar sýndar dráttarvélar og verkfæri með þeim. Sóttu fjölmargir bændur sýninguna, sem verður opin í hálfan mánuð. Á sýningunni var Internation- al Harvester dráttarvél með sláttuvél og ámoksturítæki. Enn freinur var sýnd vél frá Dráttar- vélum, Ferguson, með ýmis kon ar tækjum og Banford múgavél frá Englandi, sem þykir frábær- lega góð. Bændur voru mjög hrifnir af þessari vél og hyggja ýmsir á kaup með vorinu. Undanfarna daga hefur verið sólskin og sunnanvindur í hér- aðinu, en inflúenzan hopar ekki fyrir slíku. Þ. S. Aætluð er endurbygging síldar- bræðslunnar og bryggjubygging ar eru fyrir höndum. Hér verð- ur því nóg um vinnu, og vantar fólk, bæði konur og karla. G.B. Bæjarsfjórnin gengur Siglufirði, 19. marz. FJÖLMARGIR gengu í skíða- landsgöngunni hér í gær. Bæjar- stjórnin var fyrst á brautina, — en í fótspor hennar fylgdu aðrir bæjarbúar. Veðrið var með eindæmum fal- legt í gær — en undanfarna daga hafa verið hér mikil hlýindi. Fé- lagslífið er fjörugt um þessar mundir, árshátíðir og aðrir dans- leikir, — en um aðrar fréttir er naumast að ræða. - J.M, Árnesi, Hornafirði. 19. marz. Bátarnir liafa aflað mjög vel punktar • • • Grein Björgvins Guðmundssonar um hrakfarir kommúnista í verkalýðsfélögunum undanfar ið hefur farið fyrir hjartað á þeim Þjóðviljamönnum. Þjóð- viljinn vcit, að fylgið liefur hrunið af kommúnistum en ei að síður reynir blaðið að bera sig mannalega og segir, að enginn ástæða sé fyrir komm únista að örvænta uin völd sín í ASÍ. Þeir hafi í rauninni ekki misst nenia eitt félag Sveinafélag pípulagningar manna. Rétt er það að enn sem komið er hafa ekki mörg félög færst á milli. En ýmsar breyt ingar liafa þó þegar orðið, sem gefa vísbendingu og haldi 'fylgið áfram að hrynja af kommúnistum fram að AI- þýðusambandsþingi er vissu- lcga ekki vonlaust að ná Al- þýðusambandinu af kommún- istum. En með því að Austri (Magnús Kjartansson) virðist ekki hafa fylgzt sérstaklcga vel með í verkalýðsmálum und anfarið er rétt að benda lion uin á nokkur atriði, sem stang ast örlítið á við liugmyndir hans um næsta Alþýðusam- bandsþing: Vegna ófara við stjórnarkjör og breyttra að- stæðna má bóka að kommún istar hafa þegar tapað um 11 fulltrúum á ASÍ þingi í þessum félögum: í Reykjavík og Hafnarfirði: Bifreiða- stjórafélaginu Frama, Hlíf Hafnarfirði og Iðju Hafn- arfirði. Auk þess eru góðar horfur á því að kommúnistar missi Trésmiðfélagið í haust. Fari svo er fulltrúatap komm únista í Rvík og Hafnarfiröi komið upp í 18 fulltrúa en það þýðir að bilið sem var milli kommúnista og lýðræðis sinna hafi minnkað um 36 fulltrúa. Og það mega komm- únistar bóka að fylgishrunið nær út á land Hka. Viðreisnin er 2ja ára um þessar mundir. Skýrsla Seðlabankans um þróun efnahagsmála sl. ár sýnir að árangur viðreisnarinn ar er þegar orðinn mikill og góður. Gjaldeyrisstaða bank- anna batnaði s. 1. ár um 400 millj. kr. Aukning sparifjár- innlána í bönkum og sparisjóð um nam 550 millj. kr. á móti 374 millj. kr. 1960. Er það meiri. aukning spariinnlána en nokkru sinni fyrr. Þessi góða þróun á rætur sínar að rekja til þeirra róttæku ráð stafana er ríkisstjórnin gerði í efnaliagsmálum, þ.e. gengis breytingarinnar og vaxtahækk unarinnár. að undanförnu. Sjónleikurinn Lénharður fógeti var frumsýnd- ur í félagsbeimilinu Mánagerði á laugardagskvöldið við mikla lirifningu áhorfenda, og hefur leiknrinn verið sýndur alls 3var um hclgina. Handfærabátar hafa aflað mjög vel síðustu dagana, — og Austfjarðabátar hafa sótt hing- að í fiskinn. Lénharði fógeta var tekið með miklum fögnuði á laugar- dagskvöldið. Lénharður er leik- inn af Rafni Eiríkssyni, skóla- stjóra, Torfi í Klofa er leikinn af Sigurjóni Bjarnasyni og Guð- ný af Hólmfríði Leifsdóttur. — Leikstjóri var Hrafn Eiríksson, en leiktjöld og búningar voru að hluta fengin að láni hjá Þjóð- leikliúsinu, en að hluta heima- tilbúin. — T. Þ. ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 21. marz 1962 |,3

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.