Alþýðublaðið - 02.11.1962, Page 9
TARNIR
ALLA SÖK
og nálaraugað, manninn sem átti
að gefa helming eigna sinna til
þess að verða sáluhólpinn og fl.
orðum Krists.
Er þetta ekki tvískinnungur?
Er það kannski til þess að efla
sambandið milli kenniföðurs og á
heyrenda?
Nei, ástaeða fyrir slæmri kirkju
sókn er það að prestarnir dansa
of mikið í kringum gullkálfinn.
Treysta ekki á orð Krists. Trúa
•ekki að vor himneski faðir sé
okkur jafn kærleiksríkur og fugl
um loftsins, sem ekkert haía fyr
ir sínu brauði utan að þiggja gjaf
ir hans.
Er þessi fyrirmynd sem for
ingja heppileg til þess að leiða
aðra með sér?
Hvað segir söfnuðurinn? Hann
segir: „Þetta gerir presturinn,
hann er mín fyrirmynd." Já,
þessi er ástæðan fyrir því að ég
sæki ekki kirkjur.
Ég sé það að það er meiningar
laust blaður og orðin án verka
þeirra fá ekki fullgert það hlut-
verk sem þeir eru sendir íil að
vinna.
Innan kirkju Krists þurfa að
vera heilindi. Þar er ekki hægt
að þjóna tveim herrum
Þegar okkur er sýnt jafn létt
úðarfullt trúartraust virðist mér
það bezta meðalið til að afkristna
þá fáu, sem hugsa og hafa haldið
sinni trú. Á oss öllum hvílir á-
byrgð. En í þessu sambandi eru
laun ábyrgðarinnar eilíft líf með
Kristi samborið hans eigin orð-
um. Hver á að trúa orðum Krists
þegar sjálfur presturinn forsmáir
þau og breytir ekki eftir þeim.
Ég vildi óska að vor íslenzka
kirkja mætti sjá í dag á hversu
óheilum fótum hún stendur.
Mætti sleppa höndinni af guil-
kálfinum og trúa orðum ritning
arinnar. Latur kirkjugestur.
fögur ífcrótt!
| fylgjandi mynd, sem hann tók á
j æfingu hjá ÍR. Við vitum ekki hve
l stúlkan Iyftir mörgum kílóum. En I
viff vitum, aff hún heitir Ingibjörg
Eyfelds, aff hún er fædd 10. 7.
1948, aff hún er nemandi í Voga-
skóla og aff helzta áhugamál henn-
ar er frjálsar íþróttir.
Yfir 5000
slátrað á
Akranesi
SLÁTRUN er fyrir nokkru lok-
iff hjá Kaupfélagi Suffur-Borg-
firffinga, Akranesi, slátraff var á
6. þúsund fjár og yfir 80 stór-
gripum, er þaff lun þriðjungi meira
en sl. ár. Vænstu dilkarnir sem
slátraff var þar í haust, voru tví-
lembingar, eign Guffmundar Bjarna
sonar á Sýruparti. Höfffu þeir
28,9 og 27,4 kg. kroppþunga. Mun
slík þyngd vera mjög óvenjuleg.
Á liðnu sumri kcypti Kaupfé-
lagiff stóra lóff á bezta staff í bæn-
um, svonefnda Hákotslóff, og mun
ætlunin vera, aff þar rísi aðalstöðv
ar fyrirtækisins í framtíðinni.
Hlúð að
Gamla Garði
AÐ frumkvæffi nokkurra gam-
alla Garffhúa og nokkurra annarra
vina gamla stúdentagarffsins hef-
ur nú veriff efnt til samtaka „er
hafi þann tilgang, aff bæta um
búnaff Gamla Garffs hiff innra og
fegra umhverfi hans.“
1 undirbúningsnefnd þessa máls
eiga sæti: Gunnlaugur Pétursson
borgarritari, Jóhann Hafstein
bankastjóri, Lúðvig Guðmundsson
fyrrum skólastjóri, Ragnar Jó-
hannesson cand. mag., Sverrir Her-
mannSson viðskiptafræðingur og
Þorvaldur Þórarinsson hæstarétt-
arlögmaður.
Um þessar mundir eru liðin rétt
40 ár síðan stúdentaráð háskól-
ans hóf fjársöfnun og undirbún-
ing að byggingu stúdentagarðs-
ins. Formaður garðnefndarinnar
fyrstu árin var Lúðvíg Guðmunds-
son.
Aukin höf-
undavernd
NÝLEGA hafa báffar deildir
Bandaríkjaþings einróma sam-
þykkt, aff framlengja til bráffa-
birgffa til ársloka 1965 vernd allra
þeirra hugverka, sem ella mundu
missa höfundarréttarvernd sam-
kvæmt bandarískimi lögum.
Kennedy, forseti Bandaríkj-
anna, hefur lagt sérstaka áherzlu
á endurbætur höfundalaga og skip
að nefnd sérfræffinga til að undir-
búa nýtt frumvarp aff höfundalög-
um, er menn vona, aff gengið
verði í gildi fyrir árslok 1965.
Vi5 drögum um Taunus-bíl
á miðvikudaginn kemur!
Til fermingjar-
gjafa:
Greiðsiu-
í fjölbreyttu
úrvali.
Verð og gæði
við aílra
hæfi.
Marfeinn Einarsson & Co.
Fata- & gardínudeild Laugavegi 31 - Sími 12816
Nýkomið
Ifalskar peysur
grófprjónaðar.
Hattabúð Reykjavíkur
Laugavegi 10.
Rýmingarsala - Rýmingarsala
Seljum næstu daga mjög ódýrt:
Barnakjóla. Verff frá kr. 98,00.
Barnablússur. Verff frá kr. 50,00.
Barnapils kr. 98,00.
Barnapeysur og margt fleira.
Verziunin Ása
Skólavörðustíg 17. — Sími 15188.
Kópavogur - Vinna
Nokkrar stúlkur og einn karlmaður óskast í vinnu strax.
Niðursuðuverksmiðjan ORA
Símar: 17996 og 22633.
ITALSKIR
KVENSKÓR
LÁRUS G. LÚDVÍGSSON, SKÓVERZLUN, BANKASTRÆTI 5
ALÞYÐUBLAÐIÐ - 2. nóv. 1962 0