Alþýðublaðið - 24.03.1963, Page 2

Alþýðublaðið - 24.03.1963, Page 2
IHiistjórsr: Gisll J, Asiþórsson (áb) og iscnedikt Gröndal,—ABstoðarritstjóri Bjöi-gvi'i Guóimino'sson — Fréttastjóri: Sigvaldi Hjálmarsson. — Símar: 11900 - 14 302 — 14 P03. Auglýslngasíml: 14 906 — Aðsetur: Alþýðuhúsið. — Prentsmlðja Alþýðublaðsins, Hverfisgötu 8-10 — Askrlftargjald kr. 65.00 i mánuöi. t taususölu kr. 4 00 elnt. Xitgefandi: Alþýðuflokkurinn '5' •I FRAMBOÐSRAUNIR KOMMÚNISTA ' STJÓRNMÁLAFLOKKARNIR eru nú sem óðast að birta framboðslista sína til alþingiskosn- inganna á sumri komandi — allir nema einn: Komm únistaflokkurinn, Sósíalistafl., Alþýðuband'alagið eða bvað menn vilja kalla hann — hann hefur eng an framboðsliista birt, enda í miklum þrengingum nfeð þessi mál. ; ít Fiokkurinn óttast mjög um afkomu sína í (kþsningunum, því að innanfúi eða andleg tréáta : herjar nú máttarstólpana: Ertu með eða móti 1 Stalín, með eða móti Maó, með eða móti Krúsjef ? | Tað gerir ekki að gamni sínu, þegar innanskömm- ' in er þessa eðlis. 1 Það bætir svo ekki úr skák, að Alþýðubanda- lagsyfirhöfnin er orðin svo gatslitin, að forystunni þykir nánast ósæmilegt að klæðast henni, en eng- :id ný hefur fundizt, sem klætt getur skapnaðinn, I sém undir þarf að fela. Nú standa yfir samningar milli kommúnista og leifa Þjóðvamarfl. um kosningabandalag — og eru þó báðir hræddir við sambandið. Ottast Þjóð- varnarforystan, að hún eigi ekki afturkomu auðið með 'lífsmarki úr þeim Hadesarheimi, en þykist raunar varla orðin lífs hvort eð er, en kommúnist- ar þykjast hafa nóg innan dyra af Rúturn, Hanni- bölum og Alfreðum, þótt ekki bætist nú Gilsar og Bergir ivið, en' teljast hins vegar standa frammi við fallhlerann og einhverjir tilburðir til bjargar séu betri en engir. Samningarnir standa um það, að Alfreð Gísla son víki af Reykjavíkurlistanum fyrir Gilsi Guð- mundssyni og þar með yfirtaki kommúnistar dán- arbú Þjóðvarnar gegn því að tryggja honum þing setu. Fyrir þessu setur Gils þau skilyrði að vera fíokkslega óbundinn kommúnistum, svo að hann háldi einhverju andliti gagnvart alþjóð, og inn á lísta Alþýðubandalagsins úti um land mundu báð- ír aðilar sammála um að setja skuli Þjóðvarnar- menn til atkvæðasmölunar svo að kommúnistum i launist greiðinn við Gils. Hitt er svo annað mál, hvort allir Þjóðvamar- ■ menn verði ginkeyptir fyrir- því að vera þannig dregnir í allsherjarflotvörpu inn í síldarþró komm únismans, og margir munu láta segja sér tvisvar, að hugsjónamenn úr Þjóðvarnarliði samfylki gisti ! dnum rússneskra njósnara hérlendis. En næstu ivikur og mánuði munu staðreyndim ! ar tála og segja af eða á um málið. ■ (Alþýðumaðurinn). mjmmmmmmmmum^^mmmmmmmmmmm^m—mmBmmmmmmmmmmmmmmmm NSU-PRINZ 4 5 manna fjölskyldubifreið. ýV BJARTUR ÞÆGILEGUR -fr VANDAÐUR ýV SPARNEYTINN KOMIÐ OG SKOÐIÐ PRINZINN. — PANTIÐ í TÍMA. FÁLKINN H.F. Laugavegi 24. — Reykjavík. Söluumboð á Akureyri: BÍLAVERKSTÆÐI LÚÐVÍKS JÓNSSONAR Er Jesús sá f¥8essias sem spámennirnir boðuðu afS myndi koma? Júlíus Guðmundsson talar um ofangreint efni í Aðventkirkjunni í dag, sunnud. 24. marz kl. 5 e. h. Fjölbreyttur söngur. — Allir velkomnir. Á sunnudaginn komu saman á Grund nokkrar námsmeyjar Kvennaskólans í Reykjavík, ásamt skólastjóranum, frú Guðrúnu Iíelgadóttur og Þorvarðí Örnólfs- syni kennara, og skemmtu heim- ilisfólkinu með leikþætti, upp- lestri og listdansi. Var þetta hin ágætasta skemnjtun og færi ég þeim öllum innilegar þakkir fyrir komuna. Steypustyrktarjárn Nýkomið AKUR H.F Símar 13122 — 11299. Það er ekki í fyrsta skipti, sem námsmeyjar Kvennaskólans koma til okkar á Grund. Þær hafa kom- ið hingað mörg undanfarin ár til þess að gleðja og skemmta vist- fólkinu — en þær hafa líka gerlj annað og meira. Hjá okkur er margt fólkið. sjóndapurt og yfir þrjátíu eru blindir. Til þessa fólks hafa þær komið oft og mörgum sinnum undanfarna vetur til að lesa fyrir það. Er þetta mjög lofs vert framtak, sem sýnir hug þeirra betur en allt annað — og fyrir þetla þökkum við af alhug. Gísli Sigurbjörnsson. Sunnudagskvöld úina-salurinn er opinn í kvöld. Hljómsveit Svavars Gests. Borðpantanir hjá yfirþjóninum í síma 20211. Borðið og skemmtið yður í SÚLNA-SA L.N U M HÓTEL SAGA £ 24. marz 1963 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.