Alþýðublaðið - 18.12.1962, Síða 9

Alþýðublaðið - 18.12.1962, Síða 9
 Mestseldu hjólbarðar á Islandi í dag. - Einkaumboð: UMB.OÐS- 6 HEILDVERZLUN FIMM KONUR laust slípað penna hans, en hitt sem kallað Vilhjálmur S. Vilhjálmsson: Fimm bonur. — Bókaútgáfan Setberg, Reykjavík. Viihjálmur S. Vilhjálmsson hefur fyrir löngu látið rösklega að sér kveða sem rithöfundur. Hann hefur skrifað skáldsögur, smásög- ur, æfisögur, mannlýsingar. En það er sama hvað VSV skrifar um, það á allt eitt einkenni sam- eiginlegt. Það miðar með ein- hverjum hætti að því að varpa ljósi á lífskjör alþýðu manna, framsókn hennar til menningar, féiagslegra samtaka, þolanlegrar lífsafkomu. Bækur hans eru því eins og kastljós, sem varpað er á síðustu 60-80 árin í lífi þjóðar- innar, þann þáttinn, sem kalla mætti baráttusögu alþýðunnar. Með þessu er aðeins bent á mið höfundarins, ekkert um verklag hans eða getu, skáldlegt innsæi hans eða sköpunarorku. En það er bezt að segja það alveg um- búðalaust. Þekking Vilhjálms í því efni, sem hann ritar um, djúp innlifun hans í hagi þessa fólks og rík samúð hans, hefur lyft mörgum af þessum verkum hans upp í hæðir. góðra bók- mennta og fagurs skáldskapar. Áratuga blaðamennska hefur efa- dregur hann drýgra, að hann lif- ir allur og heill í því efni, sem hann fjallar um — og er ekki með neinn yfirdrepsskap, engar hundakúnstir, engin torráðin tákn né vangaveltur, enga tilfinninga- vellu. Það er lífið sjálft, nakið og grímulaust, sem birtist oss í þess- um bókum, ekki eins og það hefði getað verið, eða átt að vera, — heldur eins og það var raunveru- lega fyrir tilteknum hópi manna á þessu tímabili og hann varð að gera sér að góðu að taka við og takast á við, lifa því — duga eða drepast. Og margt af þessu fólki, sem tók þann kostinn að lifa og duga, gerði sér enga grein fyrir því, að það var að skapa hetju- sögu. Um það var ekki hugsað þá. En Vilhjálmur S. Vilhjálms- son hefur með ritstörfum sínum unnið það þjóðnytjaverk, að bjarga nokkrum þessum hetju- sögum frá gleymsku og glötun og varðveita nokkra svipmikla dráttu í yfirbragði samtíðar sinn- ar. Heill sé honum fyrir það. Nú hefur Vilhjálmur brugðið á það ráð, að hlusta á ævisögur fimm kvenna og færa þær í let- ur. Hann hefur ekki seilst til þess, að konurnar væru beinlínis það, er þjóðkunnar, en kveðst hafa lagt alla áherzlu á, ,,að hlusta á sögu þeirra, sem ég vissi að höfðu staðið í stríðum straumum og barizt þrotlaust, sem vildu segja frá upplitsdjarfar og hreinskilnar, voru stoltar og djarfmæltar, en um leið hlýjar og ríkar af samúð til alls og allra.“ Þetta hefur tekist ágæta vel og Vilhjálmi hefur tekizt að skapa fallega bók og sanna. Hann gríp- ur aldrei fram í fyrir sögukon- um sínum, leiðir frásögnina ósýni- lega. Hver um sig sögukvenna hans hefur sitt eigið tungutak, sinn eigin tón, sín sérkennilegu viðbrögð. Vilhjálmi tekst að láta það allt koma til skila. Þetta veldur því, að þó að reynsla og lifsumhverfi sumra sögukvenn- anna sé að ýmsu líkt, einkum á æskuskeiði, verða frásagnirnar ó- líkar. Hver á sinn lifandi, per- sónulega blæ. Það er ekki sízt í þessu, sem Vilhjálmur sýnir fimi sina og kunnáttusamleg tök í þessari bók. Hann hefur verið ó- venju góður hlustandi. Það er hægt að hlusta syo vel að viss mannleg reynzla fái mál, sem aldrei annars hefði verið tjáð. í návist þeirra og sérgæðinga verð- Framhald á 10. síðu. Sterkir Fallegir MADE IN FRANCE Skóverzlun vinsælu komnir aftur. Verð kr.: 375.— Svartir og brúnir. Einnig DRENGJASKÓR í öllum stærðum. Péturs Andréssonar Laugavegi 17 — Framnesvegi 2. Laugavegi 63. Áskriftarsíminn er J4901 ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 18. des. 1962 ^

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.