Alþýðublaðið - 18.12.1962, Page 11

Alþýðublaðið - 18.12.1962, Page 11
Fimm konur Framhald af 9. síðu. ur öll mannleg reynsla mállaus. ' Konurnar, sem þama segja sögu sína eru : Elísabet Jónsdóttir frá Eyvindar- múla, ekkja Péturs Guðmunds- sonar skólastjóra ó Eyrarbakka, Sigurlaug M. Jónasdóttir, frú Jónasar Þorbergssonar, fyrrum útvarpsstjóra, Margrét R. Halldórsdóttir frú, Þjórsárgötu 5, Reykjavík, kona Skærings Markússonar frá Hjörleifshöfða, Ingibjörg Gissurardóttir frá Gljúfurholti, ekkja Símonar Símonarsonar bifreiðarstjóra í Reykjavík — og Helga M. Níelsdóttir, ljósmóðir í Reykjavík, Eyfiröingur að kyni. Hin elzta þessara kvenna er fædd 1878, sú yngsta 1903. Það er aldarfjórðungsmunur. Þó lieyra þær allar til sömu kynslóð, eru allar merktar henni og því liver með sínum sterku sérkennum. Vera má, að kynni mín af þess- um konum flestum, sum að vísu lítil, hafi orðið þess valdandi, að ég las þessa bók með meiri at- hygli og ánægju en ella hefði orðið. Þó er ég ekki viss um það. Bókin þarf einskis slíks við. Og ég á mjög erfitt með að gera upp á milli þessara frásöguþátta. Allir lýsa þeir djúpri, mannlegri reynslu, sem þannig var brugðist við, að saga varð af. Allir eru þeir skemmtilegir í sínum mann- lega, opinskáa einfaldleik — eða kannski einmitt vegna hans, — þrátt fyrir átakanleik þeirra at- burða, sem stundum er lýst, og kalda hörku þess veruleika, sem er svið atburðanna. En þannig eru allar íslendingasögur — enn þá. Þetta er þeirra svipur og tónn. Eg vildi með þessum línum mega þakka öllum sögukonunum fimm fyrir það, að þær sögðu frá, „djarfmæltar og hreinskiln- ar” og Vilhjálmi S. Vilhjálmssyni fyrir að hlusta og skrásetja svo forkunnar vel, sem hann hefur gert. Eg sé enga ástæðu til þess að fara að rekja efni bókarinnar. Hún verður keypt og lesin þús- undum saman. — Setberg hefur gefið bókina út mjög snoturlega. Atli Már hefur teiknað kápumynd mjög smekklega og myndir af sögukonunum fimm, skemmtileg- ar myndir. Það var gaman að fá þessa hók. Sig. Einarsson. Á FORNÁR SLÓÐIR ÁSAMT konu sinni og þremur hörnum, er Ernest Hillary, sá sem fyrstur manna kleif hæsta fjall heims, Mount Everest, lagður af stað í reisu á gamlar slóðir. Hann er kominn til Indlands og er á leið upp í Himalajafjöllin núna með alla fjölskylduna. Ásamt börn um sínum, sem eru þriggja, sex og sjö ára, ætla foreldrarnir að klifra upp í fimm kílómetra hæð, en þar hýr fornvinur Hillarys, Tensing, sá sem kleif með honum Everest árið 1953. Hillary ætlar að nota tækifærið og undirbúa næsta á- fanga þeirra félaga, en það er að klífa tindinn Tiwechi í Katamandu í Indlandi, en hann er 7166 m. hár. Þeir félagarnir ætla að klífa liann á næsta sumri. Skáldsaga GUNNARS M. MAGNÚSS er saga um ungt fólk — fyrir ungt fólk. Þetta er ástarsaga sem lát- in er gerast í Reykjavík-fyr- ir fáum árum og aðalpersón- urnar eru dægurlagasöng- konan og stjarnan upprenn- andi, Bára Lóa, og unnusti hennar, Börkur Jónsson, sér- stæður piltur, sem er efni í uppfinningamsnn, en kemst í kast við lögregluna og dómsvaldið fyrir annarra skuld, alsaklaus, og ratar af þeim sökum í miklar þreng- ingar og raunir. — Þetta- er spennandi og skemmtileg saga. Tilvalin jólagjöf fyrir unga fólkið. — Verð kr. 164,80. FYRRI BÆKUR ÚTGÁFUNNAR, skáldsagan Lífsneiti eftir Remarque og unglingabókin Borizt á banaspjótum eftir Atlan Boucher fást enn hjá bóksölum um land alit, ítVccc ★ Lífsneisti er stórbrotið skáldverk eftir heimsfrægan höf- und. Bók sem á erindi til allra hugsandi manna. ★ Borizt á banaspjótum er fyrsti hluti unglingasögu er gerist á íslandi í fornöid og segir frá Halla á Meðalfelli í Kjós og ævintýrum hans. Höfundur bókarinnar er ungur brezk- ur menntaraaður sem nú dvelst á íslandi og er þaulkunnugur íslandi og íslenzkum bókmenntum. Þetta er spennandi bók sem er tilvalin jólagjöf fyrir unglinga. BÓKAÚTGÁFAN DVERGHAMAR tllT A ‘ SAMA >,«-r n «> -i=> h.«>í ORUGGARI ' RÆSING, 10% eldsneytis- sparnaður • * ' ■ ■ CGILL VILHJALMSSOIM ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 18. des. 1962

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.