Alþýðublaðið - 24.03.1963, Side 9
TUN
er veitt geti inngöngu í háskóla.
Þeir sem ganga í Kennaraskúlann
og vlja Ijúka þaðan stúctentsprófi
verða að verja til þess fimm árum,
í stað þess að menn geta lokið stú
dentsprófi í almennu menntaskól-
unum með fjögurra ára námi. En
með hliðstæðum hætti verða þeir
stúdeníar, sem vilja ljúka al-
mennu kennaraprófi, að verja til
þe6S einu ári til viðbótar fjögurra
ára menntaskólanámi, þannig, að
þeír, sem hefja nám í almennnm
menntaskóla, verða að verja fimm
árum til þess að geta jafnframt lok-
ið kennaraprófi og fengið kenn-
araréttihdi. Nómið í kennaradeild
stúdenta er fyrst og fremst helgað
námi í sérgreinum almennu kenn-
aradeildarinnar með hliðstæðum
hæ^t|i og námið £ menntadeilÆ
Kennaraskólans er helgað sérgrein
um almennu menntaskólanna, og
er þar gert ráð fyir valfrelsi milli
latínu annars vegar og eðlis- og
efnafræði hins vegar, þannig að
þeir stúdentar frá Kennaraskólan-
um, sem hyggjast helga sig raun
vísindum í háskólanámi, geti lagt
stund á eðlis- og efnafræði í stað
latinu, en hinir, sem hyggjast
helga sig hugvísindúm, geti lagt
stund á nám í latínu í stað eðlis-
og efnafræði.
Hefur verið lögð á það sérstök
áherzla við undirbúning þessa frum
varps og fyrirhugaðs námsefpis
í almennu kennaradeildinni og
menntadeildinni, að stúdentspróf
frá Kennaraskólanum verði algjör
lega hliðstætt sltúdenisprófi frá
þeim skólum, sem nú hafa rétt til
að útskrifa stúdenta, enda ber til
til þess brýna nauðsyn, að ekki sé
slakað á kröfuin til stúdentsprófs
og þar með þekkingarkröfum til
þeirra, sem rétt skulu hafa til inn
göngu í háskóla. Kétt er að taka
fram, að væntanlegir stúdentar
frá Kennaraskóla íslands munu
ekki hljóta rétt til inngöngu í verk
fræðideild Háskólans né til náms
í lyfjafræði Iyfsala, þar eð krafizt
er stúdentsprófs stærðfræðideild-
ar til skráningar í þessum greinum
í þessu sambandi hefur verið á-
kveðið að efna til endurskoðunar
á námsefni mennfnskólanna, og
skipaði menntamálaráðuneytið
hinn 7. marz sl. nefnd til þeirrar
endurskoðunar. Mun sú nefnd hafa
iokið störfum, áður en fyrstu stú-
dentarnir brautskrást frá Kennara
skóla íslands. Að öðru leyti en því,
sem ég hef nú getið, munu stúdent-
| ar frá Kennaraskóla íslands hafa
sömu réttindi og stúdentar frá hin
um stúdentaskólunum til þess að
stunda nám í Háskóla íslands og
við erlenda háskóla, þ.e. hliðstæð
rétindi til háskólanáms og stúdent
ar úr máladeildum menntaskóíans
og verzlunardeild Verzlunarskóla
íslands.
Þar eð það er eitt helzta ný-
mæli frumvarpsins að Kennara-
skólanum eru veiftt réttindi til
þess að brautskrá stúdenta, skal ég
fara nokkrum orðum um nauðsyn
þess og nytsemi að gera þá breyt-
ingu. Kennaraskólinn hefur verið
fjögurra ára skóli og aldur þeirra
nemenda, sem inn í hann ganga,
hefur verið svipaður og aldur
þeirra, sem nám hefja í mennta-
skóla. En námsbrautin í Kennara-
skólanum hefur verið lokuð braut.
Eftir fjögurra ára nám í Kennara-
skóla hafa þeir, sem þaðan braut-
skrást, ekki átt kost á neins konar
framhaldsnámi. Nú er það svo, að
IöjIG ára unglingar, sem ljúka
landsprófi, geta tæplega gert sér
nógu Ijósa grein fyrir, hvers kon
ar lífsstarf muni henta þeim, t.d.
hvort þeir vilji stunda störf, sem
háskólanám er nauðsynlegt til að
gea stundað, eða hvort þeir t.d.
vilja gerast barna- eða unglinga-
kennarar. Þeir, sem fara í mennta-
skólana, halda báðum þessum leið
um opnum. Þeir eiga aðgang að há-
skólum eftir fjögurra ára nám, en
geta jafnfram öðlast kennararétt-
indi eftir eins árs viðbótarnám við
Kennaraskólann. Þeir, sem fara í
Kennaraskólann, geta hins vegar
aðeins öðlzt kennararéttindi, en
eiga þess ekki kost að bæta við
nám sitt þekkingu, er veitir þeim
rétt til inngöngu í háskóla. Aftur
á móti eiga stúdentarnir í Kenn
araskólanum kost á að afla sér
þekkingar, sem veitir þeim kenn-
araréttindi. Þetta hefur valdið þvi,
að f jölmargir góðir nemendur, sem
Iokið hafa landsprófi, hafa fremnr
kosið menntaskólabrautina, þótt
þeir hafi í sjálfu sér vel getað
hugsað sér kennslustörf sem at-
vinnu, enda langri leið lokað með
því að velja menntaskólanámið.
Háskólaleiðinni hefur hins vegar
verið lokað, er kennaraskólanámið
hefur verið valið. Það er því tví-
mælalaust framfaraspor að opna
nemendum Kennaraskólans leið til
háskólanáms með sama hætti og
stúdentar hafa átt kost á að afla
Framh. á 11. síðu
MYNDIR ÍIR KENNARA-
SKÓLANUM. Efst: í
kennslustund hjá Ágúst Sig
urðssyni. — í miðið ofar:
, Stúdentadeildin í tíma hjá
ísak Jónssyni. í miðið neð-
ar: Teiknitími í æfinga-
deild. Neðst: Hallgrímur
Jónsson spyr börnin í æf-
ingadeildinni.