Alþýðublaðið - 18.12.1962, Page 3

Alþýðublaðið - 18.12.1962, Page 3
BOÐIÐ TIL ÞÁTTTÖKU MMwtMwwwHiwmwwimwmwwMiw Eitthvað fyrir unga fólkið BORGIN ber nú svip þess, að jólin nálgast. Ljós og lyng og greni vekja dag hvern athygli vegfar- enda á því að hátíð er í nánd. Skreyting verzlana í gluggum með margs konar glysi og gnægð góðra muna minnir hvern mann á jóla- gjafir. En hjá því verður varla komizt, að allur sá íburður vekji nokkra umhugsun og spurningar hjá hverj um þeim, sem þekkir söguna góðu um fátækt barn, sem vafið var reif um og lagt í jötu, ef sú saga er orð in lionum harla kær. Þetta stingur allt svo mjög í stúf við helgi fyrstu jóla, fátækt- ina í fjárhúsi í Belehem. Er fæð- ingarhátíð hans, sem gerðist fátæk ur'vor vegna til þess að vér auðg uðumst af fátækt hans nú orðin verzlunarhátíð hjá mér’ Eitt hefur jafnan að undanförnu þessa daga í desember, glatt mig öðru fremur, af því sem setur jólasvip á Reykjavík, auk jóla- trjánna stóru. Og þetta er jólapott ur Hjálpræðishersins, samskota- báukur hans. Hann lætur lítið yfir sér og er ekki fyrirferðarmikill í aðal-verzlunarhverfinu, enda ekki séttur þar í gróðaskyni. En hann mætti samt vekja til umliugsunar Margir eru þeir, sem litlar eða engar jólagjafir fá, einmitt þeir, sem helzt þyrftu þeirra við. Þeir eru margir, sem cíaprir eru og einmana og gleymast,, einmitt þeir sém helzt þyrfti að gleðja. Og þarna stendur í strætinu lítil, hóg vær áminning um það. Það er hið sanna jólahald, að líkna þcim, sem líknar þurfa, gleðja hrygga, styðja veikburða, rétta beim hönd, sem hefur hrasað. — Öll vitum við, að það er í anda hans , sem gaf mönn unum heilög jól, að halda hátíð riieð kærleika í huga til meðbræðra í þrengingum. Þegar við sjáum jólapottinn frá Hjálpræðfehernum, mættum við renna þakklátum huga til þeirra manna, sem gefa okkur tækifæri til að veita nokkurn glaðning, og án þess að láta okkar að neinu getið, óþekktum bróður eða systur, sem við ekkert vitum annað um en það, að hann þarfnast hjálpar, að hann megi gleðjast yfir því, að einhver hefur auðsýnt honum hlýj an hug í nafni Drottins. Hjálpræðisherinn á skilið þakk ir meðborgaranna fyrir þetta og fyrir að bjóða fram starfsflokk til þessarar meðalgöngu, fólk sem fús lega ver tíma sínum þá daga, sem allir eru önnum kafnir af um- hyggju íyrir sér og sínum, — og sjálfum helgidögunum. Þegar flest ir vilja eiga náouga daga eða Skemmta sér, til þess að leggja WWWWWWWWWWMWWMWV hart að sér í erfiði, svo að einnig þeir mættu hljóta hátíðargleði, sem allir aðrir gleyma. Að þessu sinni er meiri þörf en áður hefur verið fyrir að taka hönd um saman um þetta hátíðahald Hjálpræðishersins, því að nú hefur hann tekið að sér ný og aukin verkefni. Að þessu sinni mun hann hafa með höndum nokkurn hluta þegs jólaglaðnings, sem félagið Vernd hefur haft að undanförnu. Vernd mun að vísu enn sem fyrr leggja sig fram við að annast fangahjálpina um jólin. En auk fanganna eru margir einmana menn í þessum bæ, fólk. sem lítiffi athvarf og litla samúð á í um- hverfi sinu. Hjálpræðisherinn ætl að leita þá uppi. Hanr mun annast fatsgjafir og íleira 03 halda jóla- fagnað fyrir marga. Notaður fatnaður, lireinn og. lítið slitinn, kæmi sér vel, einkan- lega karlmannaföt. Sendið slíkt til Hjálpræðishersins. Þörfin er mikil og liefur verið komið upp sauma- stofu til þess oð lagfæra flíkur. Og þegar þú gengur fram hjá jólapotti Hjálpræðishersins, er þér gefið tækifæri, gott tækifæri, til þess að gleðja einhvern, án þess að láta nafns þíns getið. Þú þekkir hann ekki, þann sem þú gleður, en hann er bróðir þinn. Ingólfur Ástinarsson sem lcngst gengur, Cambell-Smith vera Timothy að hi.ra BRETAR virðast vera nokk- hngrmyndin er aii nota fyrir uð frjálslyndir í sambandi viA skemmtistaði íyrir nnga fólkið. kirkjur sínar, og nú er vcrið að Með þessu telja kictkar, að þeir tvist af yngri kynslóðinni, innrétta kjallara undir mörg- geti komizt nær t'.ngá folkinu, og auðvitað er hann í hempu um kirkjum þar í Iandi, sem og á myndinni má sjá einn þann ★ Strætisvagninn var þegar yfirfullur er feit kona kom inn. Hún stóð augnablik kyrr og leit á farþegana og sagði síðan: — Ætlar enginn af þessum herramönnum að bjóða mér sæti? Við þessi' orð spratt upp lítill ínaður óg sagði: — Eg er tilbúinn að leggja minn hluta til í sæti fyrir yður! NÝLEGA hafa orðið blaðaum- ræður um atriði úr töflu þeirri, sem birt er í Þjóðvinafélagsalman- akinu á bls. 18 með fyrirsögninni Tafla II og á að sýna, hverju mun- ar (sú tala verður hér nefnd flóð- stuðull) í háflæðitíma á ýmsum stöðum á landinu og í Reykjavik. í tilefni af þessu teljum við, sem séð höfum um gerð almanaksins að undanförnu, rétt að gefa hér nokkrar upplýsingar. Fram til ársins 1954, að því með töldu, var Tafla II byggð á sjáv- arfallaathugunum, sem gerðar voru um síðustu aldamót. Þær munu þó yfirleitt ekki hafa farið j fram eins lengi og þarf til að j tryggja æskilegustu nákvæmni í( niðurstöðum. i þessari gerð töfl- unnar er flóðstuðull fyrir Siglu- fjörð og Akureyri gefinn hinn sami, 4 st. 30 mín. í almanakinu um árið 1955 var Akureyrartölunni breytt í 4 st. 8 mín. og aftur 1959 í 4 st. “10 mín., og hefur þessari tölu verið haldið síðan. Voru þess- ar breytingar, og fáeinar fleiri, teknar eftir töflum, sem íslenzkar sjómrelingar hafa gefið út árlega frá 1954. Sjávarföll í Reykjavík árið 1954 og síðan hafa verið reiknuð með vélum í sjávarfallastofnuninni brezku (Tidal Institute). Er það gert samkvæmt samningi íslenzkra sjómælinga við stofnunina og á grundvelli sjálfritamælinga, sem þær hafa annast. Birta íslenzkar sjómælingar árlega töflur um öll liáflóð og háfjörur í Reykjavík, tíma þeirra og sjávarliæð. Þjóð- vinafélagsalmanakið birtir í Töflu I bls. 16-17 tíma árdegisliáflóða eftir sömu hcimild og segir til, hvernig áætla skuli síðdegisháflóð og háfjörur. Sjávarföll í Reykjavík eru þann- ig reiknuð með tiltölulega mik- illi nákvæmni. En við notkun flóð taflna verður að hafa í huga áhrif veðursins, sem ekki verða reikn- uð út fyrir fram. Til að gefa hug- mynd um áhrif veðurs á flóð og fjörur skulu hér tilfærðar tölur um Liverpool frá árinu 1937. Skekkja undir 5 mínútum sýndu 75% flóðtímanna, 6-10 mínútur: 19%, 11-15 mínútur: 4%, og skekkja yfir 15 mínútur 2%, eða um 15 flóðtímar um árið. Fjör- urnar reyndust nokkru viðkvæm- ari fyrir veðri, og eru tilsvarandi tölur 56%, 29%, 11% og 4%. - Skekkjurnar eru yfirleitt meiri að vetrinum, og í janúar sama ár reyndust 8% flóðanna vera sköfck um meira en 15 mínútur. Hér á landi er vitneskja um áhrif veðra auðvitað ónákvæmari, en varlegra sýnist að reikna með því að veður g e t i skekkt nákvæmt reiknaðan flóðtíma um a. m. k. allt að 30 mínútum, og dæmi eru um það annars staðar, að skekkjan hefur numið heilli klukkustund. Fýrir allmárga áðra staði á landinu en Reykjavík er árdegis- háflóð fundið eftir Þjóðvinafélags- almanakinu með því að bæta við Reykjavíkurtímann í Töflu I tölu þoirri (flóðstuðli), sem stendur við þann stað í Töflu II; þannig telst flóðið á Akureyri koma 4 st. 10 mín. síðan en i Rcykjavík. En þessar staðartöflur eru m e ð a 1 - t ö f 1 u r , sbr. Þjóðvinafélagsal- manakið 1953. Sú tala, sem nota ætti, breytist í rauninni nokkuð frá einu flóði til annars og einni fjöru til aimarrar. En til að finna þess- ar breytingar, þarf að gera mæl- ingar á staðnum um alllangan tíma og síðart að reikna alla flóð- og fjörutíma staðarins samkvæmt þeim. Eini staður landsins, þar sem bæði hafa farið fram slíkaif mælingar og sem fullkomnir reikn- ingar erU gerðir fyrir á ári hverju, er Reykjavík. Um aðra staði er sú. ein leið til að miða við m e ð a 1 - m i s m u n frá Reykjavík, og það' er sú tala, sem Tafla II gefur. Auk. þess ber auðvitað að hafa í huga, að sama flóðið eða fjaran getur orðið fyrir öðrum veðurtruflun- um t. d. á Raufarhöfn en í Reykja- vík. Eins og fyrr segir, er Tafla II um 60 ára gömul að uppruna. Töl- ur skv. nýlegum mælingum eru nú i henni iyrir þessa staði: Akra- nes, Akureyri, Grindavík, Hvanursr vík, Keflavík, Seyðisfjörð og Vest- mannaeyjar. Gamla Akureyrartal- 1 an reyndist skökk um 20 mínútur ög Grindavíkurtalan um 42 mín- 1 útur. Af því má ætla, að margai- gömlu talnanna víki nokkuð frá. réttu meðaltali. Þannig sýnist t. d, Siglufjarðartalan, 4 st. 30 mín.» ekki koma vél við 4 st. 10 mín. á Akureyri. Þá hefur henni ekki ver- ið breytt enn í töflum íslenzkra sjómælinga, og þá ekki heldur í Töflu II í Þjóðvinafélagsalman- akinu. Breyting á henni hefði enift Framh. á 4. síðu. ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 18. des. 1962

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.