Alþýðublaðið - 11.12.1962, Síða 10
tftlr reynslu hér á landl
og erlendis hefur verið
bœtt Inn mörgum nýjum
atriðum sem stefna að
því að gera trygginguna
að fullkominni HEIMILIS-
TRYGGINGU. Leitið nónari
upplýsinga hjá aðaiskríf-
stofunni eða umboðs-
mönnum.
Ritstjóri: ÖRN EIÐSSON
Norðmenn sigruðu Frakka í hand-
knattleik á sunnudaginn með 17
mörkum gegn 12.
Á laugardag fór fram innanfé-
lagsmát í frjálsum íþróttum í ÍR-
húsinu við Túngötu. Jón Þ. Ólafs
son stökk 3,35 m. í langstökki án
atrennu, sem er nýtt íslenzkt met.
★ LAS VEGAS, 9. des. (NTB —
AFP). Emile Griffith varði heims-
meistaratitil sinn í veltivig á
sunnudaginn, er hann sigraði Ar-
gentínumanninn Jorge Fernandez
með teknisku rothöggi í 9. lotu. Bar
daginn átti að standa í 15 Iotur.
Fram og Armanrt ur
Reykjavíkurmeistarar
FRAM varð Reykjavíkurmeistari
I handknattleik karla 1962 og Ár-
mann í kvennaflokki. Úrslitaleik-
Irnir í meistaraflokkunum voru
háðir á sunnudagskvöld, Ármann
vann Val í kvennaflokki meff 5:3
og Fram Víking með 14:13, en
hafffi tryggt sér meistaratitilinn
áður en leikurinn hófst, þar sem
ÍR tapaði fyrir KR.
★ Ármann lék betur en Valur
I kvennaflokki.
BÆÐI liðin voru taugaóstyrk og
bar leikurinn þess greinileg merki.
Ármanns stúlkurnar voru þó fljót-
ari að átta sig og skoruðu þríveg-
is, áður en Valur komst á blað.
Valur átti þó góð tækifæri, en
glataði þeim á mjög klaufalegan
hátt Rétt fyrir hlé skorar Berg-
Ijót fyrir Val með hörkuskoti og
þannig endaði fyrri hálfleikur,
3:1.
Síðlari hálfleikjur var jafnari,
Ármannsstúlkumar léku varlega
og tefldu ekki í neina tvísýnu,
enda héldu þær yfirhöndinni all-
an leikinn, en honum lauk með 5
mörkum gegn 3. Ármann getur
mest þakkað markverði sínum sig
urinn, en stúlkan í markinu stóð
sig með afbrigðum vel. Annars er
lið Ármanns jafnt og skemmtilegt
og hvergi veikur punktur í því. í
liði Vals ber Sigríður Sigurðar-
dóttir af, en hennar var vel gætt
og hún naut sín ekki sem skildi.
Gunnlaugur Hjálmarsson dæmdi
leikinn og tókst það vel.
KARLAFLOKKUR:
★ Ármann—Valur 18:16 (10:9).
ÞESSI leikur var hinn fjörugasti
á köfium, Ármenningar byrja leik-
inn af miklu fjöri og komast í 6:1,
en þá taka Valsmenn við og tekst
næstum að jafna fyrir hlé, en þá
var staðan 10:9 fyrir Ármann.
Valsmenn byrja síðari hálfleik
af miklum krafti og skora tvö
fyrstu mörkin, 11:10 fyrir Val, en
síðan ekki söguna meir. Ármenn-
ingar auka stöðugt bilið og komast
í 17:12, en lokatölumar voru 18:16,
verðskuldaður sigur. Ekki verður
sagt að leikur þessi hafi boðið upp
á glæsilegan handknattleik, helzt
voru það Ármenningar, sem sýndu
Garðar S. Gísla-
GARÐAR S. Gíslason, kaup-
maður varð bráðkvaddur sl.
sunnudag að heimili sínu,
Faxatúni 42, Silfurtúni. Garð
ar var fyrr einn af frækn-
ustu íþróttamönnum íslend-
inga og átti m. a. íslandsmet
í 100 m. hlaupi, sem stóð ó-
haggað í áratugi. Um árabil
var Garðar formaður Frjáls-
íþróttasambands íslands.
Víkingur skorar fyrsta markið,
en Fram jafnar og kemst yfir 3:1.
Víkingar sækja sig og tekst að
jafna, 4:4. En þannig gekk það til
leikhlés, Fram skorar 5:4, Víking-
nr jafnar og kemst yfir, en rétt
fyrir hlé skorar Guðjón fyrir
Fram, 6:6 í hálfleik.
Síðari hálfleikur var geysi-
spennandi og oftast hafði Víking-
ur yfirhöndina. í>að sáust 9:7 og,
12:10 fyrir Víking, en á síðustu
miínútum tekst FJam að jafna
og komast yfir, það var Sigurður
Einarsson, sem skoraði sigurmark-
ið.
Eins og fyrr segir var Víkings-
liðið mjög bardagafúst í þessum
leik og sýndi góðan handknattleik.
Það verður að segja það eins og
er, að Víkingur hefði frekar átt sig
urinn skilið. Beztir í liðinu voru
Pétur, Sigurður og Rósmundur,
en Þórarinn sýndi einnig allgóð-
an leik. Hjá Fram voru það Ing-
ólfur og Guðjón, sem áttu beztan
Framh. á 14. síðu
Hilmar Olafsson fyrirliði, Fram tek
ur við bikarnum, sem Fram vann
nú í þriðja sinn í röð og til fullrar
eignar.
allgóða kafla annað veifið. Dómari
varð Axel Sigurðsson.
★ KR-ÍR 18:14 (10:6).
LEIKUR KR og ÍR var svipaður
að gæðum og leikur Vals og Ár-
manns næst á undan, liðin léku oft
af kæruleysi (eða var, um getu-
leysi að ræða?) ÍR-ingar byrja vel
og komast í 3:1, en síðan taka KR-
ingar við og skora hvert markið af
öðru og sum á næsta auðveldan
hátt. Fyrri hálfleik lauk með
KR, 10:6. Síðari hálfleikur var
jafnari, en ÍR tókst aldrei að
ógna sigri KR. Munurinn hélzt ó-
breyttur, KR vann með 18:14. —
Dómari var Hannes Þ. Sigurðsson.
★ Fram—Víkingur 14:13 (6:6).
FRAM var orðinn sigurvegari í
mótinu, áður en leikurinn við Vík-
ing hófst, en það var jafnframt
síðasti leikur mótsins. Þetta var
fjörug viðureign, Víkingur sýndi
sinn bezta leik í mótinu og ógnaði
meisturunum.
Ensk knattspyrna
Úrslit um helgina:
1. deild.
Arsenal 2 — Blackpool 0
Birmingham 3 — Blackbum 3
Bolton 1 — Tottenham 0
Burnley 3 — Ipswich 1
Everton 1 — West Ham 1
Fulham 0 — Wolves 5
Leicester 3 — Aston Villa 3
Leyton 2 — Sheff. Utd. 2
Manch. Utd. 5 — Nott. F. 1
Sheff. Wed. 0 — Liverpool 2
W. Brommwich 2 — Manc.h. City 1
2. deild.
iCardiff O — Leeds 0
Derby 2 — Charlton 3
Grimsby 4 — Southampton 1
Huddersfield 0 — Sunderland 3
Middlesbro 2 — Stoke 2
Newcastle 4 — Rotherham 1
Norwich 3 — Scunthorpe 3
Plymouth 3 — Luton 1
Portsmouth 0 — Swansea 0
Preston 1 — Chelsea 3
Walsall 3 — Bury 1
Skotland.
Airdrie 0 — Dunfermline 1
Celtic 2 — Hearts 2
Dundee Utd. 3 — Aberdeen 3
Falkirk 7 — Clyde 3
Hibernian 0 — Partick 2
Q. of South. 2 — T. Lanark 1
Raith R. 2 — Motherwell 5
Rangers 6 — Kilmarnock 1
St. Mirren 0 — Duundee 3
EFNAGERÐ REYKJáYIKUR HF.
Sölubörn
Komið á afgreiðslu Alþýðublaðsins í fyrra-
málið að selja Jólablaðið. j,
Afgreiðsla Alþýðublaðsins. 1
Duglegur sendisveinn
óskast.
Vinnutími eftir hádegi.
afgreiðsla Alþýðublaðsins. Sími 14 900.
10 11- des. 1962 - ALÞÍÐUBLAÐIÐ