Alþýðublaðið - 16.05.1962, Blaðsíða 5
/
Leiðangur á
Vatnajökul
JÖKLARANNSÓKNA-j félagsins á Grímsfjalli í 1720 metra
F É L A G íslands efnir til 12 hæð á útgáfudegi. Hafa þessi um-
daga rannsóknaleiöangurs á Vatna slög komið út á hverju ári undan-
jökul í vor eins og Venja hefur ver-
Ið undanfarin 10 ár. Verða Gríms-
vötnin mæid og áthuganir gerðar
á jöklunum í grenndinni.
Frá þessu svæði sem rannsakað
verður, renna tvær þær ár sem
mest er nú um rætt að virkja á
næstu árum, Þjórsá og Jökulsá á
Fjöllum. Um 15 manns taka þátt í
leiðangrinum, og verður farið á 2
bílum og gist til skiptist 1 tjöldum
og í sæluhúsum Jöklarannsóknarfé-
lagsins, en þau eru tvö á þessum
slóðum, ánnað við jökulröndina,
en hitt uppi á Grímsfjalli.
Fararstjórar verða Sigurður Þór
arinsson jarðfræðingur og Magnús
Jóhannsson rafvirki. Lagt verður
af stað 31 maí ú uppstigningardag
og dvalið á jöklinum yfir Hvíta-
sunnuna, en komið til baka eflir
15 daga, ef allt gengur að óskum
Jöklarannsóknir krgfjast allmik-
ils fjármagns, en þar sem Jökla-
rannsóknarfélagið liefur engan-
opinberan styrk fengið fram að
þessu, liefur það orðið að afla
, fjár með útgáfu umslaga, sem
stimpluð eru af póstmanni í skála
Kosningabók
Fjölvís komin
KOSNINÖAHANDBÓK Fjölvíss
fyrir bæjarstjórijarkosningarnar er
komin út. Bókin er í sama formi
og fyrri kosningabækur útgáfunn
ar, Birt eru úrslit bæði úr fyrri
bæjarsjórnar- og Alþingiskosning
um. Margvíslegar ■ upplýsingar er
að finna í bókinni um sveitarfé-
lögin og pólitíska stjórn þeirra.
farin 5 ár og næstum alltaf selst
upp. Nú í ár er nýtt umslag kom-
ið út og er það með mynd af hin-
um þekkta jöklarapnsóknarmanni
og náttúrufræðingi Sveini Páis-
syni í tilefni 200 ára afmælis hans.
Verða nú til sölu 5000 tölusett
umslög og kostar eintakið 10 krón-
ur. Umslögin fást þessa dagana í
Radíóbúðinni á Óðinsgötu 2 í
Reykjavík. Forkaupsrétt hafa þeir
kaupendur sem undanfarin ár hafa
keypt tölusett umslög og viljahalda
áfram að safna. Þó er ekki hægt að
veita þennan rétt lengur en til 23.
þessa mánaðar, eftir það verða
þau seld hverjum sem er.
Rannsóknir á jöklum og eðli
þeirra eru mjög þýðingarmiklar,
bæði með tilliti til vatnsmagns
ánna sem á að fara að virkja og
svo í sambandi við hlaup í Skeið-
ará, en hægt er að sjá út hvenrer
næsta hlaup muni verða með því
að fylgjast með hækkun vatnsins
í Grímsvötnum, en það hækkar að
meðaltali um 10 metra á ári, þar
til út af flóir og hlaupið kemur.
Einnig er ætlunin að rannsaka
snjókomu og raka svo að hægt
verði að taka meðaltal af veður-
fari uppi á jöklunum.
Undanfarin ár hafa jöklarann-
sóknarmenn orðið að grafa djúpar
gryfjur með rekum til að rann-
saka ýmiss lög sem myndast hafa,
en nú hafa þeir fest kaup á bor,
sem er hentugur í meðförum og
gerir gröftinn auðveldari. Standa
vonir til að hægt verði að taka bor
inn í notkun nú í næsta íeiðangri.
Núverandi formaður Jöklarann-
sóknafélags íslands er Jón Evþórs
son veðurfræðingur.
Kielland
leggur
I ÞEIM 10 stefnuskráratriðum, er Alþýðuflokkurinn
áherzlu á í sambandi við iðnað eru -,n. a. þessi:
• Skipulög athafnasvæði fyrir iðnað.
Samgönguæðar og birgðageymslur iðnfyrirtækja.
Bætt aðstaða fyrir verkstæði og viðgerðarþjónustu.
Fjöliðjuver.
Bætt iðnmenntun.
Mörg gróin reykvísk iðnfyrirtæki eiga nú í erfiðleikum
vegna þess, að borgaryfirvöldin hafa ekki fengizt til þeps að
láta þeim í té nýjar Ióðir undir fyrirtækin. Hafa nokkur þess-
ara fyrirtækja hrökklazt með starfsemi sína í önnur bæjar-
félög af þessum ástæðum. Sjálfstæðisflokkurinn lofaði því fyr
ir síðustu kosningar að skipuleggja ný iðnaðarhverfi en eng-
ar efndir hafa orðið á því Ioforði enn. Einnig Iofaði Sjálfstæð-
isflokkurinn fjöliðjuverum en engin slík liafa enn risið. AI-
þýðuflokkurinn mun í borgarstjórn Reykjavíkur beita sér fyr
ir því að aðstaða iðnaðarins verði stórbætt I Reykjavík.
Vifni
vantar
í BYRJUN þessa mánaðar, eða
4. s. 1., varð eldri maður fyrir bjf-
reið á móts við húsið nr. 55 við
Bræðraborgarstíg. Slysið varð kl.
6,30 að m.orgni, og því fátt manna
á ferli. Rannsóknarlögregluna vant
ar nú vitni að þessum atburði.
Sá sem fyrir slysinu varð, telur
sig hafa séð einhvers konar stræt-
isvagn rétt í því að hann gekk yf-
ir götuna, og að vagn þessi hafi
stöðvað er slysið varð. Lögreglan
vill nú biðia bílstjórann á þc-ssutn
vagni að gefa sig þegar fram.
DOKTOR FRÁ
✓
Utgerðarmaður fyrir Hæstarétti
GREIÐI HÁSETA
4.500 kr. MEIRA
UNGUR, íslenzkur vísindamaður,
Jóhann Axelsson fil. lic. lauk dokt-
orsprófi við háskólann í Lundi s.I.
mánudag. Varði hann þá ritgerð er
hann nefnir: „Studies of Elietrical
and Mcchanical Activity of Instest-
inal Smooth muscles".
Ritgerðin fiallar um rannsóknir
á rafmgnsfyrirbærum og samdrætíi
I eggjahvítuefnanna í sléttum inn-
| vortis vöðvum. Andmælendur voru
sænsku vísindamennirnir Stephan
Thessleff og C.H. Hakansson, dós-
ent. Doktorsvörnin tók fjóra tLœa,
og að henni lokinni, fóru liinír
sænsku vísindamenn miklu lofsorci
um hana.
SINFÓNÍUIILJÓMSVEIT íslands verið að vinna að þessu verki í
heldur tónleika næstkomandi j yfir 20 ár, það væri að nokkru leyti
fimmtudagskvöld. Stjórnandi, byggt á gömlum norskum þjóð-
hljómsveitarinnar aff þessu sinni lögum, sem væru náskyld íslenzk-
er Olaf Kielland.
Verkin eru öll eftir norræn tón-
skáld. Þau eru: Pastora le eftirErik
Larsen, Bergljót eftir Grieg með
texta eftir Björnstjerne Björnson,
en Guðbjörg Þorbjarnardóttir seg-
ir frayn tcxtann. Loks er Sinfónía
eftir stjórnandann Olaf Kielland.
Erik Larsen er þekktur í sínu
heimalandi, Sviþjóð, en sinfóníu-
hljómsveitin hefur ekki áður leik-
ið verk eftir hann. — Bergljót
Griegs er byggð á fornri sögu, þar
segir frá vígi Egils þambaskelmis
og sonar hans. — Loks er að geta
sinfóníu Kiellands, sem var frum-
flutt í Bergen á sl. ári, síðar var
hún flutt í Þrándheimi og nú síð-
ast í Osló. Kielland sagði á blaða-
mannafundi í gær, að hann hefði
um þjóðlögum.
Hann sagði, að það hefði einmitt
verið til að lifa með fólkinu, sem
er samgróið þjóðlögunum, sem
hann fluttist til Þelamerkur fyrir
allmörgum árum, en þá þegar hafði
hann þetta verk í huga.
Þessir tónleikar verða haldnir
eins og fyrr segir nk. fimmtudag,
17. maí, á þjóðhátíðardegi Norð-
manna. Næstu tónleikar hljóm-
sveitarinnar þar á eftir verða færð
ir aftur um einn dag, verða haldn
ir 1. júní í stað 31 maí, sem er
uppstigningardagur.
Tónlistarmenn, sem á fundinum
voru, létu í ljósi sérstaka ánægju
yfir komu Kiellands hingað til
lands og fögnuðu því, að hann
stjórnaði næstu sinfóníuhljóm’cik-
um.
HÆSTIRETTUR hefur staðfest
úrskurð undirréttar í máli er Fær-
eyingur nokkur höfðaði á liendur
útgerðarmanni á bát þeim, er hann
var háseti á. Krafðist hásetinn kr.
4.620.29 til greiðslu á kaupi sínu
og til tryggingar sjóveðréttar í m.
b. Andra GK 174. Var útgerðar-
manninum, Guðjóni Magnússyni
gert gð greiða Daniel Peter Tom-
sen háseta þessa upphæð auk máls
kostnaðar. Sjóveðréttur féll niður.
Málavextir voru þeir, að Færey-
ingurinn var háseti á Andvara á
vetrarvertíð. Var veitt í þorskanet
til 1. maí, siðan veidd loðna til
13. apríl, en þá tóku netaveiðarn-
ar aftur við og stóðu til 4. maí.
Alls er þessi tími 102 dagar. Afla-
hluturinn var á þorskveiðunum
kr. 1.734.93 að viðbættu orlofi
104.10 kr. en á loðnuveiðum kr.
9.613.86 auk orlofs kr. 476.83. Að
lokinni vertíð gerði Guðjón upp
við Daniel og greiddi honum í dag-
kaup 126.60 yfir vertíðina, en það
var kauptrygging háseta á línuveið
um samkvæmt þágildandi samning-
um. Þessu uppgjöri vildi stefndi
ekki una og var það orsök niálsins.
Kröfur sínar byggði hann á því
að útgerðarmanninum hafi ekki
verið heimilt að iafna aflahlutn-
um á loðnuveiðunum yfir á afla-
hlut á línuveiðunum, heldur hafi
hann átt að gera upp við menn
sína þegar skipt var um veiðarfæri.
Eigi hann alls rétt á 18.073.49 í
kaup og eigi því ógreiddar kr.
4.620.29, þar sem hann hafi aðeins
fengið greiddar kr. 13.453.20. —
Dæmdist málstaður hásetans réttur
vera fyrir báðum réttum og var
útgerðarmanninum gert að greiða
umtalaða upphæð auk málskostnað
ar fyrir Hæstarétti, kr. 3.000.00.
Flotaheim-
sókn i júni
TALSMENN varnarliffsins
í Keflavík skýrffu frá því í
gær, aff í lok maí og byrjun
júní yrffu haldnar flotaæfing-
ar á Norffur-Atlantshafi. Er
hér um fastar flotaæfingar aff
ræða.
Skip þau, sem taka þátt í
þessum flotaæfingum, munu
koma í stutta, óformlega
heimsókn til íslands aff flota-
æfingunum loknum.
Leiðrétting
SÚ MISRITUN varð í blaðinu
í gær, að stúlkan, sem hlaut 6.
verðlaun í fegurðarsamkeppninni
var nefnd Guðrún Björnsdóttir. —
Stúlkan heitir réttu nafni Guffný
Biörnsdóttir, og eru allir hlutað-
eigandi beðnir velvirðingar á þess-
um mistökum.
Sameiginleg
skólaslit
í UNDIRBÚNINGI er aff halda
sameiginleg skólaslit barna- og
gagnfræffaskóla Reykjavíkur á
Laugardalsleikvanginum seina.ta
daginn í þessum mánuffi. Undir-
búningurinn er Iangt kominn.
Jónas B. Jónsson, fræðslustjóri,
skýrði blaðinu svo frá í gær, að ,
enda þótt undirbúningur að þess- '
um sameiginlegu skólaslitum væri
langt kominn væri þetta ekki fast-
mótað ennþá, því væri ekki enn-
þá unnt að skýra að öðru leyti frá
þessu, enda ekki fullvíst, hvort
' úr þessu yrði.
Geta má þess, að þrátt fyrir
þessi sameiginlegu skólaslit verða
skólaslit í hverjum skóla.
í haust eru hundrað ár liðin
síðan barnakennsla hófst í Reykja-
vík og ætlunin er að hafa hátíða-
höld í sambandi við þau, og bá-
tíðlegan blæ í sambandi við sið-
ustu skólaslitin á þessu 100 ára
I skeiði.
I Um helgina munu skólar bæjar-
! ins skipuleggja margþættar sýn-
| ingar. Elzti barnaskólinn er Mið-
bæjarskólinn, sem er 58 ára.
M.ÞÝÐUBLAÐIÐ - 1962 16. maí $