Alþýðublaðið - 08.08.1962, Side 11

Alþýðublaðið - 08.08.1962, Side 11
Ánægjuleg helgi í Reykjadal IJM verzlunarmannahelgina dvöldu milli 20 og 30 frjáls- íþróttamenn í íþróttaskóla Vilhjálms Einarssonar og Höskuldar G. Karlssonar að’ Reykjadal í Mosfellssveit. Dvöl þessi tókst hið bezta, enda veður gott og öll að- staða til afslöppunar og léttra æfinga hin bezta þarna efra. Þjálfararnir Gabor og hinn bandaríski þjálfari Ver non Cox, sem nýkominn er hingað til lands á vegum bandarísku upplýsingaþjón- ustunnar, dvöldu einnig efra. Þeir létu báðir mjög vel yfir öllum viðurgerningi og sögðu, að „stemning” hefði verið til fyrirmyndar og íþróttamennirnir notið góðr- ar hvíldar. Þeir æfðu ýmsar fleiri íþróttir en frjálsar, svo sem knattspyrnu, blak, körfubolta, golf, fjallgöngur o. fl. Á kvöldin var spilað, Ieikið á gítar, sýndar kvik- myndir og fleira gert sér til skemmtunar. Þessi framtakssemi þeirra Vilhjálms og Höskuldar er mjög til fyrirmyndar og meira mætti gera af slíku í framtíðinni. Eitt þótti mjög athyglisvert efra um helgina, enginn af þátttakendunum reykti. Golfkeppni Franahald af 10. síðu. verður þar nú þátttakandi frá ís- landi Pétur Björnsson, sem varð þriðji á íslandsmeistaramótinu i Vestmannaeyjum í júlí sl. og sig- urvegari í Berserk, þ. e. keppni um það, hver slær kúlu lengst, tekur þar nú þátt af íslands hálfu. Pétur er eini íslendingurinn, sem þarna verður í ár, og má segja, a3 hann brjóti ísinn fyrir íslenzka kylfinga, því sennilegt er að fleiri eða færri sæki mót þetta héðan næstu árin. Forgjafarhámark þátt- takenda er 4. Knatíspyma Frainhald af 10. síðu. Holland —Sviss í Amsterdatt (Evrópubikar). 18. ísrael—Tyrkland í Tel Aviv. 21. England —Wales. 25. Bíilgaría — Austurríki í Soíía. Spánn—Rumenía í Madrid (Evrópubikar). DESEMBER: 2. Ítalía—Tyrkland í Róm. Belgía —Spánn í Briissel. 8. Malta—Danmark í La Valetta. (Evrópubikar). 16. Portúgal—Búlgaría í Lissabom (Evrópubikar). 23. V-Þýzkal.—Sviss í Frankfurt. ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 8. águst 1962

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.