Alþýðublaðið - 12.12.1962, Page 16

Alþýðublaðið - 12.12.1962, Page 16
13 VEIKTUST AF SKEMMDRIFÆDU TÞRETTÁN manns vciktust af matareitrun hér í bænum í síð- ustu viku. Orsökin fannst fljótlega, .— skemmd kæfa frá matvöruverzl- un við Langholtsveg. Ilér fer á eftir fréttatilkynning, sem blaðinu tiarst í gær frá Borgariækni um fætta mál: ÁFENGIÐ Á ÍSAFJÖRÐ? ísafirði 6. des, ÁFENGIS- og tóbaksvcrzlun ríkisins liefur nýlega skrifað báejarstjórn ísafjarðar og sótt um að fá 600 —1000 fer- metra byggingarióð á góð- um stað í bænum. Fyrirtækið áformar að byggja á lóðinni verzlunar- húsnæði, og það sem fyrst, því útibú þess hér á ísafirði er til húsa í leiguliúsnæði. Enn er ekki búið að ákveða um staðsetningu verzlunar- hússins, og er málið í athug- un hjá bæjarstjórninni. í lok síðustu viku vciktust, að því að vitaö er 13 manns með ein- kenni um matareitrun. Enginn veiktist þó hættulega. Grunur féll strax á kæfu, sem keypt var í verziuninni „Ásgeir“ Langholtsvegi 174 liér í borg, og búin var til í byrjun vikunnar. Var sala á henni stöðvuð þegar á laug- ardag, og sýnishorn tekin til rann sóknar. Kæfan hefur ekki verið til solu í öðrum verzlunum. Við rannsóknina liafa nú fund- izt í kæfunni sýklar, sem valda matareitrun og nefndir eru (stap)- gerlar (staphylococcus aurcus). Matareitrunin orsakast af sérstök- uni eiturefnum, sem sýklarnir framleiða, ef þeir komast í mat- væli. Hins vegar er hér ekki um smitun að ræða frá manni til manns. Ekki er vitað um ncinn, sem veikzt hefur síðan salan var stöðv- uð. Þeir, sem enn kunna að eiga kæfu, sem keypt var í framan- greindri verzlun frá miðvikudegi til laugardags í síðustu viku, eru hér með varaðir við að neyta hennar. Athugun leiddi í ljós. að fram- leiðsluháttum kæfunnar var í þetta sinn ábótavant, og ver'ður framleiðsla ekki leyfð á ný, fyrr en ráðin hefur verið bót á þeim göllum. SJÓSÓKN ERFIÐ - AFLI TREGUR ísafirði í des. STÆRRI bátarnir á Vestfjörð- om byrjuðu yfirleitt róðra um mánaðamótin október—nóvember. I nóvembermánuði stunduðu 43 stórir bátar línuveiðar á Vestfjörð- um, og auk þess 30 minni bátar, — (undir 15 lestum) Tíðarfar var mjög risjótt í mán- líðinuin og sjósókn því afar erfið. Engin þorskaganga hefir ennþá komið á miðin, og hefir aflinn því verið mjög blandaður, mikið ýsu- borinn, einnig hefir veiðzt meira af löngu en áður, og yfirleitt hef- ir þorskurinn verið mjög smár. Afli bátanna er nú mjög áþekk- ur og hann var í nóvember í fyrra. Jólafundur Kvenfélagsins KVENFÉLAG Alþýðu- flokksins í Reykjavík heldur jólafund í Iðnó, uppi, ann- að kvöld ltlukkan 8. — Fyrst verða rædd félagsmál. Sýnd verður jólakvikmynd og þá flytja fjórar ungar stúlkur samfelida jóladag- skrá (sögur og ljóð). Félags- konur! Fjölmenniö stundvís- lega. • Aflahæstur Vestfjarðabátanna er nú Pétur Thorsteinsson, Bíldudal, með 154,7 lestir í 21 róðri, en í fyrra var Guðbjörg, ísafirði, afla- hæst með 145 lestir í 20 róðrum. Aflahæstu bátarnir á Vestfjörð- um frá byrjun haustvertíðar til nóvemberloka eru þessir: Sigurfari, Patreksfirði, 317,2 lestir í 41 róðri; Guðbjartur Kristján, ísafirði, 232,1 1. í 34 r.; Guðbjörg, ísaf., 222,5 1. í 36 r.; Pétur Thorsteinsson, Bíldudal, 212,5 1. í 29 r.; Víkingur II., ísaf. 191,4 1. í 32 r.; Þorlákur. Bolungar- vík, 174,0 1. í 29 r.; Guðný, ísaf. 173,7 1. í 32 r.; Einar Hálfdáns, Bolungarvík, 163,9 1. í 25 r.; Hrönn, ísafirði, 162,3 1. í 32 r. og Gunnvör, ísafirði, 161,4 1. í 29 r. AFLASÖLUR ERLENDIS TOGARINN FREYR seldi síldar- farm í Þýzkalandi í gærdag. Freyr sigldi með 334 lestir af sild og seldist það magn fyrir 166.400 mörk. í dag munu þrír íslenzkir togarar selja afla sinn í Bretlandi og sennilega mun togskipið Skag- firðingur einnig selja síldarfarm í Þýzkalandi í dag. Flotinn í vari ENGIN síldveiði var síðast- liðinn sólarhring. Veður var slæmt á miðunum, og gátu bátarnir ekkert athafnað sig. Flestir Reykjavíkur bátarn- ir voru þó á sjó í gær, og hugöust bíða eftir batnandi veðri. Veðurstofan spáði í gær, að veðrið mundi held- ur lægja í nótt. Fjöldi báta lá í vari við Reykjanes og nokkrir munu hafa verið vestur undir Jökli, til þess að eiga stutt á miðin, ef veð- ur batnaði. S L Y S varð í gær í Nóatúni rétt ofan við Laugaveg. Þar hljóp lílil telpa aftur undan strætisvagni og lenti á bifreið, sem ók suður Nóa- tún. Litla telpan meiddist tölu- vert á andliti, m. a. brotnuðu tennur og varir hennar sprungu. Óðinn fók breskan tog- ara í gær VARÐSKIPIÐ Óðinn tók í fyrrinótt brezka togarann Dinas FD 55 að meintum ó- löglegum veiðum við Langa- nes. Var togarinn 1.1 sjó- mílu fyrir innan sex mUna mörkin. Óðinn fór með tog- arann til Siglufjarðar, og áttu réttarhöld í máli hans að hef jast klukkan f jögur í gær, en þar eð símasambandslaust var við Seyðisfjörð, tókst ekki að afla nánari frétta af málinu. Togarinn mun ekki liafa veitt neina mótspyrnu við tökuna. Dinas er nýr togari, byggður 1956. Hann er 439 tonn. 43. árg. — MiSvikudagur 12. desember 1962 - 175. tbl. FYRSTA fiskiskipið, sem smíðað hefur verið úr stáli hérlendis, var sjósett í gærdag. Skipinu var gef- ið nafnið Arnarnes, og er það eign íshúss Hafnarfjarðar. Stál- smiðjan smíðaði skipið. Arnarnes var sjósett klukkan rúmlega fimm í gærdag. Frú Kristín Flygenring, kona Ingólfs Flygenring, braut kampavíns flösku á stefni skipsins, óskaði að: gæfa og farsæld mættu fylgja: skipinu alla tíð, og gaf því nafnið Arnarnes. Logsuðumaður brenndi síðan sundur stálhaftið, sem hélt skip- inu föstu, og síðan rann það hægt og tignarlega af stokkunum og á flot, en viðstaddir klöppuðu lof í lófa. Arnarnesið er fyrsti fiskibátur- inn, sem smíðaður er hérlendis úr stáli. Áður hafa tvö stálskip verið smíðuð í Stálsmiðjunni, dráttar- báturinn Magni, og varðskipið Al- bert. Amarnes er 125 — 130 brúttós register lestir, ,að stærð. Verður það væntanlega afhent eigendum i næsta mánuði, þá fullbúið til að hefja veiðar. Eigandi Arnamess er eins og fyrr er getið íshús Hafn arfjarðar. Myndin er tekin við skírn skipsins. SÍÐASTA spilakvöldið hjá Alþýðuflokksfélagi Reykja- víkur fyrir jól verður á föstu daginn kcmur kl. 8,30 í Iðnó. Góð verðlaun veitt.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.