Alþýðublaðið - 08.08.1962, Qupperneq 2

Alþýðublaðið - 08.08.1962, Qupperneq 2
joiar: Gísli ,T. Asipórsson (áb.) og Benedikt Gröndal. — AOstoðarritstjóri: þrgvin GuSmundsson. — Símar: 14 900 — 14 902 — 14 903. Auglýsingasimi p06. — Aðsetur: Alþýðuhúsið. — Prentcmiðja Alþýðubiaðsins, Hverfisgötu I—10. — Askriftargj ald kr. 55,00 á mánuði. 1 lausasölu kr. .",00 eint. Útgel- | andi: Alþýðuflokkurinn. — Framkvæmdastjóri: Ásgoir Jóhannesson. Verðbólga og neytendur VERÐBÓLGAN á tuttugu ára afmæli á þessu ári. Eru flestir sammála um að telja hana hafa byrj að 1942, enda hefur hún sjaldan tekið slíkt stökk sém hið fyrsta. Síðan hefur þróunin verið stöðug í sömu átt( að undantekinni stjórn Stefáns Jóhanns o|j Emilsárinu 1959), verðlag og kaupgjald hafa hækkað hvort í kapp við annað, stundum hratt, stundum hægt. Krónan hefur ár eftir ár fallið að verðgildi. íEf til vill má segja, að verðbólguþróun hafi ver- ið óhjákvæmileg fyrir þjóð, sem varð bjargálna á einni nóttu og hefur viljað gera svo margt á svo skömmum tíma, sem raun ber vitni. Ef til vill hefði uppbygging landsins orðið hægari, ef verðbólg- uhni hefði alla tíð verið haldið niðri, en hún hefði verið betur undirbyggð. Verðbólgan hefur gert þjóðinni sem heild mikið tjón. Ef til vill eru margir á annarri skoðun, af því • að þeir hafa eignazt íbúð, bíl eða aðrar eignir á skömmum tíma með því að greiða minni krónur en þeir fengu lánaðar. En það getur enginn grætt nema á kostnað annars í slíkum skiptum. Þeir, sem hafa tapað á verðbólgunni eru fyrst og fremst sparif jár- eigendur og hinir almennu neytendur, launþegar landsins. Þótt margir hafi braskað með verðbólg- una hafa fleiri tapað á henni, því launin hafa sjald an við verðlaginu, þegar það byrjar að spennast upp — þau eru alltaf á eftir. Margt hefur breytzt í efnahagslífi þjóðarinnar á síðustu árum, og vonandi hægir verðbólgan smám saman á sér, unz hún verður viðráðanleg. Strax og þjóðin getur borið nýtt traust til krónunnar, þarf að verða mikil hugarfarsbreyting, því mesta tjón verðbólgunnar er að finna í hugsunarhætti fólks- ins. Breytingin þarf að verða fólgin í heilbrigðri meðferð fjármuna. í stað þess að hugsa eingöngu um að afla fleiri króna, þ'arf að gæta þess hvað fæst fyrir þær. Launþegar þurfa einnig að hugsa sem meytendur og bæta lífskjör sín á því sviði. Verðbólgan hefur drepið niður tilfinningu fólks fyrir vöruverði. Af þeim sökum kemur samkeppni að mjög takmörkuðum notum hér á landi, og verð Iagseftirlit er óhjákvæmilegt. Þegar raunverulegt traust á krónunni vaknar, hlýtur þetta að breyt- ast. Þá munu Iaunþegarnir gefa meiri gaum verð- lagi og vörugæðum, og þá fá hvers konar samtök neytenda á þessu sviði nýtt gildi hér á landi. ;Orsakir verðbólgunnar eru .margar, og virðist, þegar öllu er á botninn hvolft ekki alls staðar vel þokkað að halda henni niðri. Stjórnarandstaðan leggur sérstaka áherzla á að rægja þær ráðstafanir, s^m eiga að hindra verðbólgu. Meðan slík stefna er rfkjandi hlýtur verðbólgan að verða það líka. íi Flugfélag íslands efnir til skemmtiferðar til Færeyja dagana 17- — 21. ágúst, ef næg þátttaka fæst. Flogið verður frá Reykjavík föstudaginn 17. ágúst kl. 10:00 og lent á Sörvágsflugvelli. Farþegum verður séð fyrir bátsferð til Tórshavn og gistingu á góðu hóteli þar. Heim verður haldið þriðjudaginn 21. ágúst kl. 16:00. ?j - J Nánari upplýsingar veitir söluskrifstofa okkar, Lækjargötu 4, eða ferðaskrifstofurnar. HANNES Á HORNINU ★ Þegar hinir fullorðnu sprengdu skipulag unglinganna. ★ Dæmi um 'slæma fram- komu. ★ Boðsgesíirnir ruddust inn löngu áður en þeir áttu að koma. SKÁTAMÓTINU á Þingvöllum er lokið., Það fór hið bezta fram og var til fyrirmyndar fyrir ungt fólk. Þar var mikið og veglegt verk efni að vinna og það var leyst eins og bezt verður á kosið. Unga fólk- ið var önnum kafið vikum saman' við undirbúninginn og eklti minnk uðu annirnar þegar tjaldborgin hafði verið reist með öllu því, sem lienni varð að fyigja svo að þarna gæti veriö myndarlegt samfélag góðs fólks við glæsiiegt starf. FORELDRAR hringdu til mín og ræddu við mig um þetta mót og ég heyrði á fólkinu að það kunni að meta starfið. Það var ánægt yfir því, að unglingarnir hefðu verk að vinna, göfugt og gott starf, sem þeir höfðu áhuga á og það var ör uggt um að allt færi vel fram, enda brást sú von ekki að neinu leyti. EITT ATVIK kom þó fyrir, sem vert er að veita athygli og leggja á minnið ef það gæti orðið til þéss að kenna fólki. Hér var um ákveð ið samfélag að ræða og það varð að lúta-settum reglum, annars yrði hætta á að skipulagið riðiaðist og ýmislegt lenti afskeiðis Mótsstjórn in hafði og augu opin fyrir þessu og til þess að koma í veg fyrir vandkvæði voru einmitt um þetta atriði settar reglur og tilkynntar þegar í upphafi. TIUKVNNT VAR opinberlega að foreldradagur skyldi verða á sunnu daginn var, viku eftir að mótið liófst. Var þetta, ákveðið til þess að koma í veg fyrir gestanauð í upp liafi þess. Mjög margir foreldrar og fullorðnir skildu þetta og fóru ckki.til Þingvalla fyrr en ákveðið hafði verið að þeir mættu koma. i En nógu margir, ótrúlegur fjöldi, | tók ekki til greina heimboðið hinn ákveðna dag heldur ruddust til j Þingvalla á sunnudaginn annan en var. 1 ÞARNA KOMU MÖRG hundruð bíla og þúsundir manna og ýmis- legt það í skipulagi mótsins, sem ekki mátti bregðast, fór út um þúf ur. Til þess að reyúa að koma í veg fyrir umfcrðahnúta og forða slys um og árekstrum, urðu forystu- menn skátanna að skipa nær öllu gæzluliði sínu á mótinu út í um- ferðina til þess að greiða fyrir henni. Þetta olli vandræðum. Það var ekki unga fólkið, sem olli þeim heldur fullorðið fólk, sem sentist, þrátt fyrir beiðni og bann inn á mót ið, ruddist um eins og' nautpening ur og þjónaði þar með sinni eigin lund án þess að taka tillit til hús ráðenda. VITANLEGA NÆR slík frani- i koma ekki nokkurri átt.. Þarna var I fullorðna fólkið unglingunum ekkl I til fyrirmyndar. Það átti mótssvæð ið þessa viku. Það hafði reist sín I ar tjaldbúðir og lagt nótt við dag. i Það hafði sett sitt skipulag sem ' ekki mátti bregðast. Það hélt regl ; urnar, en fullorðna fólkið sprengdi I þær. Þetta var vitaverð framkoma jog ég vek athygli á lienni til þess • eins að gera tilraun iil að opna augu fólks fyrir því, að þannig á ! ekki að hegða sér. BIÖÐIN ERU FULL af frásögn- 1 um og myndum af óðum unglinga- i skríl á opinberum mannamótum. I Þarna voru góðir unglingar að nauðsynlegum störfum. Þeir höfðu boðið fullorðnum til sín á ákveðn um degi. Hinir fullorðnu sinntu ekki boðinu, en fóru sínu fram. Hinir fullorðnu voru því sannar- lega ekki til fyrirmyndar í þetta sinn. ■ ílanr.cs á horninu ALÞYÐUFLOKKS- FUNDUR 'I IÐNÓ ALÞÝÐUFLOKKURINN efnir til almenns fundar í Reykjavík í kvöld kl. 8,30 í Iðnó uppi. Á fundinum mæta fjórir vestur-þýzk ir leiðtograr jafnaðarmanna og munu "þeir ræða um Berlúiarmúr- inn sem er eins árs um þessar mundir. Sýndar verða kvikmynd- ir frá Berlín. Alþýðuflokksfólk er livatt til þess að fjölmenna. 2 8. ágúst 1962 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.