Alþýðublaðið - 20.01.1963, Side 3

Alþýðublaðið - 20.01.1963, Side 3
✓ A undan- hðldi ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ frumsýn- Ir á föstudaginn kemur leik- ritið „Á undanhaldi“ eftir Francois Billetdoux. Þýðing una gerði Sigurður Gríms- son. Leikstjóri er Baldvin Halldórsson, en aðalleikend ur eru Guðbjörg Þorbjarnar dóttir og Róbert Arnfinns- son. Þau sjást hér á mynd- inni í hlutverkum. I stuttu máli Washington (NTB). SENDIHERRA Bandarikjanna í Moskvu, Foy Kohler, ræddi við Andrei Gromyko, untanríkisráð- herra Sovétríkjanna, á föstudag. Utanríkisráðherrann heldur til Washington 28. janúar n.k., og mun fundur hans og Kohlers sendi herra hafa staðið í sambandi við þá för. Kohler mun hafa viljað kanna, hvort Gromyko væri fús tii að færa endanleg sjónarmið Rússa. Góðar heimildir hermdu nýlega, að mestar likur væru á samkomu- lagi í svipinn um bann við tilraun- um með kjarnorkuvopn. Tilkynnt hefur verið í Osló, að Gromyko, utanríkisráðherra, muni heimsækja Noreg í boði norsku stjórnarinnar 27. febrúar til 6. marz n.k. Með heimsókn sinni mun.Gromy ko endurgjalda opinbera heimsókn Langes utanríkisráðherra til Sovét ríkjanna 1961. London, 19. jan. (NTB-Reuter). MíA C M I LLA N forsætisráðherra kvaddi í dag á sinn fund Home lá- varð, utanríkisráðherra, og ráð- herra þann í brezku stjórninni, er fer með mál, sem varða Efnahags- bandalag Evrópu, Edward Heath, til þess að ræða síðustu atburði í sambandi við EBE-viðræður Breta. Haft er eftir áreiðanlegum heim ildum í London, að Edward Heath hafi lagt fram skýrslu um fram- vindu mála. Viðræðunum í Briissel var slitið til bráðabirgða í gær- kvöldi. Þá höfðu þær staðið í 14 mánuði. Nýr fundur brezkra samn- ingamanna og EBE verður haldini 28. janúar. Paris, 19. jan. (NRB-AFP). FRANSKA stjórnin hyggst innan skamms snúa sér til hinna aðildar ríkja EBE með þá hugmynd, að er- lendar fjárfestingar í efnahags- bandalaginu verði teknar fyrir, a því er franska fjármálaráðuneyt; skýrð'i frá í dag. Upplýsing þessi var veitt i sam- bandi við fréttina um, að band- ríska Chrysler-félagið hefði keypt hlut svissneska bankans Credii Suisse í franska Simca-félaginu. Framleiðsla SH nam 62.804 tonnum 1962 HEILDARFRAMLEIÐSLA frystihúsa innan SH nam 62.804 tonnum árið 1962. Heildarútflutn ingur nam 64.156 tonnum en ár- iff 1961 56.022 tonnum. Hafði útflutningur aukizt um 14.6% og var aðeins 4% lægri en 1960 cn þá nam hann 66.682 tonnum. Frá þessu var skýrt á aukafundi Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna, sem haldinn var í Reykjavík 18. janúar. Til fundarins var boðað m. a. til að ræða sölu- og markaðshorf- ui', framleiðslu- og fjárhagsmál, jafnframt því sem hraðfrystihúsa menn fjölluðu um hið alvarlega ástand, sem er að skapast í fram leiðslumálum vegna stöðugs hækk- andi kaupgjalds og verðlags. Sam þykkti fundurinn í þeim efnum ályktun, sem greint er frá síðar. Fundarstjóri var kjörinn Jón Árnason, alþingismaður frá Akra nesi, og fundarritari Benedikt Guðmundsson. Á fundinum voru mættir fulltrúar frá flest öllum hraðfrystihúsum innan SH., sem eru 56 talsins. Formaður S. H., Elías Þorsteins son, útgerðarmaður, Keflavík, flutti í upphafi fundarins ræðu, þar sem hann drap á hin þýðing- armestu atriði í starfsemi samtak anna. Ræddi hann m. a. starfs- skiptingu hins nýmyndaða- Fram- kvæmdaráðs S. H., fyrirsjáanlega erfiðleika í rekstri frystihúsanna vegna hins háa fiskverðs, *n þær hækkanir eru í engu samræmi við markaðsverkhækkanir síðastliðins árs. Taldi hann, að allt benti til þess, að yfirstandandi ár hljóti að verða óhagstætt rekstursár hjá hraðfrystihúsum og fyrirsjáanleg stórtöp við óbreytt ástand. Heildarútflutningur sl. ár er sem hér segir: Bolfiskflök, heilfrystur fiskur og flatfiskur 37.511 tonn. Síld og slídarflök 20.804 tonn. Dýrafóður 5.067 tonn. Þunnildi (söltuð) 783 tonn. Heildarútflutningur SH, eftir löndum skiptist sem hér (tonn): 1962 Bandaríkin 14.441 Rússland 19.714 Tékkóslóvakía 5.141 Holland 1.181 Austur-Þýzkaland 4.226 Rúmenia 1.756 Pólland 1.807 England 5.179 Vestur-Þýzkaland 4.243 Árið 1962 var eingöngu 5.884 1.551 991 23 fryst síld til Austur-Þýzkalands, Rúmeníu og Póllands og ennfrem ur stór hluti magnsins, sem fór til Tékkóslóvakíu og Vestur- Þýzkalands. Útflutningur til ann arra landa var mun minni en til einstakra framangreindra landa. Af dýrafóðri var flutt út á ár inu 5.067 tonn, en árið 1961 nam þessi útflutningur 9.268 tonn- um. Allar framanskráðar framleiðslu og útflutningstölur eru bráða- birgðatölur. Á árinu 1962 varð mikil aukn- ing í tækjakosti frystihúsa innan SH, svo og juku þau verulega heildarorku frystivéla sinna. Mark vist var unnið að aukinni hagræð- ingu og framleiðni í húsunum. Tekin var upp ný framleiðsla á roðlausum sporðstykkjum fyrir Ameríkumarkað og ennfremur á nýrri stærð blokka í samræmi við breyttar kröfur markaðsins. Gaitskells lo samlega min Oslo, 19. janúar — NTB HALVARD Lange, utanríkisráð- herra Norðmanna, hefur látið norsku fréttastofunni í té eftir- farandi ummæli í sambandi við andlát Hugh Gaitskell, foringja brezka Verkamannaflokksins: — Lát Hugh Gaitskell er mikill og sár missir fyrir alla hina al- þjóðlegu verkalýðshreyfingu jafri- I aðarman anog vestræna samvinnu lyfirleitt. | Hér í Noregi leitar hugur okkar Framh. á 14. siðu SIGGA VIGGA OG TILVERAN „Kaffiiiiiiiiiiii!” ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 20, janúar 1963 3

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.