Alþýðublaðið - 14.08.1962, Blaðsíða 2
/sueosœDasöí)
Altstjóiar: Gísli J. Astpórsson (áb.) og Benedikt Gröndal. — ASstoöarritstjóri:
BJörgvin Guðmundsson. — Símar: 14 900 — 14 902 — 14 903. Auglýsingasími
14 906. — AÖsetur: AlþýðuhúsiC. — Prentcmiðja Alþýðublaðsins, Hverfisgötu
9—10. — Askriftargjald kr. 55,00 á mánuði. í lausasölu kr. r,00 eint. Útgef-
andi: Aiþýðuflokkurinn. -- Framkvæmdastjórl: Ásgoir Jóhannesson,
*
* Afvopnun
SEGJUM SVO, að Bretar hefðu í landhelgisdeil-
unni boðizt til að fallast á 12 mílna landhelgi okk-
ar, svo framalega sem við hefðum enga landhelgis
gæzlu. Hefðu íslendingar talið það raunhæfa af-
stöðu? Hefðum við ekki grunað Breta um gæzku?
Afstaða Sovétríkjanna til afvopnunarmála er
svipuð þessu. Þau þykjast vera friðsömust allra
ríkja og hrópa slagorð um afvopnun. Þegar komið
er að samningaborði, þykjast rússnesku fulltrúarn
ir-vilja afvopnun og eyðileggingu kjamorkuvopna
—en það má ekkert eftirlit vera með framkvæmd-
inni. Rússar mega ekki heyra alþjóðlegt eftirlit
með afvopnun nefnt, og þess vegna hafa allir samn
ingar strandað.
Nú hafa Bandaríkjamenn boðizt til að slaka veru
lega á kröfum sínum um eftirlit. Hefði þá mátt
ætla, að hinar löngu viðræður í Genf færu að bera
árgangur. En það er öðru nær. Rússar hafna hinum
nýju tillögum Bandaríkjanna sem öllum fyrri. Þeir
eru ekki til viðtals um þær.
Kjarnorkukapphlaupið heldur áfram — en það
er greinilega á ábyrgð Sovétríkjanna.
Nýju lyfin
' VÍSINDIN eru að gerbreyta lífi mannsins, og er
þáttur læknisfræðinnar, þar ekki síztur. Hins veg
ar felast alvarlegar hættur í hröðum framförum,
eins og komið hefur í ljós í sambandi við ýmis ný
lyf. Mistökin í sambandi svéfnlyf, sem gert hafa
böm hroðalega vansköpuð, eru einhver mesti harm
leikur í sögu læknavísindanna.
Mikillar varúðar er jafnan gætt, þegar ný lyf eru
tekin í notkun. Þau eru margreynd og víðtækar til
raunir gerðar, áður en þau eru sett á markað. Samt
geta slík mistök komið fyrir. Þjóðverjar hafa að
þessu sinni orðið fyrir verstu áfalli, og sum lönd
eins og Bandaríkin, geta þakkað varkárni embætt
ismanna sinna, að þau sleppa eins vel og raun ber
vitni.
Það er ánægjulegt, að lyfsölustjóri ríkisins, Krist
x inn Stefánsson, skuli geta upplýst, að hér á landi
«éu lyfsölureglur hinar ströngustu. í þessum efnum
verþur að gæta ýtrustu varkárni. íslendingar hafa
filhneygingu til að nota mikið af lyfjum, og sjúkra
samlagskerfi, sem gerir öllum landsmönnum kleift
að kaupa þau lyf, sem þörf er fyrir. Þess vegna hvíl
ir mikil ábyrgð á viðkomapdi embættismönnum og
læknunum. og þökkum við fyrir, að hér skyldu
ekki gerast neinar þær hörmungar, sem aðrir hafa
orðíð fyrir.
i 1
Nokkrar lítið gallaðar sænskar
stæður (brotið upp úr emalleringu)
daga með miklum afslætti.
sam-
næstu
Helgi Magnússon & co.
HANNES
Á HORNINU
★ Af sér gengnir skrjóðar
í umferðinni.
★ Bannaðir alls staðar
nema hér.
★ Bifreiðaeftirlit á götum
úti.
★ Hættulegt götuhorn.
Kr. Kr. SKRIFAR MÉR: „tg
hef dvalið í rúmlega eitt ár erlend-
is og starfaði þar Eitt ár er svo sem
ekki langur tími og varla hægt að
búast við miklum breytingum yfir-
leitt á svo stuttum tíma. Á leið-
inni heim, með skipi, fór ég að
hugsa um það, 'hvað það mundi nú j
vera, sem ég ræki fyrst og fremst i
augun í við heimkomuna. Það varj
svo sem margt, ekki sízt allar
byggingarnar.
an er farið með bílinn í kirkju-
garðinn.
BIFREIÐAREFTIRLIT þar fer
þar fram á götum úti. Sérstakar
deildir lögreglunnar stöðva farar
tækin, athuga þau, prófa þau —
og dæma síðan úr leik ef eitthvað
er athugavert. Bíll er hættulegur
í umferð af fleiri ástæðum en þó
að stýrisendar séu orðnir viðsjár
verðir, hemlar ekki í lagi og ljósa-
útbúnaður ekki eins og hann á að
vera. Hann er hættulegur «f „bodd
íið“ er brotið, ef krómlisti er brot
inn — og þar fram eftir götunum
Ég held að taka ætti úr umferð
mikinn fjölda bifreiða, sem nú er
skrölt á um göturnar. Það mundi
hvergi vera liðið nema hér, að
gamall bílskrjóður vélvana og af
sér genginn geti haldið umferð
niðri á löngum köflum eins og hér
á sér stað.“
J. G. SKRIFAR: „Kristín mín,
góður er Guð, og víst er um það,
en þó hefur Geir reynst mér bet-
ur,“ sagði gamli maðurinn forðum.
Það mætti víst segja það sama um
borgarstjóránn okkar. En mikið
hugsar hann illa um Lækjargötuna
gimsteininn í kórónu sköpunar-
verksins, okkar ágætu.höfuðborgar
Það er orðinn hreinn sálarháski
að fara yfir Skólabrú. Þar er
stanzlaus straumur af bílum aust
ur og vestur, enginn réttur eða
afdrep fyrir gangandi fólk. Og það
versnaði, er syðra hornið var
,,rúnnað“. Þar fara nú bílarnir á
tveim hjólum, en áður á fjórum.
AÐEINS TVEIR BÍLAR hafa
stanzað og gefið mér umferðarrétt.
Annar var íorkunnarfagur lúxus-
bíll frá varnarliðinu, hinn var bara
slarkbíll, þó ekki rússneskur. Ég
held að bílstjórinn hljóti að hafa
verið Húnvetningur. Þeir eru
þekktir að manngæðum. En margir
eiga nú leið um Lækjargötuna. Þar
er Iðnaðarbankinn, framtíðar at-
vinnu öryggi uppvaxandi æsku-
fólks. Já. Mörg hornsílin hafa líka
komið niður bröttubrekku, farið
yfir Skólabrú, og þótzt verðmætir
stórfiskar."
EN ÞÓ AÐ undarlega megi virð
ast, þá var það ekki þetta, sem ég
tók fyrst eftir, heldur hvað mikið
er af ónýtum bílum í umferð hér.
Ég hef hvergi séð eins mikið af
illa komnum farartækjum í um-
ferð hér. Bezt þekki ég þetta í
Svíþjóð. Ég fullyrði að lögreglan
þar mundi taka fyrirvaralaust úr
umferð mikinn fjölda bílskrjóða,
sem hér eru í akstri. Það er bann-
að að aka bílum, sem fallið hafa
göt á, ef hurðirnar eru skakkar,
erfitt að loka þeim, eða stuðarar
eru ekki í lagi, svo að ég rétt
nefni nokkur atriði, þá eru bif-
reiðarnar stöðvaðar á götum úti,
lögreglan kallar á aðstoð, og síð
Smurt brauð,
kaffi- og coktail snittur.
Smurbrauðsstofan
. Björninn
Njálsgötu 49. — Sími 15105.
Minningarorð:
Þórður Jónsson
Mófelisstöðum
Þórður Jónsson, blindi á Mó-
felistöðum í Skorradal lézt að
lieimili sínu þann 6. þ.m. í hárri
elli og fer jarðarför hans fram
í dag frá Hvanneyrarkirkju.
Þórður var fæddur 29. júní
1874 að Mófellsstöðum og þar
dvaldi hann all.a sína æfi. Þórður
var landskunnur þjóðhagasmiður
og naut mikillar virðingar meðal
þeirra, sem af honum höfðu kynni
en þeir voru fjölmargir um dag-
ana. Var oft og tíðum gestkvæmt
á Mófellsstöðum, því marga fýsti
að sjá og heyra þennan blinda
hagleiksmann, sem var hrókur
alls fagnaðar, söngvinn og ræðinn,
og prýðilega greindur og fróður
um marga hluti. Þórður heitinn
missti sjónina, er hann var nokk-
urra vikna gainall, en þrátt fyrir
þann mikla missi var hann á-
vallt hress og kátur og æðraðist
aldrei Á unga aldri var Þórður
hinn mesti fjörkálfur og tók ó-
spart þátt í leikjum jafnaldra
sinna og svo góður reiðmaður
var þessi blindi æringi, að eng-
inn ótemja setti hann ofan. f
samreið vildi Þórður helzt sitja
galsafenginn og sprettharðan reið-
skjóta og það var unun hans að
ríða í fararbroddi á mannamót,
Þetta er ótrúlegt en satt.
Nú er þessi ágæti maður fall-
inn frá og víst er um það, að
margir munu sakna hans, en minn-
ingin um góðan og mætan mann
geymist ávallt.
E. M. G.
2 ii. ágúst 1962 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ