Alþýðublaðið - 28.09.1962, Page 15

Alþýðublaðið - 28.09.1962, Page 15
4 _ i Baum hans, allt væri þetta ónjtt; jafn- vel Hörselmann hlyti að sjá, að hann yrði aldrei læknir. Það væri bezt að hlaupa frá því öllu sam- an. ,,Ekki að hlaupa frá því Rain- er“, sagði Helena með sinni djúpu, róandi rödd. „Breytið þér bara til, ef allt fer út um þúfur. Eruð þér nauðbeygður til að verða læknir? Byrjið bara á öðru; þér eruð ungur“. ,,Já, en mér er þröngvað til þess”, sagði Rainer og leit á hana sjúklegu, biðjandi augnaráði. Hei ena skildi ekki enn þetta augna- ráð, og í þessu kom Meier — haain „bara Meier” — hávær, stór hraustlegur, fyrirferðamik- iil, vekjandi traust hvarvetna. Matsalurinn var troðfullur, og við öU borðin var kjamsað, kitt .og rökrætt. Marx var þegar kom- inn og hafði tekið frá sæti handa þeitn. Sjálfur var hann ekki neyddur til að borða hér, en gerði það af félagslyndi. Gudula Rapp, sem borðaði hér daglega, ,var ókomin. Gudula Rapp sat heima á kvistinum í örvæntingarkasti. Hér sat hún með doktorsritgerð íiina, búin að vinna að henni á annað ár en nú hlóðust erfiðleik- arnir skyndilega upp, svo að allt hljóp í baklás fyrir henni. Hún var bláfátæk, lagði stund á forn- minjafræði og var álitin bráð- gáfuð; en nú var hún staðráðin í að gefa þetta allt upp á bátinn, láta námið, erfiðið og allan efni- viðinn í ritgerðina, sem hún hafði dregið saman með súrum sveita, lönd og leið og byrja á einhverju öðru starfi. Hún hafði valið sér það efni, er hugur hennar girnt- ist mest. Hollenzkar fyrirmyndir í Búdda-list Austur-Asíu og hélt, að hún gæti auðveldlega lokið því á skömmum tíma. En síðan hún byrjaði, óx efnið ósjálfrátt í höndum hennar, breiddist út til allra hliða og varð með öllu óvið- ráðanlegt. Hún hafði gert meira en nauðsynlegt var í ákafa sín- um til að tileinka sér hugmynda- heim Asíu, miklu meira. Hún liafði lært indversku og kin- versku. Það var nú ágætt. Svo hafði hún bætt við japönsku. — Hún hafði jafnvel ekki skirrst við að læra málískurnar í Síam og Kóreu, og hún hafði hangið á doktor Fui-Hong, sem las við háskólann. Asía var ósigrandi og í Evrópu var mjög lítið um efni- við, þó fundust hingað og þang- að nokkrar höggmyndir eftir Gandhara, og þær voru mikils virði. í Liden voru enn tveir af þessum þýðingarmiklu gripuni frá hinu grísk-indverska tíma- bili um 200 arum fyrir Krists- burð, og nú hafði hún fengið þá flugu í höfuðið, að það væri ákaf- liega þýðingarmikið að sjá, hand- leika og rannsaka þessa hluti. En hver hafði ráð á því að ferð- ast til Leiden? Hún hafði enga peninga, engan tíma og engan þrótt til þess. Hún fleygði sér á rúmið með háværum grátstun- um og beit sig í neglurnar. Yfir rúminu brosti Kwannon — fesi- ur með teiknibólum á vegginn — sínu óræðu brosi. Gudula Rapp var cinnig leitandi, þráði hugar- ró og fullkomnun — en það var langt í land þangað. Hún tók af hin stóru tárvotu gleraugu og þurrkaði grátbólgin augun. Smátt og smátt færðist ró yfir hana, hún reikaði lítilsháttar, kveikti sér í vindlingi og huggaði sig við nýja loftkastala. Hún ferðaðist í huganum til Leiden, fann það, sem hana vantaði og meira til, fann tengiliðinn milli Grikklands og Kína, Evrópu og Asíu. Skýin mynduðu óvæntar stærðir, Budd- ha og Kristur birtust i sameigin- legum menningarhimni, og þeg- ar slokknaði í vindlingnum cg augu hennar lokuðust, var hún. orðin fararstjóri leiðangurs, sem gróf upp gamla borg í eyðimörk- inni. Hún var steinsofnuð. Lítil stúlka, kvalin af ofþreytu með leitandi sól, er krafizt hafði of mikils af sjálfri sér. Klukkan 5. Á þeim tíma er til- raunastofan fullskipuð á hverjum stað. Unnið er í 60 mismunandi stöðum. Loftið er grátt eins og köngullóarvefur, og ekki hægt að lýsa því. Loftræstikerfið hafði ekki við að fjarlægja gufur og ó- þef. Það logar á öllum eldfærum, og á hinum háu þrífótum kraum- ar í ótal skólum með margs kon- ar vökvum og upplausnum. Við hliðina á hverjum stúdent ligg-' ur kennslubók Gothermanns op- in. Hin fjölvísa bók Gottermanns, sem menn fremja tilraunir sín- ar eftir, hún er eins og útslitinn, farlama uppgjafahermaður. svo lúð er hún af lestri og notkun. Gólfið, sem gert hafði verið hreint í morgun, flóir nú allt í fitumyndum vökvum, sandi og glerbrotum. Við þriðja borðið er farið að rífast. Strehl breiðir úr sér yfir allt borðið og leggur undir sig vatnsleiðsluna, glösin, plássið og skyggir auk þess á félaga sína. Svitinn bogar af honum og hann þrumar annað slagið um óbeit sína á kvenstúdentum. Helena Willfuer reynir hins vegar að láta sem hún heyri ekki til hans og hún stendur álút yfir tilrauna- flösku sinni, til að vita hvort allt gangi ekki eins og vera ber. Há- marki nær sennan, þegar hinn þrasgefni kandidat hinum megin við borðið fer að brugga acctil- clorid. í sama bili gengur Meier aðstoðarmaður fram hjá og segir: „Nei, heyrið þér nú, félagi. — Þegar þér framleiðið ch2cocl verð ið þér að gera svo vel og fara inn í stækjuklefann.“ Kandidatinn slekkur á lamp- anum og dregur sig til baka, þeg- ar hann hefur hreyti úr sér skætingi. Eyru Meiers verða eld- rauff og Helena hóstar og þurrk- ar sér um augun og segir hlæj- audi og fegin: „Nei, Meier, þetta er í lagi, nú skulum við láta okkur líða vel og fá okkur te.“ „Já, þetta gengur svo sem á- gætlega,” muldrar hann eftir að hafa litið á tilraunaglas hennar og sækir sér stól. Og svo er teið búið til, sem þó er bannað — og það bragðast ágætlega, þótt það sé drukkið úr glösum, sem bera óafmáanleg merki um, að þau hafi verið notuð undir fluoreszin. Helena hefur sérstakan hæfileika til að koma sér þægilega fyrir í hinu eitraða, óhreina lofti til- raunastofunnar. Hún situr á stól- kollinum bak við ógagnsæan gler hjálm og nýtur þar tesins í fyllsta máta, hlýjunnar og hvíldarinnar, eftir að hafa staðið upp á endann síðan um hádegi; fæturnir eru koldofnir, og hún hefur stingi í hnjánum af ofþreytu, hana svíð- ur í hálsinn, það er þoka fyrir augunum og hún hefur þrautir í kviðarholinu. Allt vottar þetta, að hún hafi gert skyldu sína og megi hafa góða samvizku. Því þannig er Helena Willfiier gerð; jafnvel öll þessi líkamlegu óþægindi vekja henni á vissan hátt gleði. „Ó. Meier, ég er svo dásam- lega þreytt! Nú hætti ég í dag“. „Þér eruð hamingjusöm. Ég á töluvert eftir ennþá, en viljið þér gera svo vel að afhenda pró- fessornum þessar töflur um leið og þér farið fram hjá?“ ,,Með ánægju'*. — Það er ekk- ert, sem hún vill frekar. Það er regluleg hátíð fyrir hana. Hún þvær sér um hendurnar án veru- legs árangurs, bleytir hárið og strýkur það aftur, fer úr kyrtlin- um í kápuna og gengur síðan með „Gottermann", hattinn og sóttkveikjulitartöflumar í hend- inni yfir í einkatilraunastofuna. Ambrosíus var í essinu sínu, eins og hann komst að orði. — Hann gerði þrennt í einu. Meðan hann las fyrir leit hann eftir flösku, sem framleiða átti stór sambönd, og samdi í huganum ýmis konar efnafræðireglur. Hálsinn var ber. og hann skálm- aði fram og aftur um tilrauna- stofuna, en grútskítug kyrtil- skautin kembdi aftur af honum. Aftar í stofunni sneri fyrsti að- stoðarmaður tilraunaglösum á skilvindunni. Lampinn kastaði kuldalegu Ijósi yfir umhverfið. Helena sá það allt í einni sjón- hending, um leið og hún lagði frá sér töflurnar. Það mótaði sig sterkt í hugskot hennar sem ímynd sköpunarmáttarin's. Pró- fessorinn sá hana ekki fremur en hún væri engin til. í skrauthýsi Ambrosíusar liafa menn gefist upp við að bíða eft- ir honum með teið. Frúin hefur leikið á fiðlu, prófað ýmiskonar ilmvötn, lagt kapal og gengur nú um stofurnar með vaxandi ólgu í blóðinu. Svo símar hún til nokkurra kunningja, fer í nýj.an kjól og ekur til hallarhótelsins, þar sem dansað er í dag. Þaff var hætt að rigna og myrkrið var að detta á. þegar Helena WiHfiier kora út á göt- una, Frá fjöllunum barst vindur- inn kgldur og hressandi inn yfir borgina, og hún andaði honum að sér opnum munni, meðan hún skálmaði eftir götunni, mannleg vera frjáls og óbuguð. Hún hafði slétt brúnt hár, augun voru brún, róleg og vöktu traust, sterk legt nef og fallegan munn, sem var mótaður af festu og dóm- greind og því ekki heillandi. Axl- irnar voru ofurlítið signar végna þreytu, en höfuðburðurinn var hár, og hakan vissi beint fram. Húsið, sem hún bjó í var eld- gamalt, og með sínum kengbognu bitum hallaðist það upp að hall- arbrekkunni. Niðri bjó ekkja Eb- erhard Grosmiickers, það sýndi auglýsingasp.ialdið, og það hafði hún brúðugerð sína. Bak við gluggarúðurnar leit hún næsta kvnlega út, þar sem hún sat í ljós glætunni og kepptist við að troða sagi í brúðuhulstur. Þröngur hringstigi lá upp í myrkrið. Gu- dula Rapp hélt því fram að Ku- bin hefði smíðað húsið, að minnsta kosti væri það eins og skapað handa ræningjum og draugum. í íbúð þeirra voru að- eins nauðsynlegustu húsgögn, bæði loft og gólf voru sigin, svo að járnrúmin þeirra leituðu und- an hallanum til óþæginda fyrir þær. Hið eina sem gæddi her- bergið ofurlitlu lífi, lit og hlýju, var ofnskermurinn, en hann hafði Freidel Mannsfeldt málað. Það var næstum orðið aldimmt og enn sat Gudula Rapp niður- sokkinn í hraðritunarhandrit sín. Vinnuborðið með öllu bóka- draslinu stóð við gluggann, og var þaðan dásamlegt útsýni yfir þökin, turnana, ána, brúna, j’fir fjöllin hinum megin langt í vest- ur, út í silfurgráa fiarlægðina. þar sem agnarsmá Ijós gægðust fram. „Góðan daginn, Gullvör". Hel- ena fór á bak við skerminn, þar sem sprittlampinn og olíulampinn voru faldir. „Hvað eigum við aff borða? Hafragraut? Hættu þessu, þú eyðileggur alveg þá litlu sjón sem þú hefur". „Kranich er kominn á hælið”, ansaði Gullvör aðeins. „Kranich? Það getur þó ekki verið. Ég talaði við hann seinni- partinn í gær. Hann lánaði mér síðari hlutann af Spengler". „Hann liggur á handlækninga- deildinni, og það er búið að skera hann upp. Rainer sagði mér það“. „Hvar er Rainer?" spurði Hel- ena. um leið og hún kom fram undan skerminum með lampann, sem hún hafði tendrað og gekk að vinnuborðinu. „Hættu nú Gull- vör”, sagði hún blíðlega, og lagði liöndina sem snöggvast á hnakka stallsystur sinnar. Gullvör andvarpaði eins og £ svefni, en svo hélt hún áfram að skrifa. „Hyað er að Kranich?" „Hættu nú þessu!" sagði Gull- vör óþolinmóð. „Ég verð að halda áfram". „Ja, hérna Gullvör! — Hef- urðu ekki unnið vel? Þú komst ekki í matsöluna?" „Nei“, svaraði Gudula með semingi, og svo lagði hún verk- efníð frá sér. „Veiztu hvað, Willa; ég get stundum ekki þol- að Marx og Fridel hans. Það er of mikið litaskraut — ímyndun arafl". „Mér fellur vrel, að fólk sé ást- fangið". * „Hvernig er þ&ð með sjálfa þig? Þú getur gert fleira en að búa til hafragraut, þú hefur ýmsa aðra kvenlega eiginleika, er ekki svo? Það kornu drættir um munn Gullvarar. „Ég! Hvernig þú lætur, Gulla!“

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.