Alþýðublaðið - 12.12.1962, Síða 8

Alþýðublaðið - 12.12.1962, Síða 8
Þorsteinn Valdimarsson: Heiðnuvötn, Ijóð. Prentsm. Jóns Helgasonar. Reykjavík 1962. Þorsteinn Valdimarsson er tví- tiyggjumaður í skáldskap sínum. Sum ljóð hans minna á tónaregnið táramjúka, en öðrum þeirra ætl ar höfundurinn veigamikið hlut- verk dulspakrar heimspeki eSa stórsögulegrar ádeilu. Auðvitað dettur mér ekki i hug að segja Þor- steini fyrir verkum sem skáldi, eá miklu lætur honum betur að mín- um dómi að slá hörpuna heldur en munda sverðið. Ljóðrænu kvæðin í bókinni eru svo sem nógu persónuleg, því að ekkert samtíðarskáld annað á tón Þorsteins Valdimarssonar, en bókarhöfundur vill áfram og lengra, ofar og hærra. Þá 'kemur heimspekin og ádeilan til sögunn- ar. Þau kvæði eru flest orðmörg og efnisrík, og þar bregður víða fyrir gullfallegum skáldskap, en oft reynist hægðarleikur að finna að heildarmynd þeirra, þó að hag- mælslcu skorti Þorstein sann- arlega ekki. Ég þyrfti til dæmis að hafa skáldið á launum og frem- ur viku en dag til að láta það skýra fyrir mig kvæði á borð við Sprung- inn gítar. Tónræna hljómfegurð þess dreg ég vissulega ekki í efa, en hún verður mér eins og glit á grjóti því að efnistúlkunin fer fyr- ir ofan eða neðan garð á mínum bæ. Sama gildir yfirleitt um speki- drápurnar og. ádeilukviðurnar í bókinni — þau kvæði lyfta sér ekki til flugs vegna þyngsla, en grafast í óminnishamarinn, enda vefur Þorsteinn Valdimarsson slík ljóð sín furðulegu málskrúði. Aft- ur á móti er hann aldrei í vand- ræðum að velja orð til að tjá viðráðanlega hugsun. Fonn eins og Þorsteinn Valdimarsson. sveiglokur verður honum enginn fjötur, en þá kemur í sama stað niður, hvort kveðið er aftur á bák eða áfram. Þorsteinn er íþrótta- maður í líkingu við Gunnar' á Hlíðarenda, þó að ólíku sé saman að jafna, skáldi og vopnakappa. Afrekin eru stundum skyldari leikfimi en skáldskap. Og miklu þykir mér hann gera minningu Páls Kjerúlfs meiri og betri skil í Ijóðinu Fiðluklettar en ræktar- seminni við Jónas lækni Kristj- ánsson með kveðjunni Að Svefnós- um. Fyrra ljóðið er snotur og þýð- ur skáldskapur, en seinna kvæðið eins og stórskorið tröll með ljóm- andi djásn á litla fingri, þar á ég við niðurlagsorðin „samt ertu þar, og kominn á undan mér austur". Eða hver skynjar til listrænnar nautnar annan eins orðaforða og Aladín hvílist við lækinn? Þessar aðfinnslur ber ekki að skilja þannig, að ég vilji gera lítið úr „Heiðnuvötnum.” Afstaða mín er aðeins smekksatriði. Hins vegar met*ég ljóðrænu kvæðin í bókinni svo mikils, að mér blöskr- ar tilgerð Þorsteins Valdimarsson- ar, þegar hann ætlar að neyta aflsmunar við skáldgyðjuna. Hann á að fara að henni með góðu, og þá verða til kvæði eins og Á gauk- tíð, Á ferð, Bláklukkur, Áning, Fiðluklettar og Kvöldstef úr grasi. Þorsteinn kann mætavel að fella saman myndir og tóna, en honum lætur sýnu betur fíngerður, hljóm rænn og svipblíður skáldskapur en tilgerðin, sem er sjálfri sér hættu- leg og bjargar þess vegna hvorki landinu né heiminum. Þegar sam- an fer mynd, tónakliður og bygg- ingarlag, sem er að mínum um- deilanlega smekk, þá finnst mér hins vegar Þorsteinn Valdimarsson mitt skáld — til dæmis í Bláklukk- um: Klukkurnar dreymir í dalnum, þær drúpa bláar í ró krónum í grasið í grónum stekkjarmó. Og hærukolli þú hneigir sem ein af þeim alkominn aftur um óraveg heim. Og æska þía kemur álengdar gleymdan stig í blámanum milda til móts við þig. Ég vil segja, að hér sé Þorsteinn Valdimarsson í essinu sinu. Kvöld- stef úr grasi lofar einnig fagurlega höfund sinn: Daglangt hefur hún mamma brugðið mjúkah silfurþráð, ósýnismöskva í dagsljósinu, ósýnisgildru í blænum, lagða á farbraut vængjanna um loftsins silfurgráð. Net hennar svignar af villibráð, netið glitrar af daggax-tárum. Nú spinnur hún þreytt af gildi’u- brúnni silfurvöggusöng, ósýnisbjartan í kvöldhúminu, óminnisljúfan í blænum, um hreiður sem dreymir perlugrátt á puntsins ruggustöng dægur sumarsins yndislöng, dægur sem líða’ út í haf af árum — um sólkóngulóna sem eilíf bregður silfurgeislaþráð, ósýnismöskva lífs og dvala, ósýnisgildru í blænum, lagða á brautir stjarnanna um loftsins silfurgráð. Net hennar svignar af stjörnubráð, net hennar glitrar af blóði og tárum. Hér gengur Þorsteinn lengra í tilgerðaráttina, en án þess að skaða sig á sverðinu, sem hann mundar stundum í fljótræði. Harpan er hans hljóðfæri, á hana ieikur hann eins og Davíð forðum, og þá skal ég gjarná vera Sál. Helgi Sæmundsson Jóhannes Helgi: Hin hvítu segl. Endurmiimingar Andrésar Pét- urssonar Matthíassonar. Mynd- skreytingar gerði Jón Engil- berts. Setberg. Rvík 1962. Vestfirzkur sjógarpur, Andrés Pétursson Matthíasson, rifjar hér upp endurminningar sínar um störf og menn heima og erlendis, en frændi hans, Johannes Helgi,Jóhannes Helgi er slyngur rithöf- færir bókina í letur. Sögumaður- inn er harla víðförull, og margt drífur á daga hans og félaganna. Mannlýsingarnar verða mér þó sennilega minnisstæðastar. Það er gaman að kynnast þeim körlum, sem Andrés siglir með um íslandsmiðin og heimshöfin og segir frá. Jóhannes Helgi ætlar sér vissulega mikinn hlut, þegar hann velur sögunni form. Hann lætur Andrés dunda við bátinn sinn undir ævikvöld og rifja upp end- urminningar sínar. Aðferðin virð- ist fljótt á litið tilgerðarleg, en hún hefur mikla þýðingu fyrir bókina að loknum lestri, sagan greypist í djúpan ramma. Frá- sögnin er á snjöllu máli, viðhafn- arstíll Jóhannesar Heiga fellur einnig vel að henni, og mun þó ærinn vandi að láta sér ekki mis- takast svo stórmannlega tilburði. undur, sem ræður við tilgerð sína og hefur séi'stæða tækni á valdi sínu. Hins vegar munar stundum mjóu, að slys hljótist af íþrótt höfundarins. Svona leikfimi krefst frábærrar þjálfunar. En Jóhannes Helgi vinnur hér góðan sigur og sannar ótvírætt, að „Hús málarans“ frá í fyrra var engin tilviljun. Bókin hefst í æsku Andrésar vestur í Haukadal í Dýrafirði, en síðan víkur sögunni út á sjóinn og veraldarhöfin og í heimsálfumar, því að víða er siglt og margar slóðir kannaðar. Auðvitað er ég ekki dómbær á nærri allar stað- reyndir bókarinnar, veit alls ekki, hvort frændumir segja satt, ýkja eða skrökva, en mér er nær að halda, að þetta muni heiðarlegar endurminningar. Hispursleysið í frásögninni vekur traust, og ýms- ar mannlýsingarnar eru listavel gerðar. Eg nefni sem dæmi frá- sagnimar af yfirbragði, fram- göngu, athöfnum og tilsvöram Eldeyjar-Hjalta og svipmyndina af Hannesi Hafstein, þegar hann leggur til atlögu við landhelgis- brjótana á Dýrafirði upp á líf og dauða. En hér gætir ennfremur svipblíðrar fegurðar og viðkvæmn- islegrar nærfærni, þrátt fyrir alia stórmennskuna. Brottfararstundin í Haukadal minnir fremur á blæ í grasi eða lygnu á vatni en storm af fjalli. Samt kemst hún ó- gleymanlega á framfæri við til- finninganæman og vandiátan les- anda. Og þó að Andrés sé óspar á frægðarsögur af félögum sín- um og samferðamönnum, þá gleym- ir hann ekki þeim drengskap og þeirri vinarlund, sem gerir smátt stórt. Þetta er skemmtileg bók, því að iðulega kryddast frásögnin geð- felldri fyndni. Kostulegur er sá atburður, þegar Jón rauði sefur nóttina af í líkhúsinu í Bordeaux. Þar hafa sögumaður og bókarhöf- undur fundið snotra perlu og bjargað henni rækilega frá gleymsku. Mig grunar, að „Hin hvítu segl” sé í tölu þeiira bóka mánaðarins, sem eigi sér lífs von fram yfir jól og nýár. Helgi Sæmundsson. b Bókaforlag Odds Björnssonar Akureyri sendir frá sér fjöl bóka fyrir þessi jól, og kennir j margra grasa að vanda. Stærsta og íburðarmesta ból er HNATTFERÐ í MYND ( MÁLI, 190 blaðsíðna bók, sem a texta hefur að geyma 261 ljósmy: marga litprentaða. Nafnið ský innihald ritsins, sem er hið vai aðasta að öllum frágangi. Fru útgáfan kom út í Þýzkalandi 195 Jónas Jónsson er með tæplí 200 blaðsíðna bók: ALDAMÓl MENN. Þar segir frá fimmtán mt um íslendingum, meðal annai Einari Benediktssyni, Jóni Trau og Þorgils gjallanda. 8 12. des. 1962 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.