Alþýðublaðið - 11.12.1962, Side 9
mnar um Palle Hardrup
jann Björn S. Nielsen
fannst mér lífið ekki þess virði
að lifa þvi. Þá hitti ég Björn N’
elsen. Mér geðjaðist ekki fyrst
að honum, en hann var skemmti-
legur við nánari kynningu, við-
ræðugóður, fróður og hafði trú á
lífinu. Við töluðum saman um
spíritisma og stjórnmál. Hann var
fullur fróðleiks um hvort tveggja.
Mér fannst fyrst lífið óbærilegt,
en eftir að ég kynntist honum,
fékk það einhvem tilgang. Hann
sagði mér smám saman, að með
mikilli æfingu gæti ég komizt í
beint samband við Guð. Hann
sagði að ég gæti náð meiri þroska
en aðrir menn, orðið þeim æðri
og fullkomnari. Og til þess ætl-
aði hann að hjálpa mér. Svo fór
hann að dáleiða mig.
Eg var mjög móttækilegur, og
féll í djúpan dásvefn. Þá var það,
að röddin talaði við mig í fyrsta
skipti. Hún sagði: Þú heldur, að
það sem fyrir þig hefur komið,
sé mikil ógæfa. En það er ekki.
Þetta er einungis til að herða þig
og reyna. Undirbúa þig þínu ætl-
unarhlutverki.”
Það ætlunarhlutverk var mik-
ið. Andinn byrjaði þegar að und-
irbúa hann. Fyrsta skrefið var að
láta hann hætta samneyti við
samfanga sína: „Þú skalt ekki
tala við þá. Þeir eru þér lægrí
Þú verður að fylgja þessum fyrir
mælum gaumgæfilega.”
Andinn X sagði, að ég yrði að
læra að losa mig við kvaðir þessa
heims. Eg hætti til dæmis að
borða dögum saman að ráði Niel-
sen, og fannst mér komast að
þeirri niðurstöðu, að slíkt væri
þeim manni óþarfi, sem væri á
leið upp stigann til fullkomnun-
arinnar.
Þetta sagði Palle Hardrup slitr-
ótt upp úr dásvefni sínum. Og
Björn Nielsen hélt áfram að ,æfa‘
Palle: Andinn X fór þar næst að
fullvissa hann um hans mikla
ætlunarverk. Honum væri ætlað
að stofna nýjan flokk í Danmörku
og sameina alla Skandinavíu og
breyta veröldinni.
Þar næst fór andinn X að
deyfa skilning hans á réttu eða
röngu. „Þú ert öðrum mönnum
æðri,“ sagði röddin við hann í dá-
svefninum. Þú ert ekki bundinn
siðvenjum þeirra”. „Ef þú þarft
á peningum að halda, til þess að
framfylgja ætlunarverki þínu, þá
skaltu ekki hika við að taka þá.
Þú verður, ,að hlýðnast út í yztu
æsar, því að þú ert að vinna
fyrir æðri anda. Þú verður að
losa þig við hinar mannlegu til-
finningar. Þær binda þig efninu.
Þú tekur skammbyssu og hleypir
af, vegna þess að X segir þér
það. Þú veizt að þú tilheyrir X,
og þú getur ekki brugðist honum.
Sem lokaskref í átt til full-
komnunarinnar, var andinn X
farinn að segja honum að myrða
Framh. á 15. síðu
peninga, sem hann fékk senda
í fangelsið. Vitnin báru það fyrir
réttinum, að Palle hefði tekið
stakkaskiptum eftir kynni sín við
Bjöm. Hann breyttist úr vin-
gjarnlegum samfanga í undarleg-
an mann, sem yrti ekki á menn
dögum saman.
Á hverri nóttu talaði Björn við
Palle lágri röddu, sagði einn fyrr
verandi fangi. Aðrir sögðu, að
Björn hefði gortað af því valdi,
sem hann hafði yfir Palle.
„Hann sagði, að hann gæti
fengið hann til að gera allt, —
jafnvel að drepa móður sína,”
sagði eitt vitnið.
Lögreglan athugaði feril Bjöms
,og komst að raun um, að hann
hafði gífurlegan áhuga á dá-
leiðslu, yoga, spíritisma — og
fleira þar að lútandi. Hann var
margfaldur „smá” glæpamaður,
sat inni fyrir rán, brask og
þjófnaði.
En Palle Hardrup harðneitaði
því að’ Björn hefði dáleitt hann,
eða ætti neina sök á morðunum.
Hann var ekki andinn X..
Þá fann lögreglan smugu, sem
blandaði Birni inn í málið. Þó að
þá sannaði iögreglan, að hann
hafði tekið reiðhjól Björns til að
komast á brott með ránsfeng-
9inn. Rétturinn ákvað að láta
Björn svara spumingum.
Hann kom fyrir réttinn, bros-
andi og íús til hjálpar. Hann
virtist vera allöruggur með sjálf-
an sig, næstum því montinn.
— Jú, hann sagðist þekkja
Palle Hardmp, vesalinginn. Hann
hugsaði ekki um annað en stjórn-
mál og „andatrú”. Hann sagðist
oft hafa hitt Palle síðan þeir
vom samvistum í fangelsinu, og
fundist hann fara heldur „versn-
andi.” Björn hristi höfuðið
Vesalings Palle virtist al-
veg vera farinn yfir um með
þönkum sínum um að breyta
heiminum með flokk sínum.
Björn sagðist hafa áhuga fyrir
dáleiðslu, en harðneitaði að
hafa nokkum tíma dáleitt Palíe.
„Sannleikurinn er sá, að það er
ekki hægt að dáleiða Palle,” sagði
hann, „ég reyndi það nokkmm
sinnum í fangelsinu, en hann
reyndist ekki móttækur."
Viðvíkjandi hjólinu, sefn Palle
hafði tekið, sagði Björn, að hann
hefði lánað honum það kvöldið
fyrir ránið, vegna þess, að Palle
hefði verið fótgangandi.
Síðan fór Björn, brosandi á
báðar hliðar, ef hann gæti gefið
einhverjar frekari upplýsingar.
ir afskiptin sín af þessu
einstæða morðmáli.
Dr. Reiter og samstarfsmenn
hans og réttarlögmenn urðu vitni
að því, þegar Palle sagði þeim
eftirfarandi frá djúpsvefni sínum:
Þegar ég kom í fangelsið fyrst,
Þá var kona Palle Hardmp köll-
uð fyrir réttinn, en hún gat engar
upplýsingar gefið, sem leiddu
rettinn nær hinu sanna.
Þá var það, að Paul Reiter, sál-
fræðingurinn, hóf að kynna sér
sálarástand Palle Hardrup. Eftir
miklar og erfiðar rannsóknir tókst
honum loks að dáleiða Palle og
fá hann til að segja allt frá sam-
skiptum þeirra Bjöms frá því að
þeir hittust fyrst og þangað til
Palle gekk inn í bankann í Norre-
bro og skaut tvo menn til bana:
Það kom í ljós, að Björn S, Niel-
sen hafði logið.
Þetta er dr. Paul Reiter,
sem hlaut heimsfrægð fyr-
til
Hafnfirðingar
jólagjafa
Handboltaspil — Fótboltaspil — Körfuboltaspil
Frjálsíþróttabúningar frá kr. 230.00.
F.H.-buxur — Fótboltasokkar og húfur.
Föndurbækur og efni — Listmunir.
FÖNDUR OG SPORT
Vitastíg 10. — Hafnarfirði — Sími 5 1375.
Rauði kross íslands
Með því að kaupa
Jölakort Rauða krossins
styðjið þér Alsírsöfnunina.
Kortin eru gerð eftir myndum frú Barböru Árnason.
Amerískir, hollenzkir og þýzkir
inniskor
fyrir kvenfólk, karlmenn
unglinga og börn
Stórglæsilegf úrval
SKÓVAL
Austurstræti 18.
Eymundssonar-kjallara.
SKÓBÚÐ AUSTURBÆJAR
Laugavegi 100.
BABNAKÚR BARNASKÓLA HAFNARFJARÐAR
(1G börn úr Friðrikskór)
Söngstj.: Jón Ásgeirsson
DK1598
GIÐ Vlfl JÓLATRÉ
Guó gaf mér eyra
Göngum við í kringum
N Ý HLJÓMPLATA (Ný lög).
Ómissandi fyrir litlu börnin yfir jólin.
F Á L K I N N H/F (hljómplÖtudeild).
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 11. des. 1962 É|