Alþýðublaðið - 03.06.1962, Síða 13

Alþýðublaðið - 03.06.1962, Síða 13
Vib sjó og í sveit Framh. af 9. síðu — þær eru spakar þessar, Hró- b.jartur, sagði ég og benti á end urnar. — Jó, þeim er gefið svo vel hérna, þær koma alltaf aftur, ég held bara, að þetta séu þær sömu og voru hér í fyrra. — Þær eru orðnar hændar að ■ mönnum; — Það-ér hægt að hæna að sér öll dýr, ef maður er góður við þau. — Hvaðan ertu ættaður, Hró- bjartur? — Ég er Árnesingur, fæddur á Illemmiskeiði á Skeiðum árið 1890. — Og gerðist sjómaður? — Það var nú bæði og. Ég var tuttugu ár á vertíðum, vetur og vor, en ég hef nú líka verið bóndi Ég bjó í fimmtán ár í Villinga- holtshreppi. — Það er tilbreyting að hitta hér hálfgerðan bónda innan um alla sjómennina. — Ég verð nú víst að teljast fremur sjómaðu» en bóndi, þó að það hafi alltaf verið sveitamaður. í mér. — Ertu löngu ffuttur í borgina? — Ég hef verið í Keykjavík síð an 1941, fór hingað vegna veik- inda og var þó nokkuð á togurum einkum frá Hafnarfirði fyrst eft ir að ég kom suður. En svo brugð ust fæturnir og bakið. Það er kölkun í bakinu á mér og hún gerir mér lífið leitt. En handlegg irnir og herðarnar eru enn eins og á ungum manni. — Þér líkar auðvitað vel vistin hérna? — Sæmilega, það er nú ekki svo slæmt, en mér leiðist bara kaupstaðalífið, það er aðallega það. Annars er ágætt að vera hérna, aðbúðin er góð og vel sinnt um mann. Við Hróbjartur sátum snöggv ast undir veggnum og ég þóttist viss um, að hann, sjómaðurinn, sem var kominn á Hrafnistu eftir langt og erfitt starf á sjónum, sá ekki fyrir sér borgina glampandi í sólskini nýútsprungins sumars, þegar hann horfði út yfir hana, heldur sá hann fyrstu sóleyjuna skjóta upp kollinum og fann ilm úr grasi sveitarinnar, sem hann unni. Þannig togast landið og hafið á um sál eybúans og sættast ekki alltaf, fyrr en yfir líkur. Ungur stýrimaður kom dag nokkurn inn til skip- stjóra síns, ræskti sig og sagði: Mig langar til að biðja yður, skipstjóri um nokkurra daga leyfi. — Gæti ég fengið að vita ástæðuna, sagði skipstjór- inn. — Konan mín er á leið að eignast barn, svaraði stýri- maðurinn. — Nei, heyrið mig nú, góði maður, sagði skipstjór- inn og var ekki auðvelt að lieyra hvort heldur hann skemmti sér eða var fok- reiður. Við vituin fullvel, að nærveru yðar er krafizt, þegar kjölurinn er lagður, en fjandinn hafi það, ég get ekki skilið, að þér hafið neitt að gera, þegar skipinu er hleypt af stokkunum. %%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%< OBY DICK Framh. af 7. síðu reyna að éta trjárót. Hann spýtti henni út úr sér aftur og það heyrðust dómadags óhljóð innan úr vömbinni á honum. Án þess að taka eftir því, að ég var vaknaður, reis hann á fætur og gekk niður að pollinum hjá fisk inum. Innan stundar kom hann aftur og það söng í maganum á honum -meira en nokkru sinni fyrr. Hann bölvaði, svo kom liann að eldinum til mín og hristi mig til. „Vaknaðu", sagði hann, „vakn aðu. Ég geispaði og settist upp. Ég horfði framan í hann og það var hörmulegasta sjón, sem ég hef séð, en hann var slóttugur á svip. Hann lagði höndina á öxl mér. — „Vesalingurinn", sagði hann. „Þú hefur verið að kalla upp úr svefninum, gef mér mat, gef mér mat, kallaðir þú“. Ég varð alveg orðlaus, en Hetjur á hefilspæni Framh. af 11. síðu Næturnar höfðu verið verstar, þá var allaf kalt og þeir voru gegnblautir. Vissu þeir hvar þeir vorú, þegar við fundum þá?- Já, já, þeir höfðu vonað, að geta náð til kóraleyjarinnar If- alik. „Hún er þarna,” sagði Ser- nous og benti til norðvesturs. nofnina Ilöfnin, lífæð Keykjavíkurborgar, er sá staður sem hefur mest aðdráttarafl fyrir alla þá, sem unna lífi og starfi og gera sér um Ieið Ijóst, hve þýðingarmikill þáttur hún er í uppbygg- ingu og fyamtíð höfuðborgarinnar. En sé höfnin mikilfengleg um daga, er hún það ekki síður um nætur. Og sá maður má vera sneyddur fegurðarskyni, sem ekki getur lirifizt við höfn- ina um sölarlag eða sólarupprás á sumartíð. Bæði skipstjórinn og stýrimað- urinn kinkuðu kolli og brostu lítið eitt. Sá gamli hafði reynd- ar rétt fyrir sér, hún var „þarna.” Samkvæmt kortinu var hún 35 sjómílur frá þeim stað, er við höfðum komið auga á þá, en næstum 500 mílur frá Truk, upphaflegum áfangastað þeirra. Við ræddum það á eftir, hvernig okkur myndi haf-i lið- ið á sál og líkama eftir að liafa velkst 30 daga um hafið i slík- um hefilspæni. Og hvernig við hefðum brugðist við eftii’ að hafa verið bjargað á svjpaðan hátt og þeim fimm. , Gamli maðurinn hafði sagt sögu sína hreinskilnislega og geðshræringalaust og félagar hans sýndu heldur engin merki neins óróleika. Þeir höfðu villst af leið á opnu £afi, en það hafði komið fyrir " hjá þúsundum þeirra áður. Sumir höfðu fund- izt, aðrir ekki. 30 dagar, 500 sjómílur, hverju máli skipti það? Engu — það svar fann maður í afslöppuðum líkömum þeirra og í rólegum, brúnum augunum. Sernous sagði aftur eitthvað og túlkurinn sagði. — Hann spyr, hvort þeir megi halda áfram við að dytta að bátnum sín- um. Þá langar til að hafa hann þurran og þéttan, þegar þeir leggja af stað aftur frá Truk til Pulap. — Auðvitað, sagði skipstjór- inn. Svo datt honum eitthvað í hug. — Spurðu hann, hvað þeir hafi ætlað að gera til Truk? Túlkurinn flutti spurninguna á milli, svo sagði hann: Þeir fóru af stað til þess að kaupa sígarettur. — Sígarettur, alla þessa löngu leið, bara til þess að kaupa síg- arettur? — Já, hann segir, að það hafi ekki vantað annað. Við gáfum þeim hverjum um sig eitt karton af sígarettum, og það sem eftir var af leiðinni til Truk keðjureyktu þeir um leið og þeir unnu við bátinn sinn. Þeir minntust ekki á það, hvaða tegund þeir höfðu ætlað að kaupa, en þeir kvörtuðu ekki heldur yfir þeirri tegund, sem þeir fengu. hann hélt áfram. — „Eg hef víst verið eigingjarn, ég er svo feit- ur, að ég get verið án matar langtímum saman — en þú svona grindhoraður, það er annað mál. Ég ætla að biðja Henry að steikja fyrir þig fiskinn." Ég hef aldrei aumkað mann meira á ævi min'ni. Hann laug — auðvitað, það var hann, sem var að sálast úr sulti og vildl éta fiskinn, en það gat hann ekki viðurkennt, hann varð að finna einhverja afsökun fyrir því að éta fiskinn, sem hann hafði beðið eftir alla ævi, og ég var ágæt afsökun, glæpinn átti að fremja í mínu nafni. „Þakka þér fyrir, Sammi,** tautaði ég, „mér þykir þetta leitt en . . . „Minnumst ekki meira á það“, sagði hann og ég heyrði garna gaulið í honum. „Þú mundir gera það sama fyrir mig, ef ég væri eins svangur". Við þetta er litlu að bæta, Moby Ðick var etinn, þó að það væri sú þöglasta og ömurlegasta máltíð, sem ég hefi tekið þátt í. Tveimur dögum síðar var okk ur bjargað. En þetta var í síðasta skiptið, sem Sammi át fisk. (Úr sögu eftir B.M. Atkinson jr.) %%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%% Franska herskipið var á siglingu um Miðjarðarhafið, og dag nokkurn fékk einn liðsforinginn skipun um að taka sólarhæðina og ákveða hnattstöðu skipsins. Ungi maðurinn gerði eins og fyrir hann var lagt og skilaði útreikningum sínum til yfirmanns síns. Stuttu síðar fékk liðsfor- inginn skipun um að mæta þegar í stað uppi í brú, þeg- ar, Jiann kom þar upp, sagði yfirmaður lians liátíðlega: Ungi maður, takið af yður einkennishúfuna, því að við erum á heilögum stað. — Ekki skilið, foringi, — sagði aumingja liðsforinginn — Þá skal ég segja yður það, sagði foringinn. „Ef út- reikningar yðar eru réttir, þá erum við á þessu augna- bliki í miðri Péturskirkjunni í Rómaborg. %%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%v ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 3. júní 1962 13 ..-utv.uiit-, •• •, , >4.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.