Alþýðublaðið - 11.12.1962, Side 16

Alþýðublaðið - 11.12.1962, Side 16
 BÍLSTJÓRI nokkur, er ók stórum nialarflutningabíl vestur Suðurlandsbraut laust eftir hádegi í gær, varð fyr- ir ]>ví óhappi að kviknaði í hjólbarða tengivagns við bíl hans, Vegfarandi, er tók eft- ir því að hjólbarði tengi- vagns hafði sprungið, lét ökumanninn vita, en hann hafði ekki orðið var við það sakir þess hve lilassþyngdin var mikil og ekki óeðlilegt að aksturinn væri þungur. Bílstjórinn hugðist skipta um hjólbarða, en rétt í því gaus eldur upp í hjólbarðan- um, sem orsakaðist af nún- ingi vindlausa barðans við götuna. Leigubifreið, sem bar þar að í þessu kallaði gegnum talstöð sína þegar á slökkviliðið. — Skömmu seinna komu að rnenn með slökkvitæki og reyndu þeir að vinna bug á eldinum, en tókst aðeins að hefta útbreiðslu hans um stuud. Þegar Slökkviliðið koin á vettvang voru fjórir hjólbarðar vagnsins alelda. Fljótlega tókst að ráða niður- lögum cldsins. Myndirnar: Efsta myndin er tekin þegar eldurinn brauzt úi í sprungna hjólbarðanum. IÁ næstu mynd sést bíistjór- inn við vagninn og fær ekk- ert að gert. Á þriðju mynd ofan frá er hjálpsamur veg- farándi að reyna að slökkva eidinn með handslökkvitæki. Á fjórðu myndinni hefur eld urinn breiðst út og logar í fjórum börðum vagnsins. Á neðstu myndinni er slökkvi- liðsmaður að verki. Mynd- H hnar tók Ijósm. Alþýðu- fj blaðsins: Gísli Gestsson. Sverrír Smith íézt í gær SVERRIR Smith, stýrimaður á M.s, Esju lézt í gær. Hann var 60 ára gamall og hefur verið í þjón ustu Skipaútgerðar ríkisins i tugi ára. Sverrir sótti i gær framhalds ejórétt vcgna strands M.s. Esju. 'Var sjóretturinn haldinn í bæjar- hingsalnum j Hegmngarhúsinu. Sveirir sat á bekk fyrir utan bæjar jþiugsalinn, er hann féli skyndi- lega fram yfir sig og virtist hafa tnisst meðvitund. Nokkru seinna kom liann til sjálts sin, en féll þá aftur niður og var örendur. Heimsfrægur píanóleikari leikur hér Vladimir Ashkenary, hinn frægi rússneski pianóleikari ,er væntan legur til íslands í vikunni, og mun hann lialda hér cina tón- leika. Eins og kunnugt er, þá er Vladimir kvæntur íslenzkri konu, Þórunni Jóhannsdóttur, og hefur a» undanförnu Ieikið í Bánda- ríkjunum við mikla hrifningu. Hann kemur hér við á leið sinni austur um haf. illli ! - — lr . j Ji 1 4 i_ J : íf 0 Þjóðarframleiðsla EBE: 10°jo á sama tíma i USA ÞJÓÐARFRAMLEEÐSLAN jókstl um 21.5% 1958—1961 að báðum árum meðtöldum í öllum ríkjum EBE sameiginlega sagði Björgvin Vilmundarson viðskiptafræðingur í fróðlegu erindi, er hann flutti um Efnahagsbandalagði á ráð- stefnu SUJ um það mál sl. laugar- dag. Ræddi Björgvin ítarlega um stofnun og starfrækslu bandalags ins í erindi sínu. Hann sagði að á sama tíbabili 1. jan. 1958—31. des. 1961 hefði þjóðarframleiðslan aukizt um 11.6% í Bretlandi og 10% í Bandaríkjunum. Björgvin nefndi einnig ýmsar tölur um fjárfestingu í löndum EBE. Sagði hann, að árið 1961 hefði fjárfest- ing í EBE löndunum verið 75% meiri en verið hefði að meðaltali árin 1952—1956. Væri það greini- legt, að hinn sameiginlegi mark- aður hefði örvað aukningu þjóðar- framleiðslunnar og aukið fjár- myndunina í löndum bandalags- ins. Er Björgvin Vilmundarson hafði lokið erindi sínu, hófust frjálsar umræður. Fyrstur tók til máls Sig lurður Guðmundsson, formaður SUJ. Ræddi hann einkum afstöðu erlendra jafnaðarmanna til Efna- hagsbandalagsins og rakti ummæli ýmissa þekktra erlendra jafnaðar- mannaforingja um bandalagið. — Næstur talaði Björgvin Guðmunds son, viðskiptafræðingur. Hann ræddi einkum afstöðu íslands til Framh. á 3. síðu Jólafundur Kvenfélagsins KVENFÉLAG Alþýðu- flokksins í Reykjavík heldur jólafund í Iðnó, uppi, n. k. finimtudagskvöld klukkan 8. Fyrst verða rædd félagsmál. Sýnd verður jólakvikmynd og þá flytja fjórar ungar stúlkur samfellda jóladag- skrá (sögur og ljóö). Félags- konur! Fjölmennið stundvís- lega. Veðriö mild- ara nyrðra iiM^^^mnnTii^iTimTir-iTHKii—-rrri-iTwrm"— Ofsaveðrið á Vestfjörðum, sem búizt var við að færast mundi norður og austur um land um helg ina, varð mun mildara á Jieim slóðum en vestra. Fréttaritarar blaðsins fyrir norðan og austan sögðu I gær, að veður væri hið bezta og ekki var snjókoma hjá þeim nema á Seyðisfirði. Seyðisfirði í gær: Það er lognmolla í dag, reglu- legur jólasnjór. Fjarðarheiði er fær enn. — G. B. Reyðarfirði í gær: Veður er kalt, en engin snjó- koma í dag. Tíð hefur verið rysj- ótt að undanförnu og bátamir ekki róið nema sjaldan. Sæmilega hefur aflazt, þegar gefið hefur á sjó. A. J. Ólafsfirði í gær: Hér er indælis veður. Eftir há- degi á laugardag skall á hríð en veðrið var aldrei mjög slæmt. Það fór hraðbatnandi í gær, og ekki Framhald á 7. síðn.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.