Alþýðublaðið - 08.08.1962, Síða 16

Alþýðublaðið - 08.08.1962, Síða 16
4 BORGARST JORA Á FUNDI í R.VÍK FUNDUR fulltrúa frá öllum NorS- wrlöudunum um íþróttir og útilíf liefst í Reykjavík næstkomandi föstudagr. Á þessum fundi verða staddir þrír erlendir borgarstjór- er, yfirborgarstjórinn í Kaup- mannahöfn, borgarstjóri Stokk- hólmsborgar og Heisingfors, svo og borgarstjórinn í Rvík, Geir llallgrímsson. Áætlað er, að 26 erlendir full- , trúar muni sækja hingað á þessa •ráðstefnu, sem er sú sjötta í röð- ■fnni slíkra funda. Þær fimm ráð- stefnur, sem áður hafa verið haldnar um þessi mál hafa allar verið haldnar í einhverjum hinna •Koi-ðurlandanna. Á ráðstefnunni verður eins og éður er sagt, rætt um íþróttir og -útilíf á Norðurlöndunum, skýrt frá fyrirhuguðum framkvæmdum, sem bæta eiga aðstöðu til íþrótta iðkana í ýmsum löndum, erlendu fulltrúunum verða sýnd íþrótta- hús hér í Reykjavík og fulirrúax; allra landanna skýra frá ástand- inu í þessum málum í heimaiönd- um sínum. Ráðstefnunni lýkur næst kom- andi sunnudag. Erlendu fulltrúamir eru vænt- anlegir til landsins í dag og á morgun, en yfirborgarstjóri Kaup- mannaliafnar er þegar kominn og er um þessar mundir á ferð um Norðurland. Urban Hansen, yfir- borgarstjóri Kaupmannahafnar, er framámaður. í sambandi berklasjúk linga í Danmörku og ferðast nú I um á vegum SÍBS. Philadelphia, 7, ágúst (NTB—Reuter) -'t -GREIN í síðasta tölublaði „Sa- turday Evening Post“ gagnrýnir Eisenhower • fyrrverandi forseti hið mikla kapp sem Bandaríkja- menn leggja á það, að sigra í „kapp hlaupinu um tunglið". — Ég er eins stoltur af afrekum John Glenn, Seott Carpenters og ennarra geimfara og aðrir Banda- létejamenn, en ég get ekki skilið, að hinn mikli asi að komast til ■tunglsins réttlæti hinar geysidýru áætlanir, sem nú eru hafðar, sagði Eisenhower. Vlnningur: Taunus-fólksbifreið. Verðmæti kr. 164.000 þús, Kaupið miða úr bílnum I ! Austurstræti. Nc>mS FIMH pÚSÖND NÓMER Talsverða skemmdir ff Surprise TALSVERÐAR skemmdir urðu í vclarrúmi togarans Surprise í gær morgun þegar eldur kom up í tog aranum þar sem hann lá við syðri hafnargarðinn í Hafnarfirði. Slökkvistarfið gekk vel og tók að eins rúma klukkustund. Eldurinn var talsvert mikill á tímabili. Skemmdir urðu á raf búnaði, raftækjum og raflögnum. Plötur svignuðu og ljósavélin mun vera ónýt. Orsök eldsins er talin hafa verið sú, að þegar var verið að taka olíu um borð í togarann hafði olía lek ið á ljósavélina. Slökkvistarfi var lokið rúmlega IX, en kl. 9.52 var slökkviliðinu tilkynnt um brunann. Þeir sem voru í togaranum höfðu ekki grímur og gátu ekki notað slökkvitæki togarans eða stöðvað ljósavélina, sem stöðvaðist sjálf. Togarinn hitnaði mikið og vatn, sem dælt var á siðu skipsins, gufaði upp. Um tíma var óttazt, að spreng- ing yrði í olíugeymum togarans. Svo varð ekki, enda var mikið í honum, en þá er talin minni hætta á sprengingu. Slökkviliðið í Hafnarfirði vill benda fólki á, að bílar geta oft i tafið fyrir slökkviliðinu og svo var einnig nú. Erfitt var að komast að togaranum. Jeppi valt á Hringbrauf SÍÐASTLIÐINN sunnudag valt jeppabifreið á Hringbraut móts við Njarðargötu. Karlmaður og kona voru í bifreiðinni og slösuð- ust þau ekki til muna, en bifreið in mun hins vegar stórskemmd. Áður en bifreiðin valt hafði hún lent á tveim ljósastaurum og brot ið annan þeirra en beygt hinn nið ur undir jörð. Ástæðan til þess að svo illa fór mun vera sú að ökumaður jeppans vár að kveikja í sígarettu fyrir far þegann, og gætti þess ekki að hafa auga með veginum meðan hann var jað því. Hann telur sig hafa ekið 'á 60-65 km hraða á klukkustund. Fyrstu togar- arnir landa FYRSTU togararnir eru nú komnir inn eftir verkfallið. Varð Narfi fyrstur togaranna til þess að landa. Kom hann inn í fyrrad. með 143 tonn af karfa af heimamiðum. Þá kom Hvalfell í gærmorgun með svipaðan afla eftir 12-13 daga útivist. Þorkell máni og Þormóð ur goði eru á þeiðum við Græn- land en ekki er vitað um afla hjá þeim. Togararnir Freyr og Geir Iiggja í höfn vel fullir af síld. Verð ur sennilega byrjað að landa úr QMStU’ 43. árg. — Miðvikudagur 8. ágúst 1962 — 178. tbl. Forseti Islands skrifar nafn sitt á skinn í búðum norsku skátanna á landsmótinu. 13. Landsmóti þeim í dag. Þorsteinn Ingólfsson fór héðan í gær til Seyðisfjarðar til þess að sækja síld. y Afli þeirra togara, sem eru að veiðum við Grænland hefur verið fremur tregur. Hins vegar hefur afli togaranna á heimamiðum verið betri.Togararnir veiða nú allir fyriv innanlandsmarkað. ðlunu þeir ekki byrja að sigla með afla fyrr en í j lok þessa mánaðar, þar eð markað i urinn úti er cnn ekki orðinn nógu i góour. ' ÞRETTÁNDA landsmóti skáta lauk á Þingvöllum á mánudags- kvöld. Mótið sóttu allt að tvö þús- und skát'ar innlendir og erlendir og tókst það hið bezta f alla staði þótt veðrið væri oft ekki eins og bezt væri á kosið. Á laugardag komu forsetahjónjn í heimsókn á mótið þá komu einnig ráðherrar, og sendiherrar erlendra ríkja, auk fjölda annarra gesta. Áður en gestir skoðuðu tjaldbúð irnar, flutti Páll Gíslason móts- stjóri ávarp og síðan flutti forseti íslands ræðu. Siðan fóru fram hóp sýningar. Þór Sandholt formaður hátíðanefndar skátaársins flutti að lokum ræðu, og því næst fór fram verðlaunaafhending í flokka keppni BÍS, sem staðið hefur í all an vetur. Sigur úr býtum báru stúlkuflokkur úr Reykjavík og drengjaflokkur frá ísafirði. Skoðuðu gestir síðan tjaldbúð- irnar. Um kvöldið var varðeldur, sem þótti takast með afbrigðum vel. Á sunnudag var almennur heim- sóknardagur, og þá um kvöldið var langeldur í Hvannagjá og var þar imikill fjöldi fólks. Á sunnuaags morgun messaði biskupinn yfir ís- landi, herra Sigurbj. Einarsson fyr- ir- mótmælendur,- en séra-Hacking fyrir kaþólska. Gífurleg umferð var um Þing velli þennan dag. Mótinu var slitið í Hvanngjá að viðstöddum miklum mannfjölda og var sú athlöfn mjög hátíðleg. Blaðið átti í gærkveidi tal við Magnús Stephensen, framkvæmda stjóra mótsnefndar. Magnús var þá austur á Þingvöllum. Sagði hann að þar væri hávaðarok og kuldi, allir skátarnir voru þá farn ir til síns heima, nema þeir sem voru að vinna að því að taká niður tjöldin. Sagði Magnús að þá um nóttina hefðu fokið ein fimm stór tjöid, hefðu sum þeirra rifnað nokkuð og súlur brotnað. Magnús sagði, að það væri ekki hægt annað en að vera ánægður með mótið, þótt veðrið hefði ekki alltaf verið upp á það bezta. Það er án efa hægt að fullyrða að þrettánda landsmót skáta, er það glæsilegasta, sem hér hefur verið haldið, og verður án efa mesta lyftistöng allri skátastarf- semi í landinu.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.