Alþýðublaðið - 27.03.1963, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 27.03.1963, Blaðsíða 2
 »nstjór?r: Gisll J. Astþórsson (áb) og bencdikt Gröndal,—A3stoSarritstjórt Björgvi'i GuCmundsson — Fréttastjóri: Sigvaldl Hjálmarsson. — Slmar: 14:900 - 14 J02 — 14 903. Auglýsingasími: 14 906 — Aösetur: Alþýöuhúsiö. . — Prontsmlðja Alþýöublaösms, Hverfisgötu 8-10 — Askriftargjald kr. 65.00 6 inánuði. t latsutölu kr. 4 00 eint. Dtgefandl: Alþýðuflokkurinn kyðgaðir bárujárnshjallar 1 YNGSTI BLAÐAMAÐURINN á Alþýðublað- inu er ígreindur sveitaspiltur, sem enn hefur ekki dpalizt lengi í höfuðborginni. Hann á því til að llta ýmislegt glöggu gestsauga. Nýlega sendum við mn ti'l að kynna ;sér ástand í einu þeirra bæjar- rerfa, sem byggð eru bröggum og lélegum bráða birgðahreysum. Hann lýsti því, sem hann sá, í stuttri grein í Sunnudagsblaðinu. Þessi grein er athyglisverð samtíðarlýsing á þiví, sem kallað er velmegun Íslendinga, sérílagi á húsnæðismálum nokkurs hluta hinnar nýrílcu þjóðar. Hér fer á eftir kafli úr lýsingu blaðamanns ins: „Ég ætlaði að segja ykkur frá ryðguðum báru- járnshjöllum, vatnspollum undir gluggakistum, gat isKtnum, upplituðum, trosnuðum gölfsneplum úr grófum strigadúk, bíslögum með gólfi úr mold, óhefluðum bjálkum í eldhúsi, útidyrahurðum slegn upi saman úr panelfjölum með bárujárnsnöglum; öináluðum, einnar lamar, handfangslausum hurð- npi, og engum hurðum milli eldhúss og stofu. Ég ajtla að segja ykkur frá klofnum krossvið fyrir brotnum eldhúsglugga, anddyri, sem gegnir hlut- vprki þvottahúss, og litlu ferkanta herbergi, sem er alit hitt fyrir fimm manna fjölskyldu. Ég ætla að segja ykkur frá Jesúmynd, skakkri á óklædd- um trétexvegg, víða glompóttum, sliguðum dívön- um af elli, skröpuðu, lakklausu, þrílappa stofu- borði frá um aldamót, engum síma, engu rafmagni, lélegri kolakyndingu, húsi, þar sem flæðir undir í vorleysingum, þar sem götunúmerið hefur verið málað á sæmilega trausta ómálaða bárujárnsplötu með naglagötum, ekki ofar en svo að vera handa- iverk óhags, 10 ára drengs; götur, sem rísa ekki undir nafni, troðnmgar, og vatnsblá börn í forar- pollum, fullorð'ð fólk klætt druslum, í lekum skóm með kartneglur, skyrbjúg, órakað, óhreint, tann- laust, tannskemmt, drukkið, timbrað, aftur drukk- ið í eymd. Og ég lái því ekki“. Þótt lífskjör íslendinga hafi mikið batnað, meg um við aldrei gleyma þeim, sem enn hafa ekki notið þess. Sú skylda hvílir á samfélaginu að igreiða götu þessa fólks, meðal annars útvega því húsnæði. Þeirri skyldu megum við ekki bregðast. Smedvig stýrisvélar % j i « Höfum fyrirliggjandi rafmagns-vökvaknúnar ístýrisvélar frá Smedik Mek. Verksted, Noregi, fyrir 32 og 110 volta jafnstraum. Magnús Ó. Ólafsson Garðastræti 2 — Sími! 10773. SPÖRTU fermingarfötin í miklu úrvali hjá Herrabúðinni Austurstræti 22 og Vesturveri. Daniei Laugavegi. L. H. Muller og Herraföt h.f. Hafnarstræti. Verksmiðjan Sparta Borgartúni 25. Sími 16554 — 20087. •miiiiiiitiimiiiiiiniiiiiiiiiMiiiiiiHiiiMiiiiiiiiiitiimiiiiiiiMiMiiiiiiiiiiitiMiiiiiiiiiiiiiiM'|l""ll,"<MiiiiiitiiiiMiiiiiiiii* | Hafa kaupmenn slakað á eftirlitimi? ic Minna hreinlæti, verri klæðnatíur. Um meðferð á brauðavörum í búðum. I ir Verðlagseftirlitið og brauðaumbúðir. M. Ó. SKRIFAR: „Ég man þá tíð, að mikið var skrifað um nauð- syn á því, að vcrzlunarfólk væri i hreiniega klætt við afgreiðsluborð- in og sýndu viðskiptavinunum lip- urð og kurteisi. Þetta var ekki að ófyrirsynju, því að fyrrum voru til fáar sérverzlanir og verzlunar- menn fíestir ólærðir og margir ó- æfðir með öllu. Við þurftum, ekki sízt á þessu sviði, að tileinka okk- ur menningarhætti. ÞETTA VAR og mjög batnandi og það stafaði ekki sízt af því, að verzlunin óx hraðfara, æ fleiri sérverzlanir risu upp og ruddu sér til rúms, ungir menn lærðu verzl- unarfíraeði, ekki aðeins töifræði heldur og ekki síður fágaða fram- komu og þeir höfðu áhrif á 6tarfs- fólk sitt. Þá voru teknir upp bún- ingar og á það lögð rík áherzla að starfsfólk væri hreinlegt og vel til fara. OG SVONA hefur þetta verið, en ég verð að segja það, að upp á síðkastið hefur mér virst að slatc- að hafi verið á klónni. Mun það stafa af því, að nú virðist það ekki eins auðvelt að fá verzlunarfólk til starfa eins og áður var — og þegar svo er komið, slævist til- finningin kæruleysið tekur við .— og stjórnandinn hefur ekki cins góð tök á starfsfólkinu og áður var. ÉG HEF til dæmis tekið eftir því að nú eru stúlkur ekki með „kappa“ í brauð- og mjólkursölu- búðum — og það er viðburður e£ maður kemur í „sjoppu" að dútk- an eða pilturinn er í hvítum slopp- Ég tel það mjög miður farið ef á- framhald verður á þessu. Ég vil mælast til þess, að enn verði hert Framh. á 14. sfðU 2 27. marz 1963 — ALÞÝÐUBLAÐID

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.