Alþýðublaðið - 12.12.1962, Blaðsíða 3
Mættu minnast
Frarnhald af 1. síðu.
IATA. Kvað Kristján það
hreinustu fásinnu, að Loft-
leiðir mættu ekki flytja far-
þega af hinum ýmsu þjóð-
ernum, rétt eins og önnur
flugfélög. Mætti SAS minn-
ast fundarins í Höfn í fyrra,
er fulltrúar SAS og banda-
rísku flugmálastjórnarinnar
þar með sér, vegna krafna
bandarískra flugfélaga á N.-
Atlantshafsflugleiðinni um
að hlutur SAS yrði minnkað-
ur en þeirra aukinn
í hlutfalli við íbúatölu Banda
rikjanna og Skandinavíu. Þar
visaði SAS kröfunum á bng
og sams konar.kröfum myndu
Loftleiðir einnig vís á bug
nú.
TIL Alþýðublaðsiins hafa borizt
vegna söfnunar fyrir Laufeyju
Elíssdóttur, öryrkjakonu, eftir-
taldar upphæðir: Margrét og Hall-
dór kr. 70,00. Frá 4 litlum systrum
1000,oo. Offadís 100,oo
Nestlé
kaupir
Findus
Osló, 10. des.
F Y R I R T ÆK IÐ Inter-
national Findus hf., en meiri-
hluta hlutabréfa í því á sviss-
neski auðhringurinn Nestlé,
keypti í dag hraðfrystisam-
steypuna Findus í Noregi. Var
hún sameign norska sælgætis-
fyrirtækisins FREJA og
sænska fyrirtækisins MARA-
BO. Þessi kaup eru háð því
skilyrði, að ríkisstjórnin sam-
þykki söluna, en sjávarútvegs-
málaráðherra Noregs hefur
þegar ■ tilkynnt, að hún muni
gera það. Margir eru uggandi
í Noregi vegna þessa atburðar,
þ. á m. fiskimálastjóri Noregs,
er hefur lýst yfir því að Nestlé
ætli sér að ná einokunarað-
stöðu í norska hraðfrystiiðn-
aðinum. Sjávarútvegsmálaráð-
herra hefur tilkynnt að sá ótti
sé ástæðulaus.
Fréttamaður spurði Krist-
ján hvort Parisarfundurinn
táknaði að IATA-flugfélögin
á N.-Atlantshafssleiðinni
myndu sverjast í fóstbræðra-
lag gegn Loftleiðum. Það
kvað Kristján þau ekki geta.
Meginstefnan innan IATA
væri að hækka fargjöldin en
ekki lækka.
Loks sagði Kristján, að
honum hefði ekki borizt aðr-
ar fréttir af ummælum IATA-
forsetans en þær, er ríkisút-
varpið flutti. En væru þær
rétt eftir hafðar, þá værl
slíkur munnssöfnuður sannar
lega ósamborinn slíkum
manni.
Utrýma
hreysum
ísafirði, 6. des.
Á F XJ N D I bæjarstjórnar ísa-
f jarðar 5. þ. m. var samþykkt sam-
liljóða að hefjast nú þegar handa
um nauðsynlegan undirbúning að
íbúðabyggingu á grundvelii laga
um útrýmingu heilsuspillandi hús-
næðis.
Ákveðið er, að að því verði
stefnt í fyrstu lotu að byggja
íbúðir með 2 herbergjum og eld-
húsi, þeu- sem tilfinnanleg vöntun
er á íbúðum af þessari stærð í
bænum.
Á þessu ári hefur bærinn keypt
til niðurrifs nokkur eldri íbúðar-
hús og verður haldið áfram á
þeirri braut eftir því sem kostur
verður á hverju sinni.
40 EVRÓPU-
SÁTTMÁLAR
RÁÐHERRANEFND
ópuráðsins heldur fund í París n.
k. mánudag, hinn 17. desember, og
verður utanríkisráðherra Ítalíu,
A. Piccioni, í forsæti. Sama dag
verður haldinn fundur nefndar-
manna og fulltrúa ráðgjafarþings
Evrópuráðsins.
Ráðherranefndin mun ræða
starf Evrópuráðsins að dómsmál-
um, og mun ítalski ráðherrann
Bosco skýra nefndinni frá fundi
dómsmálaráðherra Evrópu, sem
haldinn var í Róm í október. —
Þá verður fjallað um flóttamanna-
mál, en að þeim Jiefur Evrópuráð-
ið starfað árum saman. Forstjóri
fióttamannahjálpar Sameinuðu
þjóðanna mun ávarpa ráðherra-
nefndina. — Loks verða lagðir
fram til undirskriftar þrír nýir
Evrópusáttmálar. Fjalla þeir um
fébótaábyrgð gistihúsa, gerðar-
dóma í verzlunarmálum og að-
stöðu þeirra, sem hlotið hafa ör-
kuml í ófriði. Að þessum þrem
sáttmálum meðtöldum hafa 40 sátt
málar um ýmis efni verið gerðir á
vegum Evrópuráðsins.
(Frétt frá upplýsingadeild Evr-
ópuráðsins.)
Stálu ellefu
viðfækjum
I Innbrotsþjófar voru athafnasam-
ir aöfaranótt sunnudagsins. Var
brotizt inn í Viðtækjavinnustofu
og viðtækjasöluna Radíótónar við
Laufásveg 41. Var stolið þaðan
9 útvörpum, þar af 8 litlum „tran-
sistor“-tækjum. Þá var einnig
brotizt inn í verzlun að Freyju-
götu 15 og stolið þaðan tveim út-
varpstækjum. Verðmæti þessara
11 tækja nemur 30 þúsund krónum.
Ný stjórn í
V-Þýzkalandi
BONN, 11. desember.
ADENAUER, kanzlari Vest
ur-Þýzkalands tilkynnti í
dag, að hann hefði lokið
myndun nýrrar samsteypu-
stjórnar. Mynda hana Kristi-
Iegir demókratar, flokkur
Adenauers, og Frjálsir demó-
kratar. Flokkar þessir mynd-
uðu einnig síðustu samsteypu
stjórn í Vestur-Þýzkalandi
í hinni nýju stjórn sitja 21
ráðherrar, þar af 5 úr flokki
Frjálsra demókrata.
Bankaskóflinn
útskrifar 89
BANKASKÓLANUM svokallaða
var slitið í gær í samkomusal
Landsbankans. Höskuldur Ólafs-
son, skrifstofustjóri Landsbankans
ávarpaði nemendur, en síðan flutti
Gunnar H. Blöndal, skólastjóri, yf-
irlit yfir starf skólans á þessum
vetri. í skólanum voru 89 nemend-
ur, en það er fleira en nokkru
sinni áður. Á fyrsta námskeiðinu
1959 voru nemendur 44, árið eftir
67 og í fyrra 54. Flestir komu nú
úr Landsbankanum, eða 48.
Skólinn stendur í tvo mánuði, og
fer kennsla fram tvo tíma á dag.
Nemendum er kennt ýmislegt varð
andi almenna bankastarfsemi, með
ferð reiknivéla, útfylling eyðu-
blaða, vélritun og fleira. Þá flytja
bankastjórar fyrirlestra, en fast-
ir kennarar við skólann voru 10.
Gunnar Blöndal sagði, að alls
konar vélar væru notaðar I æ rík-
ara mæli í bönkunum, og væri því
nauðsynlegt að kenna bankastarfs-
mönnum sem bezt að nota þær,
svo þær gætu komið að sem mest-
um notum. Skólinn hafði nú til um
ráða 15 reiknivélar, sem ýmist eru
eign bankanna eða fengnar að láni
frá sölufyrirtækjum þeirra. Gunn-
ar sagði, að hvergi nema í Banka-
skólanum hefði verið tekin upp
kcrfisbundin reiknivélakennsla.
Er Gunnar hafði flutt yfirlitið,
afhenti hann einkunnir. Hæstu
eikunn í skólanum hlaut Guðfinna
Guðmundsdóttir 9,40. Voru henni
ásamt Gyðu Þórhallsdóttur, Oddi
Guðmunssyni og Birgi Jónssyni af
hent verðlaun frá skólanum. Þá
veitti fyrirtæki Magnúsar Kjaran
sérstök verðlaun fyrir góðan á-
rangur I meðferð reiknivéla, og
hlutu þau Stefanía Stefánsdóttir,
Guðfinna Guðmundsdóttir, Birgir
Jónsson, Gyða Þórhallsdóttir og
Ásta Gunnarsdóttir. Að lokum af-
henti Ottó Michelsen verðlaun fyr-
ir góðan árangur í vélritun. Þau
verðlaun hlaut Guðrún Sveinbjarn
ardóttir.
Bankaskólinn hefur nú eins og
fyrr segir, starfað í fjögur ár, og
hefur mikill og góður árangur
náðst. Nemendur eru þeir banka-
starfsmenn, sem eru að hef ja starf
í bönkunum.
Stærri myndin er af nemendum
þeim, sem sátu skólaslitin, en 2ja
dálka myndin er tekin, er Jón
Maríusson, bankastjóri afhendir
Guðfinnu verðlaunin.
VERÐMÆTT
BRÉF
VERÐMÆTT BREF barst I
gær Sigvalda Hjálmarssyni
fréttaritstjóra Alþýðublaðs-
ins. Vegna þess að ekki er
ljóst, hvað gera eigi við inni-
hald bréfsins, er sendandi
beðinn að senda annað bréf,
AUÐKENNT Á BAKI Á
SAMA HÁTT OG HH)
FYRRA.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 12. des. 1962 3