Alþýðublaðið - 27.03.1963, Qupperneq 3
Gaulie óbreytt
- en afstaða de
PARÍS, 26. marz (NTB-Rauter).
— Fyrsti klofning-urinn í hinni
einliuga fylkingu verkfallsmanna
í atvinnugreinum hins opinbera í
Frakklandi reis upp í dag þeg-
ar leiðtogar rúmlega 3 þúsund
starfsmanna við jarðgasstöðvarnar
í Suðaustur-Frakklandi, sem eru
í verkfalii, náðu samkomulagi við
vinnuveitendur um að hefja vinnu
á ný.
Jarðgasverkamennirnir féllust á
nnirmr semja
tillögu vinnuveitenda, sem skip-
ar þeim við hlið námuverkamanna.
Verkfall námuverkamanna hefur
staðið í 26 daga. Vinnuveitendur
hétu jarðgasverkamönnum einn-
ig sömu kjarabátum og hugsan-
legt er að námuverkamenn fái.
Það voru strax gerðar ráðstafan
, ir til að færa gasframleiðsluna í
eðlilegt orf á ný í kvöld. Verk-
fallið hafði leitt til alvarlegt
skorts á eldsneyti, einkum í Norð-
ur-Frakklandi.
Afstaða frönsku stjórnarinnar
til launa og orlofskrafna kola-
námumannanna, sem eru í verk-
falli, er enn óbreytt. Þó komu ráð
, herrarnir saman til fundar í dag
> að reyna að finna lausn á hinu al
varlega verkfallsástandi.
Georges Pompidou, forsætisráð
herra, ræddi við helztu ráðherra
sína í dag samtímis því sem til á-
taka kom milli verkfallsmanna og
lögreglu í bænum Carline. Jafn
framt jókst ólgan sífellt í kola-
námusvæðunum í Lorraine.
Að ráðuneytisfundinum loknum
sagði Gilbert, verkalýðsmálaráð- j
herra, að afstaða stjórnarinnar til
krafa námumanna væri óbreytt.
Nú væri röðin komin að námu-,
mönnum að íhuga málið vand-
lega.
Páskaferð með
Úifari í Öræfi
Verzlunin Búrið að Hjalla-
vegi 15 hefur nú tekið al-
gjörum stakkaskiptum. Eig-
andi verzlunarinnar, Guð-
mundur Oddsson hefur látið
breyta henni í nýtízku kjör-
búð og bætt 100 fermetrum
við verzlunarrýmið. Búrið
hefur nú starfað í 16 ár, og
er nú ein stærsta verzlunin
í Kleppsholtinu. Það var
Byggingarfélagið Brú, sem
sá um breytingaraar, en arki
tekt var Skúli Norðdal. —
Verzlunin er öll máluð með
nýrri tegund af þýzkri
málningu, sem nú er mikið
farið að nota. Er það eins
konar plast-kvoða, sem er
mjög sterk og þolir m. a.
að vera þvegin úr vítissóta.
í verzluninni er frysti og
kæligeymsla, m. a. sérstak-
ur kælir fyrir ávexti. Mynd-
in er tekin af Guðmundi i
hinni nýju, en þó gömlu
vcrzlun.
[Alþýðuflokksfélag Reykjavíkur:
25 ára afmæl-
isminnztíSögu
á sunnudaginn
UM ÞESSAR mundir eru 25 ár
liðin frá stofnun Alþýðuflokksfé-
lags Reykjavíkur, en félagið var
stofnað eftir að Héðinn Valdi-
marsson og kommúnistar höfðu
náð yfirtökum í Jafnaðarmanna-
félagi Reykjavíkur. Á sunnudag-
inn mun Alþýðuflokksfélagið
minnast 25 ára afmælisins með
hátíðafundi, sem haldinn verður
í Súlnasalnum á Hótel Sögu.
Hátíðarfundurinn mun hefjast
kl. 2 e. h. Erlendur Vilhjálmsson
formaður Alþýðuflokksfélagsins
býður gestina velkomna. Guð-
mundur Guðjónsson óperusöngvari
syngur, þá verður viðræðuþáttur
Alþýðuflokksmanna undir stjóm
Sigvalda Hjálmarssonar frétta-
stjóra, Einar Jónsson leikur á pí-
anó og að lokum mun Emil Jóns-
son, formaður Alþýðuflokksins
flytja ávarp. Afmæliskaffi verður
borið fram á fundinum. Félagar
eru hvattir til þess að fjölmenna á
fundinn og gera hann að glæsi-
legum afmælisfagnaði.
NÚ fara páskar að nálgast með
hraði og menn að hugsa til hreyf-
ings um hátíðar. Úlfar Jacobsen
mun um páskana hefja ferðastarf
semi sína að nýju eftir veturinn,
og fyrsta ferðin verður farin í
Öræfin um páskana. Öræfin eru
ein fallegasta sveit landsins, ein
sú afskekktasta um leið, og þar
geta menn fundið hinn sanna frið
náttúrunnar, orðnir breyttir á
borgarhávaðanum og þyrstir í
kyrrð. Öræfin er með afbrigðum
falleg sveit og ferðin þangað er
jafnan hin skemmtilegasta, yfir
sanda að fara og stórár, með fal-
legu jökulútsýni.
Lagt verður af stað í ferðina,
sem í allt tekur fimm daga, á
skírdagsmorgun þann 11. apríl.
Nýir og fulikomnir bílar verða
í förum. Fyrsta dagleið verður að
Klaustri, þar sem gist verður í
samkomuhúsinu um nóttina. Síð-
an' verður haldið yfir sanda og
sveitin skoðuð ,hátt og lágt,“ j—
sandar og fjöll. Skrifstofan verð-
ur opnuð einhvern næsta dafea.
Hún er að Austurstræti 9. Símipn
er 13-499, og geta menn þar pant
að miða. Það er jafnan mikið fjör
í ferðunum með Úlfari og mepn
skemmta sér vel. Kjörorðið er:
Allir með Úlfari!
Meðfylgjandi mynd er af H'ofi
í Öræfum, einum bæ í Öræfum,
þar sem hægt er að sjá sveitar-
brag, sem menn héldu tind'an
fyrir fimmtíu árum.
Bidault flýr
til Lissabon
MÚNCHEN, 26. marz (NTB-'
Rauter). — Fyrrverandi forsætis-
ráðherra Frakka, Georges Bidault, !
fór flugleiðis í gær til Lissabon, )
þar sem hann heldur nú til. Senni
leg ástæöa fyrir ferð Bidaults er,
að liann hyggst halda áfram bar-
áttu sinni gegn de Gaulle forseta
i öðru landi en Vestur-Þýzka-
landi.
En í kvöld var ekki hægt að fá
staðfest hvar Bidault hyggðist setj
ast að. Innanríkisráðherrann í
Bæjaralandi, Heinrich Junker,
kvaðst telja, að Bidault mundi
biðja um hæli í einhverju Suður-
Ameríkulandi.
Bidault, sem er yfirmaður svo-
kallað Þjóðlegs andspyrnuráðs í
Frakklandi, fór frá dvalarstað sín
um í Steinenbeach í Bæjaralandi
á mánudagskvöld ásamt ritara sín
um. Hann fór til Lissabon með
svissneskri flugvél frá Ziirich.
Hann ferðaðist undir dulnefndi svo
og einkaritarinn.
Junker innanríkisráðherra, sem
borið hefur áhygð á öryggi Bid-
aults í Bæjaralandi, sagði á blaða
.mannafundi, að brottför Bidaults
væri mikill léttir. Hann lagði á-
herzlu á, að Bidault hefði ekki
verið í varðhaldi í Bæjaralandi.
AÖalfundur Al-
þýðuflokksfélags
Akraness
Akranesi í gær:
ABALFUNDUR Alþýðu-
flokksfélags Akraness, var haldinu
í gærkvöldi. Formaður félagsins
Ríkharður Jónsson setti fundinn
og flutti skýrslu stjórnar. Við
kosningu baðst hann undan end-
urkjöri, og eftirtaldir menn voru
kjörnir í stjórn: Formaður: Hálf-
dán Sveinsson, ritari: Helgi Daní-
elsson, gjaldkeri: Kristján Guð-
mundsson. Meðstjórnendur: Guð-
mundur Sveinbjörnsson og Kristj-
án Pálsson. Varamenn: Sveinn
Kr. Guðjónsson og Guðm. Bene-
diktsson.
ALÞYÐUBLAÐI0 — 27-. mara 1963: J