Alþýðublaðið - 14.08.1962, Blaðsíða 11

Alþýðublaðið - 14.08.1962, Blaðsíða 11
(rland vann 4:2 - en íslendingar léku vel UM 40 þúsundir áhorfenda komu ið í vesturvegi, að íslenzka áhuga- saman á Dalymountleikvanginum í1 Dyílinni, höfuöborg Írlands sl. sunnudag, til þess að vera vitni að landsleik íslands og írlands í knatt spyrnu, sem jafnframt þvi að vera landsleikur, var einn þátturinn í keppninni um Evrópu-bikarinn. írska knattspyrnusambandinu þótti svo mikils við þurfa í keppni þessari, að kallaðir voru til, þeir atvinnumenn af írsku bergi brotn- ir, er leika sem málaliðar, með enskum atvinnufélögum. Almenn mun sú skoðun hafa ver a ■■ ffl8 J Cl 1T11 mannaliðið myndi „vegið og létt- vægt fundið“ í þessum samskipt- um við þrautreynda írska atvinnu menn. Ólu irsk blöð mjög á þeirri skoðun, að þarna yrði sannarlega um auðveldan írskan sigur að ræða Gerðu þau meira að segja þá kröfu til „sinna manna" að þeir skildu svo að skiptum við mótherjanna, að, knötturinn lægi að minnsta kosti 7-8 sinnum í neti þeirra. Slíkt ætti ekki að vera hinum vösku og þrautþjálfuðu írsku at- vinnumönnum nein ofraun. Miðað við það m.a., að hér væri við að eiga tiltölulega „veikt“ áhuga- mannalið iámennrar þjóðar. Væri því gullið tækifæri til að „skófla" saman mörkum með tilliti til „Evr- ópubikarskeppninnar." TVÍVEGIS áður hafa Islending ar att kappi við íra í landsleik, þá ÍSLANDSMOTINU í hand- knattleik kvenna utanhúss lauk í Kópavogi í fyrrakvöld. FH og Breiðablik léku og nægði FH jaf'ntefli til að sigra á mótinu. Úrslit komu mjög á óvænt, því við áhugamenn og beðið ósigur í að hiff unga liff Breiffabliks sigr-|bæði skiptin, en með litlum mun. aði verðskuldað með 5:4. Eru því En hér var um langsterkasta lið Ármann og FH jöfn að stigumlíra að ræða, enda allt atvinnu- og verða að leika aukaleik um menn, sem leikið hefir við íslend íslandsmeistaratitilinn. Sá leikur inga og því vitað fyrirfram, að við fer fram 21. ágúst. jramman reip var að draga. Allir í öðrum flokki sigraði Breiða- þeir, sem létu í ljós skoðanir sín blik Ármann í úrslitaleiknum ar um úrslit leiksins, töidu írskan meff 4:3 eftir geysispennandi leik sigur ótvíræðan, sumir allt að því og tvíframlengdan. | með „stjarnfræðilegum tölum“ var Loks átti KR að leika við ÍBÍ engu líkara en „spámennirnir" litu á ísafirði en mætti ekki til leiks svo á að íslenzku leikmennirnir og ísafjarffarstúlkurnar hlutu því stæðu „stjarfir“ um leið og hinar bæffi stigin. 'írsku atvinnumannahetjur birtust. „Bezti landsleikur íslands til þessa” ÞEGAR að leik loknum átti Alþýðublaðið símtal við Sigurð Sigurðsson íþrótta fréttamann Ríkisútvarpsins en hann útvarpaði lýsingu af öllum leiknum, sem tókst með ágætum og gaf greinar góða heildarmynd af því sem fram íór. En þúsundum sam an sátu útvarpshlustendur *im allt land við tæki sín og hlustuðu á hina litríku frá sögn Sigurðar, sem í annan tíma hefir okki íekist betur og er þá mikið sagt. Sigurður sagði Alþýðublað inu, að þetta væri einn sá bezt leikni landsleikur, sem hann hefði séð hjá íslending um og hefði hann þó séð marga um dagana. Allir leik mennirnir hefðu sýnt mikinn dugnað og verið ákveðnir. En það sem þó hefði ein- kennt liðið öðru fremur hefði verið hið mikla og ágæta út- hald, sem það hefði sýnt all an leikinn. Hér hefði vissu lega verið við erfiðan að etja en enginn hefði sýnt minnsta vott minnimáttarkenndar eða feimnir, en allir barizt af hörku til leiksloka. Þetta var einn af hinum stóru leikjum Helga Danielssonar í mark inu, sagði Sigurður, og hann bætti við: Helgi hefur oft sýnt það og sannað að hann er okkar bezti markvörður þegar mikið er í húfi, og svo var hér. Hann hefir sjaldan átt betri leik en nú. Hann varði oft stórkostlega. Að undanskildu fjórða markinu sem voru einu mistök.Helga í leiknum, en hann hafði enga möguleika á að verjast hinum þrem. Ríkharður kom líka sannarlega á óvart og minnti mjög á „gamla daga“ þegár fátt stóðst fyrir hon um. Mörkin hans bæði voru glæsilega skoruð. Sömuleiðis var Hörður mjög góður, en hann var íil varnar bezta manni íranna, Campell mið- herja, og gaf honum lítt eftir Annars voru þeir allir góðir sagði Sigurður að lokum. ALLT fór þetta þó á annan veg og búast mátti við eftir „efnum og á- stæðum“. íslenzka liðið stóðst þessa eldraun með mikilli prýði, þó sigurinn félli því ekki í skaut. Bar áttuvilji þess var ótvíræður allan leikinn og þol þess sömuleiðis. Hver einstakur leikmaður lagði sig allan fram og dró hvergi af sér, þær 90 minútur sem leikurinn var aði. Með tilliti til hinna sterku mót herja var svo ákveðið fyrirfram, að efla vörnina sem bezt og standa sem þéttast fyrir sókn hinna harð skeyttu framherja andstæðinganna sem var dyggilega fylgt eftir af framvörðunum.og stundum jafnvel bakvörðunum, en gera svo leiftur- árás og sækja fast á, er meginlið þeirra var komið í sókn og íreista að brjótast fram með skyndingi, að marki þeirra og skora. Þessi aðferð gafst vel. Og leiknum, þar sem svo illa hafði verið spáð fyrir Jandsliði voru og írsku blöðin höfðu talið svo öruggan og mark vísan fyrir sig, lauk með næsta naumum írskum sigri. Eftir fyrri hálfleikin var staðan 2:1 írum í vil. Fyrsti þriðjungur leiksins leið áð ur en fyrsta markið kom, en það gerði v. útherji íranna, með góð um skalla úr sendingu miðherjans. Rúmum 16 mínútum síðar jafnaði svo Ríkharður Jónsson, með hörku skoti af stuttu færi, úr sendingu frá Þórólfi. En er aðeins voru tvær mínútur eftir til leikhlés, tókst írunum að ná aftur frumkvæðinu í leiknum, með marki, sem v. inn herjinn gerði. í þessum hálfleik fengu írar víta spyrnu, sem bar að með þeim hætti að hornspyrna var tekin og skotið úr henni að markinu. Helgi kom ekki vörnum við, en einn varnar- leikmannann avarði með hendi. Sá sem framkvæmdi vítaspyrnuna hugðist senda knöttinn inn, rétt við stöng, en var það nákvæmur að hann hitti stöngina. Knötturinn hrökk til baka og var skotið aftur og þá inn, en sá sem það gerði var í því auknabliki, sem hann fram- kvæmdi spyrnuna á ný, rangstæð- ur og markið dæmt af. Þórffur Jónsson átti margp góSa möguleika og hér bjargar Kelly naumlega. Þórffur meiddist illa í hné í leiknum. Hann lá á spítala á fyrrinótt og gekk undir uppskurff. Þórður kom þó heim í gærkvöldi. I þessum hálfleik komu níu horn spyrnur til, sem skiptust þann'ig á milli liðanna, á ísland fimm en fjórar á írland. Gefur þetta nokkra vísbendingu um sóknaraðgerðir lið anna. Er 23 mínútu voru liðnar af síð ari hálfleik bættu írar þriðja mark inu við, en það gerði miðherji þeirra og einn þerra snjallasti leikmaður, Campell, og hann bætti einnig því fjórða og siðasta við, 10 mínútum síðar. En íslenzka lands liðið hafði enn ekki sagt sitt sið asta orð. Er fáeinar mínútur lifðu til leikVA fékk það aukaspyrnu skammt fyrir utan vítateig íranna, knötturinn var sendur til Ríkharðs sem brunaði fram með hann og Framhald síðu. Z s ÍSLENZKA liðiff kom 1 | heim meff flugvél Flugfél-1 | agsins í gær. Allir voru hinir 1 ánægffustu meff úrslit lands- i leiksins sem vonlegt er, en -5 margir leikmenn voru haltir = eftir spörk og hörkuleik •= ícsku atvinnumannanna. = Þórffur er mest meiddur, en = Bjarni Fel., Garffar og Hörff- | ur Fel. eru einnig meiddir. 2 — írsku blöðin hrósa ís- = Ienzka liðinu og Helga Dan- | íelssyni alveg sérstaklega. i í einu blaðinu segir, aff § írskir knattspyrnumenn líti i nú leikinn í R.vík 2. sept- i ember alvarlegri augum en i áður. • ■= Helgi Daníelsson reynir aff verja vítaspyrnuna í iciknum á sunnudaginn, en hann reiknar skakkt. : Þaff kom þó ekki að sök, því aff boltinn lenti í þverslá og út. Fcgarty skoraði, en markiff var dæmt af i ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 14. ágúst 1962 H

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.