Alþýðublaðið - 03.06.1962, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 03.06.1962, Blaðsíða 3
LÖNGUM hefur þeirri áráttu íslendinga verið viðbrugðið, að þeir sækt- ust eftir því að ganga aðra jörð en ættjörðina og sigla annan sjó, en þann, sem umlykur íslands strendur. Menn hafa lagt vitur höfuð sín í bleyti í tilraunum til að grafast fyrir rætur þeirrar áráttu og komizt að ólíkri nið- urstöðu. Útþrá manna á sér sjálfsagt eins margar og margslungnar rætur og mennirnir sjálfir eru margir, en stundum verður manni á að hlusta á frá 'sagnir farmannanna hálfu eyra og hugleiða jafnframt í fyllstu alvöru, hvort hafið streymi ekki í blóði þeirra og gæði rödd þeirra, hinni djúpu fyliingu, gefi augum þeirra hið fjarræna blik, sem veldur því, að manni skilst, að á landi eru þeir aðeins gestir. Maður heitir Ásgeir Höskuldsson, hann hefur fyrir löngu vanizt því að hafa fast land undir fótum, en þrátt fyrir það er hafið djúpstæðara í eðli hans og það er einhver bylgjuhreyfing í öllu því sem hann tekur sér fyrir hendur eins og hafið sjálft gnauði í blóði hans, sterkt og ómótstæði legt. Þennan mann heimsótti blaðamaður Alþýðublaðsins fyrir skömmu og átti við hann það samtal er hér fylgir. ÁSGEIR Höskuldsson er fædd- ur á Fremri-Kotum í Skagafirði árið 1936 og í Skagafirði var hann að mestu til tíu ára aldurs, er hann fluttist til Húsavíkur. — Hvað varstu lengi á Húsa- vík, Ásgeir? — Til sextán ára aldurs, þá lagði ég land undir fót. — Hvert fórstu þá? — Til Noregs. — Hvernig stóð á því ferða- lagi? — Ætli það megi ekki kenna tilboð um vinnumennsku hjá norskum bónda í gegnum norska ráðningarskrifstofu. — Kunnirðu eitthvað í norsku? — Nei, og það hafði nærri komið mér á kaldan klaka. í bréfi ráðningarskrifstofunnar var það skýrt tekið fram, að ég yrði að geta bjargað mér annað hvort í dönsku eða ensku til þess að ráðning- kæmi til greina. Þó að ég kynni hvorugt, ákvað ég að freista gæfunnar og lagði af stað utan með skipi um vorið. Þegar uinstæðurnar, sem ollu því. Það var mikið talað um hval- veiðar í héraðinu og margir það an voru á hvalveiðum á hverju ári. Svo kynntist ég lika göml- um íslendingi, sem hafði verið á hvalveiðum og sagði mér margt frá þeim. Mig langaði til að reyna þetta líka. — Og svo varstu ráðinn? — Já, ég var ráðinn sem sjúkrahúsdrengur á hvalveiði- móðurskip. — Yar það stórt skip? ævintýralönguninni um það. Mig hafði lengi langað til að komast eitthvað út. Eg keypti bækur Menningarsjóðs, þar á meðal bækurnar Lönd og lýðir. í bók um Danmörku rakst ég á frásögn um skipti á landbúnað- arverkafólki, og eygði þar með möguleika á því að láta draum- inn rætast. — Hvernig. fórstu að koma þessu í kring? — Eg fór nú hægt að öllu. Eg fór fyrst til Reykjavíkur og hafði loforð um að komast þar að sem nemi í smiðju, en var svikinn um það. Þá komst ég að sem sendill í þing'nu. Eg sagði vini mínum Karli Kristjánssyni alþingismanni frá löngun minni til að komast utan og hann skrif- aði fyrir mig bréf til Bjarna Ás- geirssonar sendiherra í Oslo. Snemma árs 1953 fékk ég svo út kom leit fátt björgulega út. Eg hafði ekki atvinnuleyfi, en var tilkynnt, að ég yrði að út- vega mér það. Eg kynntist íslendingi, sem hjálpaði mér upp á sendiráð, síð- an var haft samband við ráðn- ingarskrifstofuna og þeir vildu helzt senda mig sömu leið til baka, mállausan og leyfislausan unglinginn. Eg lét mig samt ekki og sama kvöldið lagði ég af stað með lest til Sandefjord á Vest- fold. Þar var ég svo vinnumað- ur í sjö mánuði hjá bóndanum, sem sent hafði tilboðið. Að ráðningartímanum loknum bauðst hann svo til að útvega mér pláss á hvalveiðiskipi, eftir minni eigin ósk. — Hvernig stóð á því, að þú vildir endilega komast á hvat- veiðiskip? — Það voru nú aðallega kring- — Það var þá stærsta hval- veiðimóðurskip í heimi, 34,000 lestir. — Hvert þurftirðu að fara til að komast á það? — Ekkert, það vildi svo til, að þetta stóra skip hafði að nokkru leyti aðsetur sitt í Sandefjord, þann tíma, sem það var ekki í suðurhöfum. — Var áhöfnin norsk? — Mikill meirihluti áhafnar- innar var norskur, þar á meðal allir yfirmennirnir. — Hvert var svo siglt? — Við héldum fyrst til A- Indía og þaðan til Durban í S- Afríku, þar fóru áhafnir skot- bátanna frá borði, yfir í sín skip, en við tókum marga afrík- anska verkamenn um borð, sem áttif að tilheyra áhöfninni um veiðitímann. — Hvernig líkaði þér við svert ingjana? — Þetta var auðvitað margs konar lýður, en það er einkenni legt, ég held, að það sé óhætt að segja það, að þeir hafi verið betri eftir því sem þeir voru dekkri. — Var munur gerður á svertingjunum og þeim hvítu um borð hjá ykkur? — Nei, varla um borð, en mér fannst svertingjarnir vera eins og hver önnur vinnudýr í S- Afríku. Eg man, að ég sá einu sinni svertingja vinna við upp- skipun. Þeir voru í 20-30 manna hópum og yfir þeim var verk- stjóri, hvítur maður og í snjó- hvítum fötum. Hann lyfti ekki hendi til eins eða neins, nema til þess að slá til svertingjanna og spörk fengu þeir, ef ekki gekk nógu vel. Eg man það, að þeir urðu mjög undrandi og hrifnir um borð, ef hvítu mennirnir hjálp- uðu þeim við verk, sem þeir áttu að vinna. — Hvað var áhöfnin fjölmenn? — Við vorum um 520 manns í allt og urðum heldur fleiri en ráð hafði verið fyrir gert, því að í Durban fengum við nokkra laumufarþega um borð, 12 alls. Við urðum þeirra ekki varir fyrr en skipið hafði verið tvo sólar- hringa í hafi. — Hvers konar lýður var þetta? — Þetta var alls konar fólk og ástæðurnar fyrir þessu ferða lagi þeirra voru margs konar. Eg man til dæmis eftir einum Búa, kaupmanni að atvinnu, sem flæktist út í þetta vegna ó- samkomulags við kerlinguna sína. — Hvemig voru móttökurnar um borð, þegar þeir fundust? — Þær voru nú blandnar og ekki varð þetta ferð til.fjár fyrir vesalingana, því að þeir urðu að þræla um borð þá fjóra mán- uði, sem veiðiferðin stóð, í tólf tíma .á sólarhring. Fyrir þá vinnu fengu þeir mat og skjól undir þiljum, eins og aðrir skipsmenn. Þar með var ekki öllu lokið, því að lögreglan beið þeirra á bryggjunni, þegar við komum til baka. — Hvar voru veiðarnar stund- aðar? — Við sigldum beint í suður frá Afríku og vorum svo við veiðiskapinn á belti milli 60. og 70. gráðu. — Þú sagðist hafa verið ráð- inn sem sjúkrahúsdrengur (ho- •spitalgutt) — í hverju var það starf fólgið? — Það var sjúkrastofa um borð og við vorum þrír, sem urinum á henni. Læknirinn, sem var gamall lierlæknir, ágætis ; karl. Svo var hjúkrunarmaður, sem um leið var sálusorgari fyr- ; ir mannskapinn og ég „gutt- ; inn“ sá þriðji. Eg var nokkurs ; konar allra gagn þarna á sjúkra , húsinu, blandaði einföld lyf eins ; og kamfórudropa og hóstamixt- ) úrur, gaf sjúklingunum að eta, þvoði þeim og snurfusaði, skúr- ; aði gólf og þvoði upp skítug á- } höld. — Hvernig líkaði þér vistin? , — Sæmilega. ; — En livernig líkaði sjúkiing- , unum við þig, fékkstu ekki oft , orð í eyra frá þeim? , — Þeim líkaði yfirieitt vel vlð , mig, held ég, en einn kom þó ; með athugasemd, sem ég gleymi ; ekki. Hann sagði, að ég væri } svo sem ágætur, en ég ætti bara , aldrei að skúra önnur gólf en , þau, sem væru kringlótt. — Hvað meinti hann með þv!? — Eg var víst ekki nógu vand- ' virkur með hornin. — Hvernig líkaði þér við sam- starfsmennina? — Þetta voru beztu karlar, og ' ég kynntist þeim nokkuð, þó man ég bezt eftir eyrunum á hjúkrunarmanninum. Hann var nefnilega eyrnaveikur og það þurfti að hreinsa út úr þeim við og við. Læknirinn nennti ekki að standa í því, svo að það féll í minn hlut. — Varstu allan tímann í sjúkrahúsinu? — Nei, læknirinn hjálpaði 1 mér til þess að komast á dekk, þegar veiðar hófust. — Vildir þú heldur komast \ þangað? — Já, það var meira upp úr \ því að hafa og meira urn að ' vera. — Hvaða verk liafðir þú þar? / — Eg var fyrst í svokölluðu / beinagengi. Kringlótt göt voru <; á dekkinu og undir þeim voru / pottamir, þar sem úrgangurinn / var unninn. Við drógum bein og / annað, sem með þurfti með stór / um járnkrókum um dekkið og <; steyptum því ofan í götin. / — Var þetta ekki heldijk ó- / þrifaleg vinna? * / — Það var sleipt og mesta / svað á dekkinu. Við gengum / með mannbrodda neðan í hæl- / unum og það var erfitt fyrst í ) Framh. á 15. siðu / ALÞYPUBLAÐIÐ r 3. júní 1%2 3%

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.