Alþýðublaðið - 24.03.1963, Page 5

Alþýðublaðið - 24.03.1963, Page 5
f PÓLITÍSKAR skáldsögur eiga miklum vinsældum að fagna urn þessar mundir. Aust- ur í Sovétríkjum er ekki meira um anna'ð talað en sögu úr fangabúðum Stalins, og í Bandaríkjunum hefur skáldsaga um óviljandi kjarnorkuárás á Moskvu verið efst á metsölu- listum langa hríð. Hjá okkur er nú mikið rætt um þýdda skáld- sögu, sem er febrúarbók AI- menna bókaféiagsins. Hún heit- ir „Það gerist aldrei hér?” og er eftir Constantine FitzGibbon. Þessi saga, sem grípur les- andann og heldur honum í eftír væntingu,' f jallar mn valdatöku kommúnista og Sovétríkjanna í Bretlandi. Hún gerist 19G5-G7 og lýsir stig af stigi, hvernig Bretland varð hljóðalaust að alþýðulýðveldi með óafvitandi stuðningi háttvirtra kjósenda án þess að nokkur fengi rönd við reist. Enda þótt bókin sé skáldsaga og margt í henni umdeilanlegt, minna ýms smóatriði óþægilega á vinstri stjórnina sálugu, sér- staklega f.vrir þá, sem þekktu til á bak við tjöldin á þeim ár- um. Þess vegna er fróðlegt að cndursegja aðalefni bókarinnar og staðsetja það á íslandi með íslenzkum nöfnum. Bókin lætur kommúnista koma sér fyrir inn- an Verkamannaflokksins, en hér á landi væri líklegra að slíkt gerðist innan Framsóknar eða í bandalagi hennar og Alþýðu- bandalagsins. Sagan mundi þá verða eitthvað á þessa leið: Það dregur til kosninga á fs- landi skömmu fyrir 1967. Við- reisnarstjórnin situr enn og velmegun hefur verið í landinu um langt skeið. Stjórnarand- staðan hefur því beint áróðri sínum í stórvaxandi mæli að ut- anríkismálum. Framsókn og kommar halda fram, að kjarn- orkusprengjur séu geymdar á laun á Keflavíkurvelli og her- inn verði að fara. Ný and- spyrnuhreyfing hefur starfað í nokkur ár og kallast „Samtök sprengjuandstæðinga.” Forseti hennar er Þórarinn Þórarinsson, en starfsmenn flestir SÍA- menn, og hafa samtökin ausið peningum í áróður. Kemur til árekstra við ameríska hermenn á Þingvöllum og í Reykjavík og sambúð versnar. — Tekst að skapa mikla andúð gegn sprengjunni og vamarliðinu. Fyrir áeggjan Tímans skrifa framsóknarmenn um land allt undir mótmælaskjöl og taka þált í göngum. Kosningarnar fara þannig, að Framsókn og kommúnistar fá fjögurra þingsæta meirl- hluta. Eysteinn Jónsson er for- maður síns flokks ennþá og ætlar að mynda ríksstjórn. — Hann hefur umræður tim stjórnarstefnu og hikar við að Iáta varnarliðið fara — vill helzt taka upp samninga. En hann rekur sig á, að gamla um- skiptapólitíkin gengur ekki lengur. Meirihluti þingmanna hans eru orðnir „sprengjuand- stæðingar” og styðja ekki stjórn, nema varnarliðið og „sprengjan” fari tafarlaust. Það kemur til átaka og með naum- um meirihluta er samþykkt, að Þórarinn skuli mynda stjórn- ina, en ekki Eysteinn. Stjórnarmyndun gengur nú greiðlega. Þórarinn Þórarinsson er forsætisráðherra og Lúðvík Jósefsson utanríkis- og við- skiptamálaráðherra, en Ey- steini er leyft að vera landbún- aðarráðherra. Honum lízt ekki á þessa þróun máia, en hann vill ekki kljúfa hinn gamla flokk sinn og ráðleggur mönn- um' að vera rólegir. Nú verði loks lumbrað á krötum og í- haldi. Á tilskildum tíma fer varn- arliðið úr Iandi. Sett er ströng löggjöf til að hindra penínga- flótta og ná földum gjaldeyris- inneignum heildsalanná erlend- is. Samkvæmt þeim lögum eru sumir menn afklæddir til skoð- unar af nýskipuðum tollvörð- um og öðrum bannað að fara úr landi. Hannibal er verka- málaráðherra og gefur út bráða birgðalög um stöðvun kaup- gjalds og bann við verkföllum í eitt ár. Dómsmálaráðherra, Þorvaldur Þórarinsson, fyrir- skipar herferð Iögreglunnar gegn „spillingarbælum Kan- anna“, og skiptir um stjórnend- ur lögreglunnar, þcgar honum líkar ekki starfið. Brátt fer að bera á, að ýmsir þckktir borg- arar verða fyrir óþægindum og veitingahús og verzlanir and- kommúnista skemmast í átök- um lögreglu við „Iýðinn”. Skömmu eftir brottför varn- arliðsins birtir Pravda í Moskvu harða árás á íslenzku stjórnina og heldur fram, að Bandarikja- menn hafi hulin kjarnorkuvopn í óbyggðum og leynilegar birgðastöðvar kafbáta á Aust- fjörðum og Vestfjörðum. Þar sem þetta mundi vera freklegt brot á hinu algera og ævarandi hlutleysi landsins, lýsir Lúðvík. Jósefsson utanríkisráðherra þegar yfir, að Sovétríkin geti sent sendinefnd til að kanna, hvort nokkuð sé hæft í þessu. Klukkustund eftir að Lúðvík skýrir frá þessu í útvarpi — (Magnús Kjartansson útvarps- stjóri kynnir hann), — og bendir á hin mikilvægu við- skipti Islands við Rússa, lenda tvær sovétþotur á Keflavíkur- flugvelli. Rúmlega 100 „vísinda- menn“ eru komnir til að kanna Iilutleysi landsins, Það er merki Iegt, að þeir ganga alltaf í takt. Þeir fá Hótel Sögu til umráða og sérstakur vörður er settur við gistihúsið. Lögreglan hefur tekið svo margt fólk fast fyrir „óspekt- P ir”, „spillingu” eða „mótþróa § við lögregluna” að fangelsin eru H full og verður að breyta hverfl S tómra hermannahúsa á Kefla- S víkurvelli í bráðabirgðafang- H elsi. Er sett rammger gadda- m vírsgirðing umhverfis húsin. §g Dagblöð andstöðuflokkanna i§ hætta nú af dularfullum ástæð- S um að fá pappírssendingar sín- ||ar, og vegna óspekta er sett strangt samkomubann innan Khúss og utan. Þar sem ósvífnir H blaðamenn hafa sent vilíandi p fréttaskeyti til útlanda um ís- || lenzk mál, hefur verið tekín S upp „ritskoðun af frjálsum K vilja“ til að ekki verði spillt S fyrir sölu á íslenzkum afurðum. ffl Þinghald er stutt þennan veí- H ur, og eftir það er stjórnað með i" bráðabirgðalögum. Nokkuð er || róstusamt innan Framsóknar- pí flokksins og átök tíð. Tekur þetta mjög á Þórarin, svo að H| Lúðvík lætur bjóða honum í |§ opinbera heimsókn til Austur- O Þýzkalands til hvíldar. í veizltt’ J í Austúr-Berlín verður Þórar- inn alvarlega veikur og er flutt- |H ur á sjúkrahús. Daginn el’tir IS sendir hann skeyti heim og I.’ kveðst verða að hætta störfum H| sem forsætisráðherra að lækn- S isráði. |! Þcgar skeyti Þórarins herst, §§ lætur I.úðvik þegar gefa ut H fréttatilkynningu þess efnis, að Mhrezki flotinn sé uti fynrír B ströndum og muni ætía að :■ ■ ■ ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 24. marz 1963 $

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.