Alþýðublaðið - 16.05.1962, Qupperneq 14
DAGBÓK miðvikudagur
MIM
Miðviku-
dagur 16.
maí: —
12,00 Hádeg-
Isútvarp. 13,00 „Við vinnuna".
15,00 Síðdegisútvarp. 18,30 Óp-
crettulög. 19,30 Fréttir. 20,00
Varnaðarorð: Erlingur Pálsson
lögregluþjónn talar aftur um
umferðarmál. 20,05 „Valsar fyr
ir vestan haf“: Harold Coates og
hliómsveit hans leika og syngja.
20,20 Kvöldvaka. 21,45 íslenzkt
«nál. 22,00 Fréttir. 22,10 Upplest
ur: „Við gröfina", smásaga eftir
Svövu Jakobsdóttur. 22,25 Næt-
urhljómleikar: Frá hátíð nútíma
tónlistarmanna í Varsjá s. 1.
haust. 23,25 Dagskrárlok.
Aðalfundur dansk-íslenzka fé-
lagsins var haldinn 30. apríl
s. 1. Starfsemi félagsins hefur
verið fjölþætt og veigamikil
á undanförnum árum undir
stjórn Friðriks Einarssonar. -
FJárhagur þess er góður. ■—.
Stjórnarkosning fór fram og
var kosinn formaður, Þórir
Þórðarson prófessor. Er hann
kosin til tveggia ára.
HJÓNAEFNI: — í gær opin-
beruðu trúlofun sína ungfrú
Heiða Ólafsdóttir, Laugarnes-
búðum 28, Rvk, og Baldur
Baldvinsson, sjómaður, Vest-
manneyjum. Ennfremur ung-
frú Sirrý Ólafsdóttir, systir
Heiðu, og Jón Jóhannesson,
Sjómaður, Vestmannaeyjum.
Eimskipafélag'
íslands h.f.: —
Brúarfoss kom til
Rvk 14.5. frá Ham-
ÖG borg. Dettifoss fer frá Nevv
York 15.5. til Charleston -og
■ni Hamborgar. Fiallfoss fer frá
■') í Akranesi í dag 15.5. til Rotter-
dam, Hamborgar, Antwerpen og
Hull. Goðafoss fór' frá Dublin
6.5. til New York. Gullfoss fór
frá Leith 14.5. til Rvk. Lagar-
foss fór frá Eskifirði 13.5. til
Hamborgar, Fredrikstad, Gauta-
borgar, Mantyluoto og Koíka.
Reykjafoss fer frá Rotterdam
15.5. til Hamborgar, Rostock og
Gdynia. Selfoss kom til Rvk
12.5. frá New York. Tröllafoss
fór frá Keflavík 13.5. til Hull,
Ventspils, Leningrad og Kotka.
Tungufoss fór frá Gautaborg 12.
5. væntanlegur til Reyðarfjarð-
ar 16.5., fer þaðan til Seyðisfj.
Vopnafjarðar, Raufarhafnar, —
Skagastrandar, ísafJarðar og R-
víkur. Zeehaan fór frá Kefla-
vík 11.5. til Grimsby. Laxá kom
til Hafnarfíarðar 13.5. frá Hull.
tíordland Saga lestar í Hamborg
16.5. fer þaðan til Kmh og Rvk.
Askvik lestar í Gautaborg 18.—.
20.5. til Rvk.
Jöklar h.f.: Drangajökull kom
til Seyðisfjarðar í gær frá Gtb.
Langjökull er í Riga, Vatnajök-
ull fer væntanlega í kvöld frá
Vestmannaeyjum áleiðis til
Grimsby og London.
Eimskipafélag Reykjavíkur h.f.:
Katla er í Napoli. Askja er á
leið til Rvk.
I’Iugfélag íslands
h.fí: Millilandafl.:
Gullfaxi fer til
Glasg. og Kmh kl.
08,00 í fyrramálið. — Innan-
landsflug: í dag er áætlað að
fljúga til Akureyrar (2 ferðir),
Hellu, ísafiarðar og Vestmanna-
eyja (2 ferðir). — Á morgun er
áætlað að fljúga til Akureyrar
(2 ferðir), Egilsstaða, ísafjarð-
ar, Kópskers, Vestmannaeyja (2
ferðir) og Þórshafnar.
Loftleiðir h.f.: — Miðvikudag
16. maí er Þorfinnur karlsefni
væntanlegur frá New York kl.
05,00. Fer til Oslo og Helsing-
fors kl. 06,30. Kemur til baka
frá Helsingfors og Oslo kl. 24.
Heldur áfram til New York kl.
01,30. — Leifur Eiríksson er
væntanlegur frá New York kl.
06,00. Fer til Gautaborgar, K-
mh og Stafangurs kl. 07,30. —
Kemur til baka frá Stafangri,
Kmh og Gautborg kl. 23,00. —
Heldur áfram til New York kl.
00,30. Snorri Þorfinnsson er
væntanlegur frá Helsingfors og
Oslo kl. 24,00. Fer til New
York kl. 01,30.
Kvöld-
n*turvörð-
ur L.R. f
dag: Kvöld-
vakt kl. 18,00—00,30. Nætur-
vakt kl. 24,00—8,00: - Á kvöld-
vakt: Víkingur Arnórsson. Næt-
urvakt: Daníel Guðnason.
Laeknavarðstofan: aiml 15030.
Vesturbæjarapó-
tek á vakt vikuna
12.-19. maí. Sími
-22-90
Kópavogsapótek er opið alla
virka daga frá kl. 9.15-8 laugar
daga frá kl. 9.15-4 og sunnudaga
frá kl. 1-4
Helgidaga og næturvörður í
Hafnarfirði vikuna 12.-19. maí
verður Eiríkur Biörnsson sími
5-02-35 .
MUNIÐ NEYÐARVAKTINA
Bæjarbókasafn
teyk.iavíkur: —
Sími: 12308. A0-
alsafnið Þing-
holtsstræti 29 A: Útlánsdeild
2-10 alla virka daga nema laug
ardaga 1-4. Lokað á sunnudög
um. Lesstofa: 10-10 alla virka
daga, nema laugardaga 10-4.
Lokað á sunnudögum. Útibúið
Hólmgarði 34: Opið 5-7 alla
virka daga, nema laugarddga.
Útibúið Hofsvallagötu 16: Op
ið 5.30-7.30 alla virka daga
nema laugardaga
Vlinningarspjöld „Sjálfsbjörg''
félags fatlaðra fást á eftirtöld
um stöðum. Garðs-apóteki,
Holts-apoteki Reykjavíkur-
apoteki, Vesturbæjar-apotekl
Verzlunninni Roði Laugavegi
74, Bókabúð tsafoldar Austur
stræti 8, Bókabúðinni Laugar
nesvegi 52 Bókbúðinni Bræðra
borgarstíg 9 og í Skrifstofu
>iálfsbiargar
Minningarorð:
KRISTlN KRISTJÁNSSON
ÞAÐ er ekki algengt, að mönn
um verði sérlega mikið um, þótt
þeir frétti lát einhvers, sem kom
inn er á áttræðisaldur — nema
það sé þá faðir eða móðir þess,
sem fréttin berst. En þannig fór
mér, þegar ég fékk þá fregn, að
frú Kristín Helgadóttir KristJáns
son, væri dáin. Ég hafði ekki bú
Akureyri
hafnar
izt svo skjótt við láti hennar,
þótt raunar hefði hún látið svo
ummælt við konu mína, að það
hefði fyrir hana borið ekki alls
fyrir löngu, sem ylli þvi, að hún
byggist ekki við að lifa að verða
sjötíu og fjögurra ára, — en það
hefði hún orðið 7. nóvember n.k.
— og ef til vill liefur hún fyrir^
þær sakir flogið svo skyndilega
vestur um haf til að kveðja vini
sína, börn sín, fimm tengdabörn,
kjörson og barnabörn — því að
hingað til íslands vildi hún kom
ast aftur, áður en dauðann bæri
að höndum, og bera hér beinin.
Kristín var mikil kona og ó-
venóuleg. Það vissi ég því betur,
sem ég kynntist henni meira. Og
ekki hef ég orðið jafnnáinn vinur
neins, sem ég hef skrifað um ævi
sögu, og raunar var það svo„ að
kona mín og sonur, sem er mað
ur einungis rúmlega tvítugur,
fengu ekki síður mætur á henni
en ég, og mátti heita, að hennar
væri hér beðið með eftirvæntingu
af okkur öllum, þegar við áttum
von á henni.
Hún hafði átt við margt og mik
ið að stríða um dagana, margir
erfiðleikar mætt henni og siúk
dómar veitt henni þungar búsifj
ar. Hún hafði staðið ein uppi
með börn sín báðum megin Atl-
antshafsins og orðið að vinna fyr
ir þeim hörðum liöndum, og hún
hafði oftar en einu sinni verið
við dauðans dyr. Og dulargáfur
hennar ollu henni oft ærnum ó-
þægindum og settu hana tíðum
í mikinn vanda, því þó að hún
gæti oftast bægt frá sér í bili
hinum annarlegu óhrifum, ef illa
stóð á, þá gripu þau hana stund-
um af slíku ofurmagni, að hún
fékk ekki viðnám veitt, hvernig
sem ástatt var. Og sýnir hennar
og vitranir lögðu henni löngum
margar og miklar skyldur á herð
ar. En hún styrktist við hverja
raun á þeim vettvangi — eins og
í lífsbaráttunni, leit orðið á það
sem hlutverk sitt að láta sem
mest gott af sér leiða, hjálpa sem
allra flestum, sem voru hjálpar-
þurfi, án tillits til þess, hvort
þeir voru skyldir eða vandalausir
og án þess að hugsa nokkru sinni
um endurgjald, þessa heims eða
annars. Loks var þannig komið,
að persónuleiki hennar var orð-
inn svo hreinn og sterkur, að
henni var hver raun, sem hún á
sig lagði í annarra þágu, ekki að
eins létt, heldur Uúf. Hún var og
með öllu liætt að hugsa fyrir sín
um morgundegi. „Það verður séð
fyrir mér“, sagði hún, „ég þarf !
ekki að hafa neinar áhyggjur."
Og henni varð að þessu, það var
þrautreynt.
Á sjötugasta og fjórða aldurs
ári lagði hún það á sig fyrir
konu, sem bjó í sama húsi og hún,
konu, sem lífið hefur leikið ó-
veniugrátt og lienni var alls ó-
skyld, að fara með henni að
loknu sínu dagsverki sex daga vik
unnar og vinna erfiðisvinnu fram
undir miðnætti.
Það var ekki til neins fyrir okk-
ur vini hennar, að segja henni að
hlífa sér. „Ek hefi vánd klæði, ok
liryggir mik ekki, þó at ek slíta
þeim ekki gerr,“ sagði Ingjaldur
í Hergilsey.
Ég mun ekki að þessu sinni
mæla langt mál eftir þessa konu,
og ég veit, að ég þarf ekki að
biðja henni framliðinni góðs. En
ég og við þrjú á mínu heimUi
þökkum henni vináttu hennar og
kynni og biðjum blessunar henn
ar nánustu, austan hafs og vestan.
Guðmundur Gíslason Hagalín
islenzk Val-
borgarmessa
SÆNSK-ÍSLENZKA félagið í
Reykjavík hélt nú í ár Valborgar-
messu til að fagna komu vorsins
með iíkum hætti og Svíar gera.
Sænskir stúdentar halda jafnan
30. apríl hátíðlegan og syngja vor
söngva um nóttina. Heitir fagnað
urinn Valborgarmessa.
Hélt Sænsk-islenzka félagið há-
tíð sína í Skíðaskálanum í Hvera
dölum. Var bál kveikt fyrir utan
skálann og dönsuðu gestir í kring
um það og sungu. Ræður voru
fluttar og mikið sungið og fór há
tíðin hið bezta fram.
Framh. af 1. síðu
þ. e. Vinnumálasambandi sam-
vinnufélaganna, Krossanesverk-
smiðjunni, K. Jónsson & Co og
Netagerðinni Oddi. Með tilliti til
undirtekta ákvað fundurinn að fé-
lagsmcnn skildu mæta til vinnu í
dag.
Frá Húsavík berast þær fréttir,
að í fyrradag, hafi verið fest upp
á veggi og símastaura, tilkynning-
ar, þar sem verkalýðsfélagið til-
kynnir hækkaða taxta frá og með
15. þ. m. Þar er sagt, að almennt
verkamannakaup hækki úr 23,74 í
26,10 eða um 10%. Þar eru tveir
lægstu flokkarnir felldir saman, og
kemur 10% hækkunin á þá, en
aðrir flokkar hækka um 6%.
Enginn fundur hefur verið hald
inn þar með atvinnurekendum, eða
öðrum aðilum. Það er haft eftir á-
reiðanlegum heimildum, að þar
muni allir aðilar samþykkja þaup-
taxtann hljóðalaust, en ekki skrifa
undir neina samninga. Þó eru Síld
arverksmiðjur rikisins undanskild-
ar, en miklar framkvæmdir eru nú
á Húsavík, og vinna 20 menn við
verksmiðjuna. Mun verksmiðju-
stjórnin fá málið til meðferðar. —
Þar er Kaupfélag Þingeyinga einn
stærsti atvinnurekandinu.
Á Raufarhöfn hefur verkalýðs-
félagið sagt upp samningum fyrir
nokkru, og er það miðað við 1.
júní. Vill það fá 6% hækkun plús
þau 4%, sem koma 1. júní. Þó kem
ur til greina 9% kauphækkun ef
félagið fær greitt Vi% í bygginga-
sjóð. Engar áætlanir eru þar uppi
um að tilkynna hækkaðan kaup-
taxta, heldur bíða til mánaðamót-
anna.
Eins og kunnugt er, gera hinir
tilkynntu kauptaxtar ráð fyrir að
10% hækkunin komi strax til
greina, þó með tilliti til þess, að
ákveðin 4% hækkun 1. júní falli
niður.
SÍS og kaupfélögin eru stærstu
atvinriurekendurnir í þeim kaup-
túnum, þar sem kommúnistar hafa
tilkynnt hækkun á taxta, og má t.d.
benda á hinar stóru verksmiðjur
KEA og sambandsins á Akureyri,
þar sem hundruð manna vinnur.
Nú er almennt talið víst, að
verkalýðsfélögin á Austurlandi
muni sigla í kjölfar með að gefa
út taxta með hækkuðu kaupi.
Slösuðust
Framhald af 1. síðu.
hcimleiðinni og fóru að fikta viS
einn af bautasteinunum, með þeim
aflciðingum að steinninn hrundi
ofan á þá.
Bautasteinninn var á stöpli frck
ar veikum og brotnaði hann í
tvennt. Annar drengurinn komst
lieim til sín, en hinn lá ósjálf-
bjarga eftir, unz kona kom á
vettvang og gerði aðvart uin slys-
ið. Voru báðir drengirnir fluttir
á Slysavarðstofuna, og síðan það-
an á Landsspítalanu, þar sem ver
ið var að gera að sárum þeirra í
gærkvöldi, er blaðið fór í prentun.
Liðsauki....
Framhald af 1. síSu.
inu, verði ekki fyrir neinni komm-
únistískri árás.
Kennedy forseti upplýsti, að U
Thant, framkvæmdastjóra SÞ,
hefði verið tilkynnt um þessa styrk
ingu bandaríska liðsins. Liðið
verður undir yfirstjórn Harkins
hershöfðingja, sem er yfir hernað-
araðstoðinni við Suður Vie-tNam.
Áður en tilkynning þessi var gef-
in út, hafði forestinn rætt við þing-
leiðtoga bæði demókrata og repú-
blíkana. Forsetinn lagði áherzlu á,
að stefna USA gagnvart Laos væri
að koma á samstéypustjórn í land-
inu. Talsmaður Washingtonstjórn-
ar kenndi í dag Phoumi Nosavn,
landvarnaráðherra Boun Oums,
um að ekki hefur tekizt að mynda
slíka stjórn.
Dobrynin, sendiherra Rússa í
Washington, ræddi í kvöld við
Rusk utanríkisráðherra um Laos-
málið.
14 16. maí 1962 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ