Alþýðublaðið - 12.12.1962, Síða 2

Alþýðublaðið - 12.12.1962, Síða 2
■it»tjórar: GSsli „. Ástþórsst'r (áb) og Benedikt Gröndal.—ASstoSarrltstjóTl Bjt.-gvin GuCmunds.srn. -- Fróttastjóri: Sigvaldl Hjáknarsson. — Símar: 14 900 — 14 102 - J4 903. Auglýsingasími: 14 906 — ASsetur: AlþýSuhúsiS. — PrentsmiOja A.þíöuhiaSsins, Hverfisgötu 8-10 — Askriftargjald kr. 65.00 9 mánuði. I XausasóSu kr 4.00 elnt. tJtgefandi: AlþýSuflokkuriim — Fram- kvæmoastjóri: Asgeir Jóhannesson. SINNULEYSI TÍMANS TÍMINN tekur illa þeim upplýsingum, sem f ram -haf a komið um hina nýju stefnuskrá kommún ista um „íslenzika leið til sósíalismans“. Kallar blað ið þetta „botrilausan þvætting“ og hugarburð fcommúnista, og telur næsta hlægilegt að taka á i því nokkuð mark, sérstaklega fyrirætlunum komm ! únista um að draga Framsóknarflokkinn inn í Þjóð j fylkingu. Þessi viðbrögð Tímans eru ekki aðeins vand- [ ræðaleg, heldur stórhættuleg fyrir Framsóknar- I ílokkinn sjálfan. Það er fásinna að gera svo lítið úr kommúnistum á sama tíma sem þeir hafa kom- ‘ ízt til valda yfir meira en 1000 milljónum manna. í Það er geigvænlegt sinnuleysi að halda, að ekki ! geti hið sama gerzt hér á landi og annars staðar. Og ' áætlun kommúnistanna um „íslenzka leið til sósía- ' lismans5" er nauðalík því, sem gerzt hefur í mörg- [ um öðrum löndum. Kommúnistar hafa í 25 ár gert tilraunir til þess ■ að koma Alþýðuflokknum á kné. Þeim héfur tekizt að særa flokkinn tviövar sinnum alvarlega — en I ekki að brjóta hann á bak aftur. Reynsla Alþýðu- flokksmanna í þessum efnum er því ærin, og fram • sóknarmenn væru fífl, ef þeir lærðu ekkert af 1 rienni. Brynjólfur Bjarnason upplýsti í fyrirlestri • sínum í Greifswald, að sameiningaráform komm- ' únista hafi ekki aðeins beinzt gegn Alþýðuflokkn- 1 um, heldur Framsókn líka. Nú er röðin komin að í Framsóknarflokknum. Lýðræðissinnar hafa æma ástæðu til að ótt- ast, aö Framsókn hafi tilhneigingu til að ganga í ■ gildru kommúnista. í vinstri stjóminni kom fram : mikið skílningsleysi Framsóknar gagnivart komm- i únistum og voru Eysteinn og Hermann til dæmis ■ riúnír að samþykkja að taka stórlán í Sovétríkjun- í um, en Alþýðuflokkurinn hindraði það. Þetta er i eitt megínatriði í steínu kommanna. Síðustu ár hefur Tíminn verið skrifaður þann- ig, aö hundmð framsóknarmanna hafa skrifað | undir áróðursplögg kommúnista og stutt þá á marg ! an hátt. Á Alþýðusambandsþingi hafa framsóknar ! snenn hafnað samstarfi við lýðræðissinna, en þjapp [ að sér upp að kommúnistum. Á Alþingi hefur ver- í ið margvísleg samstaða Framsó'knar og komma, nú síðast i efnahagsbandalagsmálinu. Fjölda mörg slík ■ dæmi blasa ivið augum og gefa ástæðu til að óttast, i að framsóknarmenn mundu leiðast í Þjóðfylkingu ' með kommúnistum, ef þess væri kostur. Aí þessu verður aöeins dregin ein ályktun: Þjóð fylkmgarhættan er raunveruleg og alvarleg. HRINGIÐ Það er réttur mánuður síðan Fíla- delfíusöfnuðurinn tók þá þjónustu upp að láta símsvara lesa Guðs orð daglega fyrir þá sem vilja heyra það lesið í síma.. Vegna þess að márgir hafa spurt, næstum því daglega, um ýmislegt í sam- bandi við þessa þjónustu, þykir okkur rétt að segja ofurlítið frá þeirrf reynslu, sem við höfum feng ið af þessu. Þann mánuð síðan símsvarinn var opnaður, hefur hann svarað 18.500 upphringingum og lesið Guðsorð. Það er að jafnaði 618 símtöl á sólarhring, eitt símtal aðra hvora mínútu, rúmlega, yfh- allan sólarhringinn. Hins vegar veit enginn, hve margir hafa hringt, án þess að hafa náð sam- bandi við símsvarann, vegna þess að hann var á tali. Þykir fólki það mjög leitt, „hve erfitt er að ná sambandi við Orð lífsins," eins og það segir. Hafa margir haldið að eitthvert ólag sé á símsvaranum, þar sem hann sé alltaf á tali. Við höfum svarað öllum því sama, að símsvarinn sé í bezta lagi, en hann væri næstum alltaf á tali, eins og sézt á því, sem gefið er upp hér að framan um fjölda símtala. Þegar Fíladelfíusöfnuðurinn hóf þessa þjónustu, datt okkur ekki í hug, að fólk myndi hafa eins mik- inn áhuga á þessari þjónustu og raun ber vitni. Við fengum því símsvarann stilltan inn á þá tíma- lengd, sem við álitum að vera mundi hæfileg, þannig að hann læsi Guðsorð í 58 sekúndur hverju sinni fyrir þann sem hringdi. En nú hefur það sýnt sig að þetta er of langur tími, því að það er svo langt frá því að allir nái sam- bandi við hann, sem þess óska. Bæjarsímstöðin hefur því lofað okkur að breyta símsvaranum þannig, að liann lesi aðeins í 30 sekúndur í staðinn fyrir 58. Geta þá fleiri komist að en ella. Breyt- ing þessi verður sennilega gerð í næstu viku, og mun þá símsvarinn ekki svara þann dag, sem breyting in fer fram. Eins og sagt hefur verið hefur símsvarinn svarað að jafnaði 618 sinnum á sólarhring allan mánuð- inn. Einn sólarhringinn fór þó þjón usta hans langt fram úr því vana- lega. Það var fimmtudaginn 6. des- ember. Þann dag las símsvarinn viðvörunarorð frá Biblíunni um það að leita frétta af framliðnum. Þennan sólarhring svaraði sím- Framhald á 11. «íðu. Allar helztu málningar- vörur ávállt fyrirliggjJ andi. ] Sendum faeim ¥| Helgi Magnússon & Co? Símar: 13184 — 17227J g 12. des. 1962 - ALÞÝÐUBLAÐID

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.